Vesturbæjarblaðið - jun 2016, Qupperneq 5

Vesturbæjarblaðið - jun 2016, Qupperneq 5
5VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2016 ég man enn skelfingarsvipinn á sumu fólki þegar ég bar þetta erindi upp. Sumir umhverfðust hreinlega því vestræn samvinna átti sér mikið fylgi i þessum bæjarhluta. Þarna sá ég að það eina í stöðunni gegn herstöðinni væri að gerast kommúnisti. Ég gekk þá í Æskulýðsfylkinguna sem var hálfgerður útivistarhópur þar sem ekki var rætt mikið um pólitík. Þarna var fólk sem var í eðli sínu jafnaðarmenn – jafnvel hreinir kratar en áttu enga samleið sem Alþýðuflokknum sem var í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn - flokkinn sem studdi hersetuna hvað fastast. Snemma á áttunda áratugnum fóru menn að koma heim frá námi á Norðurlöndunum sem höfðu kynnst ýmsum vinstri hreyfingum þar. Trodskyistar komu frá Svíþjóð og Maóistar sem lögðu Rauða kver og kenningar hins kínverska Maó formanns til grundvallar lífsskoðun sinni komu heim frá Noregi. Maóistarnir lögðu Fylkinguna næstum undir sig um tíma. Ég samdi lítið rit sem ég kallaði Kommúnismi eða kreddutrú 1976 og gaf það út sjálfur. Ég gerði þetta af vanefnum. Hannaði það í fjölritunarstofunni í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem ég kenndi á þeim tíma og það seldist fremur lítið. Um þetta leyti fór ég að kynna hér hugmyndir Trodsky is ta og snerist á sveif með þeim. Taldi að Trodskyisminn kæmist næst hinum hreina Marxisma eins og hann kemur fram í ritum Karls Marx. Fylkingin var orðin nokkuð Trodskysk á þessum tíma og þegar ég kom til Frakklands árið 1980 leitaði ég upp hóp þeirra og gekk í lið með þeim þótt mér fyndust Frakkarnir vera nokkuð kreddufullir – voru með alveg ákveðnar skoðanir á stjórnmálum og á heimsmálunum og lítinn sveigjanleika að finna í hugarheimi þeirra. Í Danmörku gekk ég til liðs við SAP Socialistisk Arbejederparti. Þetta eru fámenn samtök. Telja líklega um eitt hundrað manns. Þetta er svona samband heimilisleysingja á vinstri vængnum á Danmörku. Náði þó að fá sex menn kjörna á danska þingið þegar best lét.“ Skrifaði um Guðberg og er að ljúka við bók um Thor Örn starfaði í Osló um þriggja ára skeið en hélt þá aftur til Kaupmannahafnar 1997 þar sem hann hefur dvalið síðan eða í tvo áratugi. Hann segir það hafa verið gaman að staldra við í Osló og fá tækifæri til þess að kynnast Norðmönnum. Eftir Noregsdvölina hefur Örn aðallega sinnt ritstörfum og fengist nokkuð við þýðingar. Hann starfaði meðal annars sem dómtúlkur í málum nokkurra Íslendinga sem náðust við að flytja eiturlyf frá Hollandi. En snúum okkur að bókunum sem Örn hefur ritað. „Já – árið 1992 kom út bókin Kóralforspil hafsins þar sem ég fjalla um módernisma í íslenskum bókmenntun og Seiðblátt hafið kom út árið 2008.“ Örn hefur einnig ritað bók um Guðberg Bergsson rithöfund og verk hans og er nú að leggja lokahönd á bók um Thor Vilhjálmsson svo nokkurra sé getið. „Ég man að ég hitti Guðberg einhverju sinni í Austurstrætinu þegar ég var að skrifa bókina um hann. Ég hafði einhverju sinni skrifað gagnrýni um hann í DV sem ég veit ekki hvort hann var ánægður með. En þarna tókum við tal saman og ég sagði honum frá því að ég væri að endurlesa bækur hans mér til mikillar ánægju, sem tók mig nærri þrjú ár og væri í miðjum bókarskrifum. Guðbergur er auk þess að vera afkastamikill rithöfundur einn fremsti þýðandi þjóðarinnar og hefur meðal annars gert bókmenntir frá hinum spænskumælandi heimi aðgengilegar Íslendingum. Bókin um Guðberg var um 300 blaðsíður en ég geri ráð fyrir að bókin um Thor verði um 180 síður. Það er gaman að skrifa um Thor en erfitt að nálgast sumar bóka hans einkum þær eldri.“ Hún kom og síðan höfum við verið saman Örn kynntist síðari konu sinni Peries í Danmörku en hún er frá Kenía í Afríku. Hvernig bar það til að afrísk kona varð fyrir valinu. „Það er saga að segja frá því,“ segir Örn og lítur brosmildur upp. „Ég hafði ekkert verið að velta því fyrir mér að eignast konu aftur en fór svo að hugsa um að maður ætti kannski að fara út og leita einhvers félagsskapar stað þess að sitja heima og horfa á sjónvarpið. Ég ákvað að rölta út á kaffihús kvöld nokkurt í því skini að hitta ef til vill eitthvert fólk. Þegar ég kom þangað sátu tvær þeldökkar konur við borð. Ég gaf mig á tal við þær og spurði hvort ég mætti tylla mér hjá þeim. Ég náði í þrjá bjóra fyrir okkur og settist svo hjá þeim. Við áttum þarna ágætt spjall og mér tókst meðal annars að fá upp hjá annarri þeirra – þeirri sem mér leist betur á hvar hún ynni. Og svo hófst símatímabilið. Hún vann hjá Rauða krossinum og ég fór að hringja í hana. Í fyrstu vildi hún ekkert með mig hafa. Kannaðist varla við að við hefðum hist. En ég gafst ekki upp. Hringdi aftur og aftur í heila viku og að lokum kannaðist hún við að hafa hitt mig á kaffihúsinu sem að endingu leiddi til þess að hún féllst á að hitta mig aftur á sama stað. Hún kom og síðan höfum við verið saman.“ Nýtt að kynnast Kenía Örn segir að það hafi verið nýtt fyrir sér að kynnast Kenía. „Ég hef farið sex sinnum þangað og þetta er að mestu mjög fallegt land. Liggur við austurströnd Afríku og miðbaugurinn gengur í gegnum landið. Kenía er ívið stærra en Frakkland – um 580 þúsund ferkílómetrar að stærð og þar búa um 28 milljónir manna. Suðurhluti landsins er mjög gróðursæll og þar eru mun fleiri íbúar. Ég hef haft tækifæri til þess að kynnast fjölskyldu Peries og haft gaman af því og nú er ég reyna að læra swahili sem er bantu tungumál og talað um miðja autanverða Afríku einkum í Kenía, Uganda og Tansaníu. Kannski er ég orðinn of gamall til þess að takast á við nýtt og frábrugðið tungumál en ég hef mjög gaman af því,“ segir Örn Ólafsson um leið og hann yfirgefur Háskólatorgið og heldur út í regngrátt Reykjavíkurhádegið. Örn segir árin í Lyon hafa verið góð. Gott hafi verið að kynnast nýju umhverfi og gaman að fá innsýn í franska matargerð. Hér er hann við kvöldverðarborðið heima í Lyon ásamt Agli þá sjö ára og Ingibjörgu Ólafsdóttur fyrri konu sinni. Öll rúnstykki á 80 kr.stk Bergstaðastræti 13 - 101 Reykjavík - Sími 551 3083 - www.bernhoftsbakari.is Fagmenska tryggir gæðin

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.