Nesfréttir - mar. 2017, Síða 5

Nesfréttir - mar. 2017, Síða 5
Nes ­frétt ir 5 Mikið fjör var við opnun Systrasamlagsins við Óðinsgötu 1 laugardaginn 11. mars, en Systrasamlagið var áður til húsa við Suðurströnd á Seltjarnarnesi. Af því tilefni var efnt til morgundjamms í versluninni sjálfri sem er engin venjuleg búð heldur líka lífrænt kaffihús sem selur allt frá jógafatnaði til Flothetta og allt frá látúnsmerkjum og naglalökkm til lífræns macchiato. Almenn ánægja er með komu nýja Systrasamlagsins í 101 sem þykir sérlega fallega hannað af Unni Sigurðardóttur innanhúshönnuði í samvinnu við þær systur Jóhönnu og Guðrúnu Kristjánsdætur. Hér eru nokkrar ljósmyndir sem m.a. Anna Kristín Þorsteinsdóttir tók frá opnun Systrasamlagsins. Systrasamlagið flytur á Óðinsgötu 1 SUMARSTÖRF HJÁ SELTJARNARNESBÆ 2017 Seltjarnarnesbær vill ráða ungt fólk til sumarstarfa 18 ára og eldri (fædd 1999 og eldri). Um er að ræða almenn garðyrkjustörf, verkamannastörf, skapandi sumarstörf og ýmis afleysingastörf. Einnig er auglýst eftir ungmennum 20 ára og eldri (1997 og eldri) í störf flokkstjóra og leiðbeinenda. Skilyrði fyrir ráðningu er að eiga lögheimili á Seltjarnarnesi. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um störf. Sjá nánar á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar. Umsóknarfrestur er til 31. mars 2017 Sótt er um störfin á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar, www.seltjarnarnes.is Nánari upplýsingar eru á heimasíðu og í þjónustuveri Seltjarnarnesbæjar í síma 5959 100. ViNNUSkóLi 8. – 10. BEkkUR og 17 ÁRA F. 2000 Vinnutími Vinnuskóla verða 7 stundir á dag, 4 daga vikunnar fyrir umsækjendur sem fæddir eru 2000 og 2001. Vinnutími verða 3,5 stundir á dag, 4 daga vikunnar fyrir umsækjendur sem fæddir eru 2002 og 2003. Ekki er unnið á föstudögum. Vinnutímabil Vinnuskólans er frá 12. júní til 27. júlí. Umsóknarfrestur er til 2. maí 2017 Vinnuskólinn verður settur 8. júní kl. 11:00 í Valhúsaskóla

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.