Nesfréttir - mar. 2017, Síða 12
12 Nes frétt ir
U M H V E R F I S H O R N I Ð
Tildra er fremur lítill,
sterkbyggður og kvikur
fjörufugl. Hún er skrautleg
í sumarbúningi, en grárri og
litdaufari á veturna. Tildran
sést allt árið á Seltjarnarnesi,
en mest er af henni á fartíma,
þegar fuglar á leið milli
varpstöðva á Grænlandi og
Norðaustur-Kanada og vetrarstöðva í Vestur-Evrópu suður til Vestur-
Afríku hafa hér viðdvöl. Tildrur sjást bæði í fjörum og við Bakkatjörn.
Vorfarið er frá því snemma í apríl og út maí, þá sést venjulega mest af
henni, stundum yfir 200 fuglar. Haustfarið er frá miðjum júlí og fram í
september. Tildran dregur nafn sitt á mörgum tungumálum af því háttalagi
að velta við steinum og þangi í fjörunni í leit að æti. Á síðustu árum hafa
tildrur sótt í brauð, sem fuglum er gefið við Bakkatjörn.
Heimild: Jóhann Óli Hilmarsson.
Skýrsla um stöðu og
stefnu í loftslagsmálum
Björt Ólafsdóttir umhverfis- og
auðlindaráðherra hefur lagt fram
skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og
stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur
skýrslunnar er að draga saman nýjustu
og bestu upplýsingar um stöðuna í
loftslagsmálum og að skapa umræðu
um næstu skref í þeim efnum.
Í skýrslunni er farið yfir alþjóðlegar
skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum, sem er að finna í Kýótó-
bókuninni og Parísarsamningnum, auk Evrópureglna á grunni EES-
samningsins. Ísland hefur tilkynnt sitt framlag til Parísarsamningsins
um að vera með í sameiginlegu markmiði 30 ríkja (Íslands, Noregs og 28
ríkja ESB) um 40% minnkun losunar til 2030 miðað við 1990. Farið er yfir
stöðuna varðandi losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og spár fram til
2030. Sagt er frá niðurstöðum í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands, þar sem spáð er verulegri aukningu í losun til 2030. Þar segir
einnig að Ísland muni ekki standa við sín markmið í Kýótó-bókuninni fyrir
árið 2020 og Parísarsamningnum árið 2030 að óbreyttri þróun.
Einnig er í skýrslunni yfirlit yfir aðgerðir stjórnvalda til þessa og
umfjöllun um væntanlega nýja stefnumótun og aðgerðaáætlun. Í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að gerð verði aðgerðaáætlun
í loftslagsmálum í samræmi við Parísarsamninginn, sem feli í sér m.a.
græna hvata, skógrækt, landgræðslu og orkuskipti í samgöngum. Fjallað
er nánar í skýrslunni um hvernig slík áætlun geti verið byggð upp, en hún
mun ekki síst fjalla um hvernig hægt verði að standa við töluleg markmið
Íslands til 2030. Einnig segir að stefnt sé að gerð vegvísis um langtímasýn í
loftslagsmálum, þar sem m.a. verði skoðað hvenær og hvernig verði hægt
að ná kolefnishlutleysi á Íslandi.
Í skýrslunni er umfjöllun um lykilþætti til að ná árangri við að draga
úr losun og efla kolefnisbindingu, fjármögnun verkefna og samvinnu og
samstarf aðila innan og utan stjórnkerfisins. Sett eru fram sex leiðarljós í
loftslagsstefnu, sem verði notuð við gerð aðgerðaáætlunar.
Heimild: natturan.is
Skýrsla umhverfis-og auðlindaráðherra um stöðu og stefnu í
loftslagsmálum (pdf-skjal)
Margrét Pálsdóttir, formaður umhverfisnefndar.
Fugl mánaðarins
- Tildra
Félagsstarfið hefur verið nokkuð viðburðaríkt síðustu daga og vikur. Um
miðjan febrúar var Gaman saman kvöld í salnum á Skólabraut. Góðar veitingar,
Geir Ólafs söngvari og Svenni nikkari. Ágætis skemmtun og mikið dansað.
