Vesturbæjarblaðið - jun. 2016, Síða 19

Vesturbæjarblaðið - jun. 2016, Síða 19
19VesturbæjarblaðiðJÚNÍ 2016 KR-síÐan Handknattleiksdeild KR mun bjóða upp á veglegan Handboltaskóla nú í ágúst fyrir börn fædd 2004 til 2010. Allir eru velkomnir í skólann og byrjendur hvattir sérstaklega til að mæta. Námskeiðið hefst 8. ágúst og verður krökkum skipt upp eftir aldri til að koma til móts við þarfir allra. Áhersla verður lögð á tækniæfingar bæði út frá varnar- og sóknarleik. Einnig á skot- og gabbhreyfingar, leiki og spil. Brjáluð skemmtun allan tímann þar sem allir eiga finna eitthvað við sitt hæfi, segir í frétt frá KR. Grillveisla verður haldin í lok námskeiðsins þann 19. ágúst þar sem öllum þátttakendum er boðið. Æfingarnar fara fram á milli kl. 09.00 og 12.00 og boðið verður upp á barnagæslu frá kl. 08.30. Skólastjóri námskeiðsins verður Ágúst Jóhannsson, þjálfari mfl. karla og fyrrverandi landsliðsþjálfari. Þjálfarar á námskeiðinu verða þjálfarar yngri flokka félagsins og þeim til aðstoðar verða leikmenn meistaraflokks karla. Hvor vika kostar fimm þúsund krónur eða báðar tíu þúsund. Handboltaskóli KR í ágúst GETRaUnanÚMER KR ER 107 Ágúst Þór Jóhannsson hefur verið ráðinn sem þjálfari meista- raflokks karla í handknattleik hjá KR en auk þess mun Ágúst starfa sem yfirþjálfari yngri flokka handknattleiksdeildarinnar. Allir sem koma að málum hjá handknattleiksdeild KR eru afar spenntir fyrir samstarfinu við Ágúst. Segja má að þjálfarinn sé kominn heim á ný en Ágúst er uppalinn KR-ingur og lék fjölmarga leiki fyrir félagið í handknattleik, bæði í yngri flokkum og meistara- f lokki, ásamt því að sinna þjálfun hjá félaginu. Ágúst hefur gríðarlega reynslu sem þjálfari og mun koma hans án efa verða félaginu mikil lyftistöng. Nýjir leikmenn Nokkrir nýir liðsmenn hafa bæst í raðir Handknattleiksdeildar KR á þessu vori. Arnar Jón Agnarsson hefur undirritað tveggja ára samning við handknattleiksdeild KR. Arnar Jón þarf vart að kynna fyrir KR-ingum enda hefur hann verið í félaginu sl. fjögur ár bæði sem þjálfari og leikmaður. Arnar Jón býr yfir geysilega mikilli reynslu sem leikmaður og hefur komið víða við. Arnar Jón, sem er uppalinn hjá Breiðabliki hefur meðal annars leikið í Noregi og svo með Stjörnunni, Haukum og KR hér á landi. Sigurbjörn Markússon H a n d k n a t t l e i k s d e i l d K R hefur náð samkomulagi við Sigurbjörn Markússon, en hann hefur gert tveggja ára samning við KR. Sigurbjörn er 19 ára og uppalinn KR-ingur. Hann spilar sem línumaður og er einnig mjög góður varnarmaður. Sigurbjörn er f ramtíðar le ikmaður hjá KR og hefur verið viðloðandi unglingalandslið Íslands. Friðgeir Elí og Þórir Jökull Tveir nýir leikmenn munu bætast við leikmannahóp félagsins fyrir komandi keppnistímabil. Þeir Friðgeir Elí Jónasson og Þórir Jökull Finnbogason hafa báðir gert tveggja ára samning við handknat- tleiksdeild KR. Friðgeir Elí sem er 28 ára lék síðast með Gróttu en hefur einnig leikið með Fram. Hann er örvhentur hornamaður sem getur einnig leikið sem skytta. Friðgeir hefur leikið rúmlega 100 leiki í meistaraflokki og á eftir að nýtast liðinu vel. Þórir Jökull er einnig 28 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril með Gróttu að undanskildu einu keppnistímabili þar sem hann lék með Molde í Noregi. Þórir Jökull getur bæði leikið sem skytta og hornamaður og er gríðarlega útsjónarsamur leikmaður. Þórir Jökull býr yfir mikill reynslu en hann hefur leikið tæplega 200 leiki í meistaraflokki. Enn bætist í hópinn Handknattleiksdeild KR hefur náð samkomulagi við Hrafn Valdísarson, en hann hefur gert tveggja ára samning við KR. Hrafn er 22 ára og spilar stöðu markmanns. Hrafn er uppalinn Stjörnumaður, en spilaði með KR á síðasta tímabili. Hrafn var fyrirliði félagsins og er mjög mikilvægur hlekkur í framtíðaruppbyggingu KR. -nýir liðsmenn hjá KR Ágúst Þór Jóhannsson ásamt Björgvini Frey Vilhjálmssyni, formanni handknattleiksdeildar KR. Ágúst Jóhannsson ráðinn þjálfari meistaraflokks Handknattleiksdeild KR Sigurður Þorvaldsson genginn í KR KR hefur gengið frá tveggja ár samningi við framherjann Sigurð Þorvaldsson. Sigurður hefur leikið undanfarin ár með Snæfelli og vann þar einn Íslandsmeistaratitil og tvo bikar- meistaratitla. Sigurður skoraði 14 stig og tók 6 fráköst að meðaltali á leik á síðasta keppnistímabili. Hann hefur leikið fjölda land- sleikja með A-landsliði Íslands og yngri landsliðum. Við bjóðum Sigurð hjartanlega velkominn í Vesturbæinn. Körfuknattleiksdeild KR Sigurður Þorvaldsson. Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 Söfnunarkassar í Vesturbænum eru m.a. við: Sundlaugina • Shell • Skátaheimili – gefðu okkur tækifæri!

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.