Vesturbæjarblaðið - jun 2015, Qupperneq 15
15VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2015
KR-síÐan
GETRaUnanÚMER
KR ER 107
Allir íslensku borðdómararnir í borðtennis-
keppni Smáþjóðaleikanna voru úr KR. Dómararnir
voru Finnur Hrafn Jónsson, Guðrún Ólafsdóttir,
Hannes Guðrúnarson, Hrafnhildur Ásta
Þorvaldsdóttir, Jóhannes Bjarki Urbancic og Pétur
Marteinn Urbancic Tómasson.
Hlöðver Steini Hlöðversson var fjölmiðlafulltrúi
í borðtenniskeppninni auk þess að vera
aðstoðarmótsstjóri. Kári Mímisson var tæknistjóri
og Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir sá um skipulag
verðlaunaafhendinga. Aldís Rún Lárusdóttir gegndi
lykilhlutverki í skipulagningu borðtenniskeppninnar,
auk þess að vera keppandi ásamt Davíð Jónssyni
og Guðrúnu G Björnsdóttur. Þá var fjöldi KR-inga í
hlutverki annarra sjálfboðaliða í borðtenniskeppni
leikanna.
KR-ingar í lykilhlutverki
KR hafði betur í leik við
Stjörnuna í Garðabæ á þriðju-
dagskvöld í lokaleik níundu
umferðar úrvalsdeildar karla í
knattspyrnu. Ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik en um
miðjan síðari hálfleik skoraði
Almarr Ormarsson fyrir KR.
Ekki voru skoruð fleiri mörk í
leiknum sem lauk með 1-0 fyrir
KR. KR er því í þriðja sæti deild-
ar inn ar með 17 stig, þrem ur
stig um frá toppn um, en Stjarn an
með 12 stig í 6. sæti.
Þrátt fyrir markaleysi var fyrri
hálfleik ur fjör ug ur og bæði lið
fengu færi til að skora. Síðari
hálfleikurinn var hins vegar
mun fjörugri. Eftir mark Almarrs
upphófst enn meira fjör. Í frétt
RÚV um leikinn kemur fram
að Stefán Logi Magnús son,
markvörður KR hafi leikið sér að
eld in um þegar hann hafi gefið
sér góðan tíma til að taka upp
bolt ann og misst hann síðan
hann til Ólafs Karls Finsen sem
þó náði ekki að koma skoti á
markið en féll við í teign um þegar
Stefán Logi kastaði sér á eft ir
bolt an um. Er lend ur Ei ríks son
dóm ari dæmdi þá auka spyrnu á
Ólaf Karl vegna þess að Stefán
Logi hefði verið kom inn með
hend ur á bolt ann í upp hafi þegar
Ólaf ur Karl náði hon um. Stjörnu-
menn voru æfir og viss ir um að
Stefán ætti að fá rautt spjald og
Stjarn an víta spyrnu en svo fór
þó ekki. Engu að síðuð sauð upp
úr á þess um tíma punkti. Kort eri
fyr ir leiks lok fékk Gunn ar Nielsen
rauða spjaldið þegar hann
stöðvaði bolt ann utan víta teigs
með hendi þegar Almarr var
að elta stungu send ingu. Einum
manni færri reyndu Stjörnu menn
að jafna met in und ir lok in en
höfðu ekki er indi sem erfiði og
sig ur KR í höfn.
KR í þriðja sæti með 17 stig
eftir góðan sigur á Stjörnunni
KR-ingar í baráttunni við Stjörnumenn.
heitur matur
í hádeginu
og á kvöldin
taktu meÐ
borÐaÐu á staÐnum
eða
Alvöru matur
eða
Körfuknattleiksdeild KR hefur gengið frá
samningi við Björn Einarsson og mun hann
þjálfa meistaraflokk kvenna næstu tvö árin.
Björn hefur getið sér gott orð fyrir þjálfun yngri
flokka í Keflavík en mun nú stíga sín fyrstu skref í
meistaraflokksþjálfun.
Eftirfarandi viðtal birtist á karfan.is
Hvað kom það til að þú ákvaðst að taka við KR?
Gott tækifæri á hárréttum tíma til að þjálfa í
Úrvalsdeild.
Hvernig sérðu liðið fyrir þér?
Hópurinn verður nokkurn veginn sá sami og í
fyrra eins og staðan er í dag. Annars er þetta allt í
vinnslu og verður vonandi allt komið á hreint sem
fyrst.
Hverskonar breytingar koma með þér sem þjálfara?
Kem inn með meir i metnað, aga og
hugarfarsbreytingu!
Við ætlum okkur klárlega að gera mun betur en í
fyrra. KR á aldrei að vera í botnbaráttu.
Hvernig körfubolta ætlar KR að spila næsta season?
Agaðan og skipulagðan körfubolta. Það sem ég
ætlast til af þeim sem munu klæðast KR treyjunni
næsta vetur er að þær mæti í alla leiki til að leggja
sig fram 150%, skutli sér í alla lausa bolta, spili
hörku vörn og leggi allt í sölurnar.
Kemur ekkert annað til greina!
Verður það run-gun Keflavíkurbolti?
Tel það ólíklegt en hver veit.
Ef þú fengir að velja 2 leikmenn til að byggja á (úr
öðru liði), hverjar væru það þá og afhverju?
Myndi velja stelpurnar sem eru nú þegar í KR nr
1,2 og 3.
Annars eru allir leikmenn velkomnir til mín í KR!
Var ekkert erfitt að svíkja lit fyrir hið svarthvíta?
Enginn að svíkja neinn. Ég er að gera þetta á
réttum forsendum og hlakka til næstu tveggja
tímabila. Er búinn að standa mína plikt og rúmlega
það í Keflavík undanfarin 5 ár. Það var einfaldlega
kominn tími á nýtt “challenge” og þ.a.l. tel ég þetta
vera góða ákvörðun fyrir bæði mig og KR. Vann með
ótrúlega flottum leikmönnum í Keflavík og mun án
efa sakna þeirra, en núna er sá kafli búinn í bili og
nýtt ævintýri hefst með KR!
Björn Einarsson ráðinn þjálfari
meistaraflokks kvenna
Á myndinni má einnig sjá Sigurð Val Sverrisson,
formann Borðtennissambands Íslands, Árna Siem-
sen aðstoðaryfirdómara og Ástu M. Urbancic,
mótsstjóra úr KR.
Mynd: Hlöðver Steini Hlöðversson.
Björn Einarsson ásamt leikmönnum mfl. kvenna.
Þú færð KR
vörurnar í
Jóa útherja
Áfram KR
Ármúli 36 • Reykjavík 108
S: 588 1560