Varðan, kvennadeild slysavarnafélagsins var með sitt árlega spilakvöld í salnum
á Skólabraut 23. febrúar sl. þar sem eldri borgurum er boðið til þátttöku.
Þátttakan var mjög góð og kvöldið skemmtilegt. Félagskonur buðu upp á
glæsilegt kaffimeðlæti ásamt því að þær sköffuðu vinninga. Sendum við okkar
bestu þakkir til þeirra fyrir ánægjulega kvöldstund.
Miðvikudaginn 8. mars var farin „Óvissuferð“ en þá fórum við í Hörpuna þar
sem boðið var upp á leiðsögn um það frábæra hús. Eftir góða skoðunarferð
undir stjórn Elsu Waage fórum við á glæsilegan veitingastað Ský sem staðsettur
er í Central Hotel, Ingólfsstræti 1. Þar var tekið á móti hópnum með kaffi og
glæsilegu meðlæti. Þátttakendur nutu útsýnisins í veðurblíðunni og dagsins í
heild en hann heppnaðist mjög vel í alla staði. Fimmtudaginn 9. mars var svo
bingóið okkar góða í boði Nesklúbbsins í Golfskálanum.
Þegar þessar línur eru skrifaðar 13. mars þá er ýmislegt framundan.
Þann 14. mars ætlar Lions að standa fyrir félagsvist í salnum á Skólabraut en það
er árvisst hjá þeim herramönnum að bjóða eldri bæjarbúum í félagsvist.
16. mars verður svo farið að sjá Ellý í Borgarleikhúsinu, en það er leikverk um
söngferil og ævi Ellýar Vilhjálms.
Þriðjudaginn 4. apríl ætlum við svo í aðra „Óvissuferð“. Að þessu sinni leitum
við ekk langt því við ætlum að heimsækja sjónvarpsstöðina Hringbraut og
fara svo á Örnu kaffihús en báðir þessir staðir eru í okkar næsta nágrenni. Til
stendur að fara gangandi fyrir þá sem það geta, aðrir verða keyrðir fram og til
baka. Það eru allir velkomnir, en ágætt að skrá þátttöku til að hafa c.a. fjölda.
Betur auglýst þegar nær dregur.
Mánudaginn 10. apríl verður svo páskaeggjabingó í safnaðarheimili kirkjunnar
kl. 20.00 og er fólk hvatt til að taka með sér gesti. Fimmtudaginn 27. apríl
verður svo vorfagnaður í salnum á Skólabraut. Þá fáum við Grillvagninn í
heimsókn og borðum saman góðan mat og njótum samveru í söng og dansi.
(Skráning).
Aðrir dagskrárliðir skv. dagskrárblaði en þó er vert að minna á:
Söngstundina alla föstudaga í salnum á Skólabraut kl. 13.00
Handavinnuna alla mánudaga og miðvikudaga í salnum á Skólabraut kl. 13.00.
Kaffikrókur er alla daga í króknum á Skólabraut kl. 10.30.
Pútt í Risinu á Eiðistorgi alla þriðjudaga kl. 10.30.
Botsía alla miðvikudaga í Gróttusal kl. 10.00.
Jóga í salnum á Skólabraut mánudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 11.00.
Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness mánudaga og miðvikudaga kl. 18.30,
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 07.30.
Timburmennina á þriðjudögum í Valhúsaskóla kl. 13.00.
Billjardinn á mánudögum og fimmtudögum í Selinu kl. 10.00 og karlakaffið í
safnaðarheimilinu alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14.00.
Félagsvist fyrsta fimmtudag í mánuði og bingó annan fimmtudag í mánuði.
Helgistund á Skólabraut annan þriðjudag í mánuði kl. 13.30 og helgistund,
dagskrá og veitingar þriðja fimmtudag í mánuði kl. 14.00.
Eins og sjá má á ofangreindu þá er ýmislegt í boði í félagsstarfi eldri borgara
hér á Nesinu og allir sem áhuga hafa ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar um starfið liggja frammi í félagsaðstöðunni á
Skólabraut en þangað eru allir velkomnir. Einnig er hægt að fá allar upplýsingar
hjá Kristínu í síma 893 9800.
FÉLAGS- OG TÓMSTUNDASTARF
ELDRI BÆJARBÚA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er