Vesturbæjarblaðið - jún. 2016, Qupperneq 8

Vesturbæjarblaðið - jún. 2016, Qupperneq 8
8 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2016 SVÍNVIRKAR FYRIR HÓPA SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is ELDHÚSIÐ ER OPIÐ 11.30–23.30 KJALLARINN á Sæta svíninu er ný og skemmtileg aðstaða fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum. KJALLARINN er frábær fyrir alls konar tilefni; hádegis- eða kvöldverð, veislur, vinnufundi, kokteilboð, bjórkvöld eða fyrir „Happy Hour“ eftir vinnu. FYRSTA FLOKKS AÐSTAÐA Í NOTALEGUM SAL • Sæti fyrir allt 60 manns – hægt er að taka á móti fleirum í standandi veislu • Skjávarpi og tjald • Tilvalið er að koma með eigin tónlist og/eða skemmtiatriði • Bar • Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur Í boði eru fjölbreyttar veitingar; girnilegir hópmatseðlar, spennandi veitingar fyrir standandi veislur og auðvitað fljótandi veigar. Við hlökkum til að taka á móti þínum hóp! GASTROPUB Þau tímamót urðu í vor í 60 ára sögu Neskirkju að s r. S t e inunn Ar nþrúður Björnsdóttir var ráðin prestur við kirkjuna og er hún þar með fyrsta prestvígða konan sem þar er skipuð til þjónustu. Svo skemmtilega vill til að fyrsta messa sr. Steinunnar við Neskirkju, verður 19. júní, á sjálfan kvenréttindadaginn. Messan mun bera svip dagsins, bæði í tónlist og tali og spurt verður um þátt trúar í réttinda- baráttu hópa sem eiga undir högg að sækja. Þá verður sjónum beint að konum sem eru flótta- menn og hælisleitendur. Með því svarar Neskirkja ákalli kirknaráðs Evrópu um að kirkjur um alla álfuna fjalli um og veki athygli á hlutskipti flóttafólks í messum 19. júní, daginn fyrir flótta- mannadag Sameinuðu þjóðanna. Að lokinni messu verður að vanda boðið upp á kaffisopa á Kirkjutorgi. Fyrsta messa séra Steinunnar í Neskirkju verður á kvennadaginn Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir er fyrsti kvenpresturinn í Neskirkju og mun flytja fyrstu messu sína í kirkjunni á kvennadaginn 19. júní. Þemadagar voru haldnir í Landakotsskóla í byrjun maí. Á þemadögunum var unnið með frelsishugtakið og fjögur mismunandi efni þess tekin til umfjöllunar. Þau voru rétturinn til þess að láta skoðanir sínar í ljósi, tjáningarfrelsið, skoðana- og trúfrelsi og félagafrelsi. Í fréttinni er stuðst við greinargerð tveggja nemenda við skólann sem tóku saman afrakstur þemadaganna. Á fyrsta degi var byrjað á því að setjast í hring. Börnin réttu upp hönd og sögðu hvað þau héldu að hver og ein grein þýddi. Síðan var útskýrt fyrir þeim efni hverrar greinar. Skrifað var niður hvað hver og einn sagði og það var sett upp á töflu þannig að börnin gætu séð hvaða hugmyndir komu fram. Síðan var börnunum skipt í fjóra hópa. Hver hópur fékk eina grein sem þau áttu að útfæra á plakat. Börnin réðu hvernig þau myndu setja verkefnið fram, annað hvort að teikna eða klippa út form. Einn í hópnum var skipaður ritari og sá um að skrifa lengri texta um greinina. Á öðrum degi komu börnin saman inni í stofu þar sem þau bjuggu til andlit og hendur, hugsanablöðrur og talblöðrur. Þau skrifuðu í blöðrurnar það sem tengdist þeirri grein sem þau voru að vinna með. Að því loknu fór einn hópurinn í video upptöku og sýndi það sem hann hefur verið að vinna með. Á þriðja degi luku allir við plaggötin sín og unnar voru videóupptökur Nemendur bjuggu til tré þar sem nöfn barnanna voru skrifuð á greinarnar. Síðan voru verkefni barnanna hengd upp. Fjallað um frelsishugtakið Þemadagar í Landakotsskóla Fermingar í Neskirkju Skráning hafin í s. 511 1560 eða á runar@neskirkja.is Sumarnámskeið 15. - 18. ágúst Ferð í Vatnaskóg 9. - 11. september Viðburðir og fræðsla allan veturinn Nánari upplýsingar á neskirkja.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.