Nesfréttir - mar. 2017, Blaðsíða 13

Nesfréttir - mar. 2017, Blaðsíða 13
Á Seltjarnarnesi eru 85% íbúa ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið, samkvæmt árlegri þjónustukönnun sem Gallup gerir meðal sveitarfélaga landsins. Þjónusta Sel- tjarnarness á heildina litið út frá reynslu og áliti íbúa nýtur verðskuldaðrar viðurkenningar, en Seltjarnarnesbær fær þar hæstu einkunn af þeim nítján sveitarfélögum sem borin eru saman. Á heildina litið er Seltjarnarnesbær oftast í efsta sæti meðal þessara stærstu bæjarfélaga landsins eða í helmingi spurninganna sem lagðar voru fyrir viðhorfahópinn. Þessi jákvæða niðurstaða undirstrikar jákvætt viðhorf bæjarbúa til samfélagsþjónustunnar og er starfsfólki og stjórnendum bæjarins hvatning til að halda áfram á sömu braut. Ánægja barna- og fjölskyldufólks eykst Bærinn fær hæstu einkunn meðal þeirra nítján bæjarfélaga landsins, sem könnunin nær til, þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu. Það sama er upp á teningnum þegar spurt er annars vegar um viðhorf bæjarbúa til þjónustu grunnskóla bæjarins og hins vegar um þjónustu við leikskólann. Ánægjan með leikskólann fer sívaxandi og eru 90% aðspurðra ánægðir með hann. Seltjarnar- nesbær hefur lagt áherslu á að vera leiðandi í skóla-, æskulýðs- og íþróttastarfi á landsvísu. Það hefur lagt metnað í jöfn tækifæri fyrir alla og samhliða stuðlað að bættum árangri og vellíðan skólabarna. Niðurstöður könnunar Gallups staðfesta að þau eftirsóknarverðu markmið eru að bera árangur. Gæði umhverfis í hávegum haft Það kemur ef til vill ekki á óvart en Seltjarnar- nesbær er efst stiga meðal sveitarfélaganna þegar kemur að þjónustu í tengslum við sorphirðu. Enn fremur eru 88% íbúa eru ánægðir með gæði umhverfis í nágrenni við heimil sitt. Menningarlífið í blóma Íbúar Seltjarnarness taka virkan þátt í menn- ingarlífi bæjarins og gefa því háa einkunn. Aukin áhersla hefur verið lögð á þann málaflokk undanfarin ár með jákvæðum árangri, enda skipa menningarmálin annað sæti úttektarinnar. Eldri borgarar una hag sínum vel Ánægja eldri Seltirninga með þjónustu bæjarins mælist áfram há og er Seltjarnarnes- bær þar í öðru sæti á landsvísu. Niðurstaðan endurspeglar festu í stjórnun þessa málaflokks en mikið kapp hefur verið lagt á að skipuleggja nærþjónustu við aldraða í samráði við þá sjálfa með það að markmiði að þeir eigi þess kost að búa sem lengst á eigin heimili. Það samræmist einnig yfirlýstri stefnu félagasam- taka eldri borgara. Aðstaða til íþróttaiðkunar fyrsta flokks Ánægja bæjarbúa á Seltjarnarnesi helst áfram í toppsæti þegar kemur að aðstöðu til íþrótta- iðkunar í sveitarfélaginu, en þar lýstu 86% aðspurðra sig ánægða með aðstöðuna. Gott samstarf, betra samfélag Bæjarstjórn og starfsmenn bæjarfélagsins leggja sig fram um að hlusta eftir hvaða þjónusta skiptir máli fyrir bæjarbúa og hefur sú stefna skilað bæjarfélaginu fyrsta sæti þegar kemur að spurningunni um þjónustustig bæjarins. Að baki þeirri aðferðafræði liggur sú sannfæring stjórnenda bæjarins að fyrirmyndar samstarf skili sér í betra samfélagi og hagkvæmari rekstri. Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness Nes ­frétt ir 13 TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA. MIKILVÆGASTI VEISLUGESTURINN Íslenskt fjölskyldufyrirtæki og framleiðsla síðan 1984 Seltirningar ánægðastir landsmanna Ás gerð ur Hall dórs dótt ir. Borgarlína sem er hrygg- stykki í nýju svæðaskipulagi höfuðborgarsvæðisins er til kynningar og verður fram til 25. apríl n.k. Athugasemdir og ábendingar verða að vera skriflegar og þurfa að berast skrifstofu SSH eða á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags. Borgarlína er samgönguæð sem tengja á allt höfuðborg- arsvæðið saman. Tilgangur línunnar er að flytja farþega með skjótum og öruggum hætti um höfuðborgarsvæðið eins og til og frá vinnu og skólum. Gert er ráð fyrir að lína byg- gist á leiðum vagna þar sem engin önnur umferð er til trafala og jafnvel að léttlestar verði notaðar að einhverju leyti þótt um það hafa ekki verið teknar ákvarðanir Ljóst þykir að fjölgun fólks á höfuð- borgarsvæðinu og þétting byggðar kallar á nýjar áskoranir í samgöngumálum þar sem hlut- ur virkra almenningssamganga verður aukinn. Borgarlínan til kynningar www.systrasamlagid.is

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.