Vesturbæjarblaðið - jun. 2016, Síða 16

Vesturbæjarblaðið - jun. 2016, Síða 16
16 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2016 Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í heilt ár í JL húsinu og nú í maí opnuðu Oddsson hostel og veitingastaðurinn Bazaar dyr sínar fyrir gestum. Bazaar teygir sig eftir endilan- gri 1. hæð með kaffihúsi, bar og veitingastað sem mætir ólíkum þörfum gesta yfir daginn. Kaffi- húsið hefur á boðstólum kaffi frá Kaf fitár, heilsusamlega smoothies og gómsætt bakkelsi frá 7:00 á morgnana og fram að kvöldi. Aðstaðan er frábær hvort sem gestir mæla sér mót við vini eða viðskiptafélaga eða eru að leita eftir friði til að vinna með far- tölvu eða einfaldlega til að njóta útsýnis yfir Esjuna yfir kaffibolla í amstri dagsins. Matur og vín á heimsmælikvarða Undir áhrifum matargerðar frá Miðjarðarhafinu býður Bazaar gestum upp á girnilegan Bistro matseðil í hádeginu og glæsilegan kvöldseðil þegar líður á daginn. Ekta ítalskar pizzur, heimagert pasta og hamborgari með truffle frönskum er þar m.a. að finna. Hinn margreyndi landsliðskokkur, Eyþór Rúnarsson er enginn auk- vissi þegar kemur að matargerð og vinnur hann jöfnum höndum að elda úr fiski, kjöti og grænmeti. Eyþór hefur víðtæka reynslu bæði hérlendis og frá Michelin stöðum í Danmörku og fór fyrir kokkalandsliðinu um árabil. Eyþór var yfirmatreiðslumaður á Gló áður en hann gekk til liðs við Bazaar, hann er því á heimavelli þegar kemur að grænmetisrét- tum og hollustu. Bazaar státar af góðu úrvali vína þar sem er að finna sjaldgæf vín í bland við mar- grómuð verðlaunavín frá Ítalíu. Lifandi tónlist og Karaoke Á sólardögum er tilvalið að setjast á pallinn í portinu hvort sem er í mat eða kaffi. Að sögn Guðjóns Þórs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Bazaars, hefur verið ánægjulegt að sjá bæði Vesturbæinga sem og aðra gesti, unga sem aldna, koma til að sjá þá andlitslyftingu sem gerð hefur verið á stað sem allir Reykvík- ingar þekkja vel. “Fyrstu vikurn- ar hafa sýnt það að JL húsið þjónar enn í dag breiðum hópi viðskiptavina eins og það hefur gert í áratugi.” Alla daga á milli klukkan 16 og 18 er “Happy hour” á barnum en hann er brú á milli kaffihússins og veitingastaðarins. Á fimmtudags- kvöldum er alltaf lifandi tónlist og barþjónar hrista framandi kok- teila öll kvöld. Fyrir þá sem vilja þenja eigin raddbönd þá er hægt að taka Karaoke herbergið á leigu bæði fyrir smáa sem stóra hópa. Brunch um helgar Um helgar bregður Bazaar sér í annan búning og framreiðir brunch á milli 11.30 og 15:00 bæði laugardaga og sunnudaga. Þá er hægt að gera sér steik með bernaise að góðu, glæsilega eggjarétti og ef gestir vilja eitt- hvað sætara, að fá sér klassískar amerískar pönnukökur með hlynsýrópi. Bazaar nýr veitinga- staður í JL húsinu Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR Komdu við á APOTEK KITCHEN+BAR og taktu með þér úrvals steikur og hamborgara í grillveisluna. ALVÖRU STEIKUR OG BORGARAR SEM ÞÚ ELDAR HEIMA! Gott er að panta með dags fyrirvara í síma 551 0011 eða senda póst á apotek@apotekrestaurant.is. Einnig er hægt að prufa að hring ja samdægurs ef upp kemur skyndileg grillþörf. STEIKUR • Rib eye u.þ.b. 350g 5.900 kr./kg • Nautalund u.þ.b. 250g 5.900 kr./kg • Prime T-bone, 30 daga dry-aged, u.þ.b. 600g 8.900 kr./kg • Prime NY strip steik, 30 daga dry-aged, u.þ.b. 450g 8.900 kr./kg • Dry-aged rib eye, 60 daga, u.þ.b. 350g 13.900 kr./kg • Prime rib eye, 280 daga kornfóðrað, u.þ.b. 350g 9.900 kr./kg HAMBORGARAPAKKINN • Fjórir 175g Apotek borgarar úr sérvaldri rumpsteik og ri§um • Fjögur heimabökuð brioche-brauð 2.500 kr. STEIKAR- OG HAMBORGARAPAKKINN • Tvær nautalundir u.þ.b 250g/stk. • Tveir 175g Apotek borgarar úr sérvaldri rumpsteik og ri§um • Tvö heimabökuð brioche-brauð 4.500 kr. Guðjón Ingi skrifar og gefur út bók um Lars Lagerbäck Lars Lagerbäck og íslenskan landsliðið heitir nýútkomin bók eftir Guðjón Inga Eiríksson. Í henni er rakinn ferill hins sænska landsliðsþjálfara Íslands áður en hann tók við landsliðsþjálfarastarfi Íslands, fjallað um aðdragandann að ráðningu hans hingað til lands og um samstarf og verkaskiptingu hans og Heimis Hallgrímssonar, uppbyggingu blaðamanna- og liðsfunda þeirra og farið yfir alla landsleiki Íslands, allt frá því að þeir tóku þar við stjórn og fram að þeim síðustu. Er þá fátt upp talið, en bókin er í senn bæði skemmtileg og fræðandi. Formála að bókinni ritar Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska karlalandsliðsins í handbolta, sem varð Evrópumeistari undir hans stjórn í janúar síðastliðnum. Þar kemur hann m.a. inn á hugarfar sigurvegarans og ættu allir sem tengjast íþróttum og fyrirtækjarekstri að lesa það sem hann hefur fram að færa – vilji þeir á annað borð vera í sigurliði. Það er Bókaútgáfan Hólar í Breiðholti sem gefur bókina út. Kápa bókar Guðjóns Inga um Lars Lagerbäck.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.