Vesturbæjarblaðið - jun. 2016, Blaðsíða 10

Vesturbæjarblaðið - jun. 2016, Blaðsíða 10
10 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2016 www.borgarblod.is Óli Gunnar Gestsson heitir ungur Vesturbæingur sem fermdist í vor og ákvað að nota hluta fermingarpeninganna til að kaupa sláturorf svo hann væri betur búinn en á síðasta sumri þegar hann gekk í hús og bauð fólki að slá grasið fyrir þau fyrir litla greiðslu þar sem hann var að safna fyrir æfingaferð í körfubolta til Serbíu. Nú fer Óli Gunnar aftur í körfuboltaæfingarferð til Serbíu og hann ætlar sér að bjóða fólki sem hefur af einhverjum ástæðum ekki slegið grasið hjá sér eins og á síðasta sumri eða fólki sem ekki hafði sláttuvél að slá fyrir þau. Núna er hann mjög einbeittur og vill gera þetta mun betur en í fyrra og er til þess mjög vel undirbúinn með nýju vélina sína. Við skólaslit Hagaskóla útbjó hann auglýsingu með afrifum með farsímanúmeri sínu sem fólk gat ritið númerið af og geymt hjá sér hefði það áhuga á fá hann til þess að slá fyrir sig. Síðan fór hann um hverfið í kringum Melhaga og hengdi auglýsing upp auk þess sem hann fékk leyfi til þess að hengja upp auglýsingu í Melabúðinni. Foreldrarnir stoltir Faðir hans segist mjög stoltur af þessu framtaki. „Ég er sérstaklega ánægður með þetta framtak hans vegna þess að eftir veikindi sem ég varð fyrir fyrir nær þremur árum er ég óvinnufær og fjárráðin dregist saman samkvæmt því.“ Hann kvaðst vona að garðsláttuvélarmáli rætist hjá honum og að hann fái eitthvað að gera með nýju vélina. Hann ætti að geta unnið sér þá fjármuni sem hann lagði í sláttuvélina til baka og eitthvað fyrir Serbíuförinni. „Við lögðum nokkra vinnu í kaupin. Fórum á flesta staði sem selja sláttuvélar til þess að skoða og vanda valið og fyrir valinu varð vél sem nýtist bæði sem lítil sláttuvél og sláttuorf til þess snyrta kanta og með fram húsum svo fólk þurfi ekki að leggjast á fjórar fætur til þess að klippa grasið sem sláttuvélar ná auðvitað ekki til. Ég vona að með því að segja frá þessu framtaki hans geti það orðið til þess að aðrir krakkar líti aðeins upp frá tölvunum í sumarfríinu og finni sér fleiri viðfangsefni.“ Óli Gunnar slær fyrir Vesturbæinga Óli Gunnar Gestsson. Nýr blómasöluskáli rís við Birkimel Reisa á nýjan blómasöluskála við Birkimel en blóma- söluskálinn þar sem Blómatorg hefur verið til húsa er horfinn. Húsin voru rifin nýlega en til stendur að byggja um 75 fermetra átthyrnt hús á lóðinni. Ætlunin er að selja blóm í hinu nýja húsi þegar það verður komið upp en Sigurður Þórir Sigurðsson eigandi Blómatorgs hefur komið fyrir gám á lóðinni þaðan sem hann ætar að veita Vesturbæingum og öðrum þjónustu á meðan nýja húsið verður í byggingu. Blómasöluskálinn á sér langa sögu. Sigurður Guðmundsson garðyrkjumaður faðir Sigurðar Þóris byggði húsið og var fyrri hluti þess reistur 1949 en hinn síðari 1955. Lengi var rekin sjoppa í þeim hluta eða allt fram til ársins 2000 undir heitinu Birkistaurinn. Blómasala hefur farið fram á horni Birkimels og Hringbrautar í 67 ár og mun verða framhaldið í nýju húsi þegar það verður risið. Blómaskúrinn við Birkimel. Hér hafa Vesturbæingar verslað blóm í á sjöunda áratug og keypt kók og prins póló um langt árabil en sjoppurekstrinum var hætt um síðustu aldamót. Nú hafa skúrarnir vikið og nýtt blómasöluhús mun rísa á lóðinni. SUÐURSTRÖND 10, SELTJARNARNESI Ný heimasíða: www.systrasamlagid.is www.facebook.com/Systrasamlagid Sími: 511 6367 AFGREIÐSLUTÍMI: Mjúkir mánudagar: 10 - 18. Þri. - fös.: 9 - 18. Laugardagar: 10 - 16. Draumur á Jónsmessunótt FLOTHETTAN – fyrir draumkennt sumar! „Ég get ekki talað nógu fallega um Sveita- Samflotin og Flothettuna hennar Unnar Valdísar.” Thelma Björk jógakennari. LÆKKAÐ VERÐ: 16.500 kr. LÍFRÆNN ESPRESSÓBAR! Súrdeigssamlokur, þeytingar, Acai skál, chiagrautar, croissant, kökur og margt, margt fleira. Alltaf úr besta hráefninu. MÖNTRU ARMBÖND – fallegasta útskriftargjöfin? Silfruð, gyllt, rósagull. Einstakt veganesti út í lífið. Gefandi möntrur/þulur/orð. Verð: 6.500/7500 kr. - annað árið sem hann stundar garðslátt í Vesturbænum og vinnur sér fyrir körfuboltaferð til Serbíu.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.