Vesturbæjarblaðið - des. 2017, Blaðsíða 12
12 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2017
Risin er sex hæða nýbygging
við Tryggvagötu 13 við hlið
Borgarbókasafnsins. Safnið
fær aukið rými í byggingunni
en margvísleg starfsemi verður
í húsinu.
Verslunar- og þjónustuhúsnæði
er á fyrstu hæð en íbúðir og
skrifstofurými á efri hæðum. Um
er að ræða 38 íbúðir í húsinu, allt
frá 55 fermetra stúdíóíbúðum upp
í rúmlega 160 fermetra íbúðir.
Húsið er í samræmi við byggingar
sem fyrir eru á reitnum. Það mun
einnig rúma aukna starfsemi og
þjónustu Borgarbókasafnsins
auk þess sem aðgengismál verða
stórbætt í safninu.
Nýbygging við Tryggvagötu
Nýbyggingin við Tryggvagötu 13.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
ÞORLÁKSMESSUSKATA
Verbúð 8 við Geirsgötu, 101 Reykjavík, Sími 553 1500
Frá 17. des. bjóðum við upp á upp á skötu alla daga frá
hádegi til kvölds fram að jólum, kr. 2.350.- fyrir manninn.
Pantið tímanlega fyrir Þorláksmessuna því
færri komast að en vilja. Pöntunarsími 553 1500.
Munið heimasíðuna
www.saegreifinn.is
Eins og undanfarin ár verður völdum götum í miðborginni
breytt í göngugötur hluta úr aðventunni. Tímabil göngugatna í ár
helst í hendur við lengdan afgreiðslutíma verslana í miðborginni
og verður því að þessu sinni frá 14. til 23. desember.
Göngugötusvæðið verður eins og áður Laugavegur og
Bankastræti milli Vatnsstígs og Þingholtsstrætis, Skólavörðustígur
neðan Bergstaðastrætis, Pósthússtræti milli Kirkjustrætis og
Hafnarstrætis og Austurstrætið ásamt Veltusundi og Vallarstræti.
Í frétt frá Reykjavíkurborg segir að aðventan sé vinsæll árstími
í miðborginni og eftir því sem nær líði að jólum megi búast við
miklum fjölda fólks í miðborginni, til að versla, sækja menningu
og viðburði eða gera vel við sig á annan hátt í undirbúningi
hátíðarhaldanna. Nokkurrar óánægju hefur gætt á meðal
verslanaeigenda einkum við neðanverðan Skólavörðustíg og
Laugaveg með að loka fyrir bílaumferð og vilja þeir meina að
lokanirnar fæli fólk frá Miðborginni.
Göngugötur í miðborginni á aðventu
Gangandi vegfarendur fá að njóta sín í mið-
borginni á aðventunni því allar helgar til
jóla verða valdar götur göngugötur frá kl.
13 á laugardegi til kl. 8 á mánudagsmorgni.
Á Þorláksmessu og á aðfangadag verða
göngugötur opnar frá klukkan 15.00.
Gómsæti í göngufæri
Geirsgata 1 • Sími 511 1888