Nesfréttir - mar. 2017, Side 13
Á Seltjarnarnesi eru 85% íbúa ánægðir
með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið,
samkvæmt árlegri þjónustukönnun sem Gallup
gerir meðal sveitarfélaga landsins. Þjónusta Sel-
tjarnarness á heildina litið út frá reynslu og áliti
íbúa nýtur verðskuldaðrar viðurkenningar, en
Seltjarnarnesbær fær þar hæstu einkunn af þeim
nítján sveitarfélögum sem borin eru saman. Á
heildina litið er Seltjarnarnesbær oftast í efsta
sæti meðal þessara stærstu bæjarfélaga landsins
eða í helmingi spurninganna sem lagðar voru
fyrir viðhorfahópinn. Þessi jákvæða niðurstaða
undirstrikar jákvætt viðhorf bæjarbúa til
samfélagsþjónustunnar og er starfsfólki og
stjórnendum bæjarins hvatning til að halda
áfram á sömu braut.
Ánægja barna- og fjölskyldufólks
eykst
Bærinn fær hæstu einkunn meðal þeirra nítján
bæjarfélaga landsins, sem könnunin nær til,
þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur
í sveitarfélaginu. Það sama er upp á teningnum
þegar spurt er annars vegar um viðhorf
bæjarbúa til þjónustu grunnskóla bæjarins
og hins vegar um þjónustu við leikskólann.
Ánægjan með leikskólann fer sívaxandi og eru
90% aðspurðra ánægðir með hann. Seltjarnar-
nesbær hefur lagt áherslu á að vera
leiðandi í skóla-, æskulýðs- og íþróttastarfi á
landsvísu. Það hefur lagt metnað í jöfn tækifæri
fyrir alla og samhliða stuðlað að bættum árangri
og vellíðan skólabarna. Niðurstöður könnunar
Gallups staðfesta að þau eftirsóknarverðu
markmið eru að bera árangur.
Gæði umhverfis í hávegum haft
Það kemur ef til vill ekki á óvart en Seltjarnar-
nesbær er efst stiga meðal sveitarfélaganna
þegar kemur að þjónustu í tengslum við
sorphirðu. Enn fremur eru 88% íbúa eru ánægðir
með gæði umhverfis í nágrenni við heimil sitt.
Menningarlífið í blóma
Íbúar Seltjarnarness taka virkan þátt í menn-
ingarlífi bæjarins og gefa því háa einkunn.
Aukin áhersla hefur verið lögð á þann málaflokk
undanfarin ár með jákvæðum árangri, enda
skipa menningarmálin annað sæti úttektarinnar.
Eldri borgarar una hag sínum vel
Ánægja eldri Seltirninga með þjónustu
bæjarins mælist áfram há og er Seltjarnarnes-
bær þar í öðru sæti á landsvísu. Niðurstaðan
endurspeglar festu í stjórnun þessa málaflokks
en mikið kapp hefur verið lagt á að skipuleggja
nærþjónustu við aldraða í samráði við þá sjálfa
með það að markmiði að
þeir eigi þess kost að búa
sem lengst á eigin heimili.
Það samræmist einnig
yfirlýstri stefnu félagasam-
taka eldri borgara.
Aðstaða til
íþróttaiðkunar
fyrsta flokks
Ánægja bæjarbúa á Seltjarnarnesi helst áfram
í toppsæti þegar kemur að aðstöðu til íþrótta-
iðkunar í sveitarfélaginu, en þar lýstu 86%
aðspurðra sig ánægða með aðstöðuna.
Gott samstarf, betra samfélag
Bæjarstjórn og starfsmenn bæjarfélagsins
leggja sig fram um að hlusta eftir hvaða þjónusta
skiptir máli fyrir bæjarbúa og hefur sú stefna
skilað bæjarfélaginu fyrsta sæti þegar kemur
að spurningunni um þjónustustig bæjarins. Að
baki þeirri aðferðafræði liggur sú sannfæring
stjórnenda bæjarins að fyrirmyndar samstarf
skili sér í betra samfélagi og hagkvæmari rekstri.
Ásgerður Halldórsdóttir,
bæjarstjóri Seltjarnarness
Nes frétt ir 13
TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR
FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG
BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA.
MIKILVÆGASTI
VEISLUGESTURINN
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984
Seltirningar ánægðastir landsmanna
Ás gerð ur
Hall dórs dótt ir.
Borgarlína sem er hrygg-
stykki í nýju svæðaskipulagi
höfuðborgarsvæðisins er til
kynningar og verður fram til
25. apríl n.k. Athugasemdir
og ábendingar verða að vera
skriflegar og þurfa að berast
skrifstofu SSH eða á skrifstofu
viðkomandi sveitarfélags.
Borgarlína er samgönguæð
sem tengja á allt höfuðborg-
arsvæðið saman. Tilgangur
línunnar er að flytja farþega
með skjótum og öruggum hætti
um höfuðborgarsvæðið eins
og til og frá vinnu og skólum.
Gert er ráð fyrir að lína byg-
gist á leiðum vagna þar sem
engin önnur umferð er til
trafala og jafnvel að léttlestar
verði notaðar að einhverju
leyti þótt um það hafa ekki
verið teknar ákvarðanir Ljóst
þykir að fjölgun fólks á höfuð-
borgarsvæðinu og þétting
byggðar kallar á nýjar áskoranir
í samgöngumálum þar sem hlut-
ur virkra almenningssamganga
verður aukinn.
Borgarlínan
til kynningar
www.systrasamlagid.is