Nesfréttir - mar 2017, Síða 14

Nesfréttir - mar 2017, Síða 14
14 Nes ­frétt ir GETRAUNANÚMER GRÓTTU ER 170 www.grottasport.is G r ó t t u s í Ð a n www.grottasport.is Á dögunum færðu nokkrir ungir Gróttumenn félaginu styrk að fjárhæð ein milljón króna. Það var Lífsnautnafélagið Leifur sem færði félaginu þetta fjármagn en hópurinn samanstendur að mestu af drengjum af Seltjarnarnesi sem stunduðu íþróttir í Gróttu á árum áður. Þetta er fjórða árið í röð sem þessi hópur færir Gróttu veglega peningagjöf. Fjárhæðin safnaðist á árlegum gamlársfagnaði sem kallast Ljóminn og hefur verið haldinn af hópnum í íþróttamiðstöð Gróttu undanfarin ár. Grótta þakkar hópnum kærlega fyrir styrkinn sem kemur sér vel á viðburðaríku afmælisári félagsins. Ljóminn færir Gróttu veglega peningagjöf Grótta vann góðan sigur á Haukum í Olís-deild kvenna í handbolta á dögunum, 18-28, á Ásvöllum. Sigurinn er afar mikilvægur hjá Íslandsmeistaraliði Gróttu sem fara fyrir vikið upp í 5. sæti deildarinnar og eiga góða möguleika á að komast í úrslitakeppnina í lok leiktíðar eftir slæma byrjun á tímabilinu. Gróttukonur hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og eru í 5. sæti Olís-deildar kvenna með 17 stig, jafn mörg og ÍBV sem situr í 4. sætinu. Fjögur efstu lið deildarinnar komast í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni en í þeim mætir Grótta m.a. botnliðunum tveimur, Selfossi og Fylki. Eiga góða möguleika Sími: 588 9705 www.skautaholl.is Opnunartímar: Mánud., Þriðjud. og Miðvikud. 13:00 til 15:00. Fimmtudaga 13:00 til 15:00 og 17:00 til 19:30. Föstudaga 13:00 til 19:00. Laugardaga og Sunnudaga 13:00 til 18:00. Skólar og sérhópar: Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00. www.likamioglifsstill.is Þegar þetta er skrifað hefur meistarflokkur karla í handbolta unnið tvo frábæra sigra fyrst gegn toppliði Hauka og svo vann Grótta annan frábæran sigur gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ, 32:31, í 23. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Grótta komst með sigrinum upp í 6. sæti og er með 20 stig, tveimur stigum á eftir Val og fjórum stigum frá botninum. Grótta hefur alls unnið fjóra leiki á þessu ári og stigið stórt skref í áttina að því að bjarga sér frá falli. Frábærir sigrar Meistaraflokkur kvenna í handbolta: Meistaraflokkur karla í handbolta:

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.