Vesturbæjarblaðið - Jun 2016, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2016
Vo r i ð e r j a f n a n t í m i
bílaáhugamanna og þá líta
ýmiskonar fákar þeirra dagsins
ljós á götum borgarinnar. Á
meðal þeirra eru menn sem
hafa sérstaka ánægju af því
að láta bílana spóla með góðri
inngjöf á malbiki svo mikil
hljóð myndast þegar gúmmíið
í hjólbörðunum nuddast við
þurrt malbikið. Þessu fylgir
einnig kapp um hver kemst
fyrstur í mark þótt kappakstur
sé ekki alltaf fylgifiskur
spólaranna.
Spólararnir fara jafnan af stað
á kvöldin þegar önnur umferð
er að mestu hljóðnuð til þess
að eiga göturnar einir. Hávaði
og óhljóð sem þessu fylgja falla
ekki alltaf og reyndar sjaldnast
í kramið hjá íbúum borgarinnar
sem margir hverjir eru að ganga
til náða eða gengnir um það
leyti sem drunur vélfákanna
og spólískur hefjast. Einkum
hefur þessi hávaði pirrað íbúa
Vesturbæjarins að undanförnu
þótt víðar hafi verið spólað.
Hefur lögregla þurft að hafa
afskipti af ökumönnum sem
haldið hafa vöku fyrir íbúum
vestasta bæjarhluta og hefur
reiði blossað upp á meðal
íbúa sem tjá sig um málið á
samfélagsmiðlum. Þar segir að
ökumenn haldi vöku fyrir fólki
og spóli og spyrni víða um
hverfið.
Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi er einn þeirra sem
hefur tjáð sig um málið. Hann
segir þetta hafa gerst reglulega
í mörg ár og íbúar standi
ráðalausir gagnvart því. Einkum
hefur þetta verið vandamál á
hinu nýuppbyggða verslunar- og
þjónustusvæði í Ánanaustum
og Örfirisey. Lögreglan hefur
reynt að fylgjast með þessu
og sendi hún bíl á svæðin þar
sem spólið fer fram slái það á
akstursgræðgi ökuþóranna um
stund en allt fari í sama farið
þegar hún hverfur á braut.
Því miður hefur lögreglan ekki
nægilegan mannafla til þess
að fylgjast með þessu eins og
greinilega þarf. Akstursíþróttir
eru viðurkenndur hluti af
íþrótta- og keppnislífi en eiga
rétt eins og önnur íþróttaiðkun
að fara fram á sérstökum
svæðum sem til þess eru ætluð
en ekki á umferðargötum í
þjónustu- og íbúðahverfum.
Lögreglumenn ræða við spólglaða ökumenn í Örfirisey.
Umtalsverðar framkvæmdir
eru áætlaðar í byggingu atvinnu-
húsnæðis á næstu misserum í
mið- og vesturborginni. Byggt
verður upp 300 fermetra atvin-
nuhúsnæði á Nýlendureitnum
og 1.665 fermetra atvinnuhús-
næði á fyrstu hæð í Vesturbugt.
Þar verða einnig 170 til 176
íbúðir og hyggst borgin kaupa
74 þeir ra og kjallara sem
Bílastæðasjóður myndi eignast.
Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri segir að hvergi verði
gefið eftir í kröfum um gæði,
langtímahugsun, sjálfbærni,
og grænni hugsun um borg-
arþróun. Það sé alltaf eitthvað
mikið nýtt á meðan borgin er í
vexti og blóma eins og núna er.
Mikill vöxtur sé í ferðaþjónustu
sem kalli eftir atvinnuhúsnæði
fyrir gistingu en einnig rými fyrir
bílaleigur, matvælafyrirtæki og
samgöngufyrirtæki. Hann segir
að þau hótelverkefni sem unnin
hafi verið séu ekki nema um einn
tíundi hluti af því sem byggt sé
af íbúðahúsnæði. Hótel og veit-
ingahús hafi verið 5,8 prósent
af öllum framkvæmdum 2015
en fóru hæstu upp í rúmlega 12
prósent árin 2013 og 2014.
Um 2000 fermetra
atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði og íbúðir verða byggðar við Vesturbugt.
- verður byggt í Vesturbænum og um 170 íbúðir
Sangría fimmtudagar
RESTAURANT- BAR
PA
SSIO
N FR
UIT
CLASSICA CAVA BERRY Bakki af fjórum frábærum
mini Sangríum aðeins 2.990 kr.
Frábært til að deila og smakka
PA
SSIO
N FR
UIT
CLASSICA CAVA BERRY
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is
Spólgleði veldur
reiði í Vesturbænum
Foreldrar við leikskólann Gullborg hafa ákveðið
að stofna Hollvinafélag Leikskólans Gullborgar
sem mun m.a. standa fyrir fjáröflun fyrir skólann.
Í frétt frá hinu nýstofnaða félagi segir m.a.
að Leikskólar í Reykjavík hafi staðið frammi fyrir
miklum niðurskurði að undanförnu. Margir foreldrar
hafa lýst yfir áhuga á að styðja frekar við skólastarfið
m.a. með kaupum á leikföngum og fleiru svo unnt
sé að veita frekar fjármunum í starfsmannahald
og matarinnkaup, en gerð hefur verið krafa um
talsverðan niðurskurð á þeim sviðum.
Félagið er með facebook síðu, sem finna má með
því að leita að Hollvinafélagi Leikskólans Gullborgar
á facebook, og netfangið hollvinirlg@gmail.com.
Á facebook síðu félagsins munu birtast fréttir um
skólann og upplýsingar um þá söfnun sem verður í
gangi hverju sinni. Fyrsta söfnunin fyrir leikskólann
hefst von bráðar.
Foreldrar barna
á Gullborg stofna
hollvinafélag
Frá sumarhátíð á Gullborg.
AUGL†SINGASÍMI
511 1188