Vesturbæjarblaðið - dec 2017, Qupperneq 24

Vesturbæjarblaðið - dec 2017, Qupperneq 24
24 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2017 Sjúkraþjálfun Reykjavíkur flutti í Ellingsenhúsið við Fiskislóð fyrir nokkru. Vesturbjarblaðið spjallaði við Gauta Grétarsson sjúkraþjálfara af því tilefni og spurði hann fyrst um aðstöðuna sem hann segir bæði betri og stærri. Húsnæðið við Fiskislóð sé mun rýmra en fyrra húsnæði sem var í Héðinshúsinu við Seljaveg og gefi þannig meiri möguleika í þjálfun bæði einstaklinga og hópa. “Frá því að við hófum starfsemi fyrir 29 árum höfum við verið í fararbroddi þess að vinna að forvörnum hvers konar bæði fyrir íþróttahreyfinguna, fyrirtæki og einnig fyrir almenning,” segir Gauti. “Þegar litið er til þess að mikil aukning hefur verið í álagseinkennum ýmis konar á undanförnum árum er mikilvægt að geta boðið upp á fjölbreytta viðgerðarmöguleika á líkamanum. Gauti segir að á næstu árum sé ljóst að öldruðum mun fjölga verulega. “Mikil umræða hefur verið að undanförnu um að fjölga elli – og hjúkrunarheimilum. Ég tel að með samstilltu átaki sé hægt að bæta líkamsástand þeirra sem eru 55 ára og eldri þannig að líkur á að þeir þurfi að fara á hjúkrunarheimili í framtíðinni verði minni. Þekking okkar á öldrun og leiðum til að hægja á henni er miklu meiri en hún var fyrir 10 til 20 árum síðan. Með því að nota þær aðferðir sem við þekkjum er hægt að bæta jafnvægi, vöðvastyrk og úthald fólks á öllum aldri og þannig auka lífsgæði þess, ekki bara núna heldur einnig í framtíðinni. Hér hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur bjóðum við upp á bæði þjálfun í hópum en einnig einstaklingsþjálfun sem miðar að því að bæta hreyfigetu fólks og koma þannig í veg fyrir sjúkdóma og ótímabæra hrörnun.” Mun sykursýki 2 tilfellum fjölga í framtíðinni Gauti segir að samhliða aukinni offitu og hreyfingarleysi muni þeim sem þróa með sér sykursýki 2 fjölga verulega í framtíðinni. “Með því að grípa inn í sjúkdómsferli snemma er hægt að koma í veg fyrir og hægja á þróun þessa skelfilega sjúkdóms sem kostar mikla skerðingu á lífsgæðum, hreyfigetu og orsakar marga sjúkdóma sem dýrt er að vinna á. Einnig þarf að huga mikla fjölgun stoðkerfiseinkenna. Helstu stoðkerfisvandamál fólks má rekja til lífsstíls og áverka sem fólk verður fyrir á fyrri hluta æviskeiðs. Áverkar eins og krossbandaslit í hné valda ekki bara tímabundinni skerðingu heldur geta þessir áverkar einnig haft áhrif á að meiri líkur eru á sliti á hnéliðnum sem leiðir til þess að viðkomandi þarf að fá gervilið í hné síðar á lífsleiðinni.” Gauti segir að skipta megi hreyfingu í tvennt. “Annars vegar tölum við um frjálsan leik og hins vegar kerfisbundna þjálfun. Kerfisbundin þjálfun er oftast mjög einhæf og eftir því sem fólk stundar þessa einhæfu þjálfun oftar eru afleiðingarnar oft slæmar. Tökum sem dæmi krakka sem stundar eina íþrótt 5 sinnum í viku. Vegna þessa mikla æfingamagns telja foreldrar að hreyfiþörf barnsins sé fullnægt. Þess vegna finnst þeim í lagi að keyra krakkann í skólann, á æfingar og allt sem krakkinn þarf að fara og hvetur barnið síður til að fara út að leika sér. Frjáls leikur okkar fullorðna fólksins er að fara gangandi á milli staða, taka lyftu upp á milli hæða, taka til og ryksuga heima hjá sér og stunda fjölbreytta hreyfingu eins og sund, fjallgöngur, slá garðinn og fleira. Þess í stað telur fólk að nóg sé að fara í jóga, fara í spinning tíma eða lyfta lóðum sem er í rauninni mjög einhæf þjálfun og svarar ekki öllum þeim þörfum sem líkaminn þarfnast til að viðhalda og bæta líkamlegt atgervi.” Tölvu- og farsímanotkun veldur skaða Gauti segir að oft sé fólk ekki að velja sér hreyfingu og að afleiðingar kyrrsetu og tölvuumhverfis birtist víða. “Afleiðingar kyrrsetu og slæmar setstöður, hafa áhrif á bak, hálseinkenni og axlir. Mikil tölvu- og farsímanotkun veldur mun meiri skaða en fólk gerir sér grein fyrir. Þannig hefur staðan á hálsinum þegar höfuðið er hallandi fram áhrif á djúpöndun þannig að þindin sem stjórnar önduninni fær ekki nægilega örvun sem hefur afleiðingar á súrefnisupptöku og þannig á marga hluti tilverunnar.” Þjálfun fyrir alla aldurshópa En hvað er til ráða. “Hjá okkur bjóðum við upp á þjálfun fyrir alla aldurshópa og ekki eingöngu fyrir þá sem eru með sjúkdóma eða kvilla heldur einnig fyrir einstaklinga sem vilja bæta afköst sín og lífsgæði. Við erum með hóptíma fyrir hlaupara, kylfinga og unga íþróttamenn og konur. Við erum búin að vera með hóptíma fyrir karla og konur sem hafa það að markmiði að bæta hvers konar færni, jafnvægi og afreksgetu. Við höfum verið í fararbroddi þess að gera mælingar á afkastagetu bæði með kraftmælingum og svo kölluðum mjólkursýrumælingum. Við mælum virkni á vöðvum grindarbotns sem eru mjög mikilvægir bæði fyrir konur og karla. Á næstu misserum ætlum við að auka enn frekar upp á fræðslu fyrir þjálfara, heilbrigðisstarfsfólk og almenning í því augnamiði að örva enn meira tækifæri sem rétt þjálfun hefur á lífsgæði.” Sjúkraþjálfun Reykjavíkur flutt á Fiskislóð Myndirnar eru frá opnu húsi hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur sem fór fram nýlega í nýju húsakynnunum. GASTROPUB TAPASBARINN, Vesturgötu 3b, tapas.is SUSHI SOCIAL, Þingholtsstræti 5, sushisocial.is APOTEK, Austurstræti 16, apotek.is SÆTA SVÍNIÐ, Hafnarstræti 1-3, saetasvinid.is Bragðgóð jólag jöf Gefðu g jafabréf sem gildir ekki bara á eitt, heldur fjögur af vinsælustu veitingahúsum Reykjavíkur. Gjöf sem hittir í mark hjá sælkerum sem geta þá valið sinn uppáhaldsstað. Gjafabréfin fást á stöðunum fjórum og eru að upphæð 10.000 og 20.000 kr. Gjöf sem gælir við bragðlaukana! Sjúkraþjálfun Reykjavíkur er flutt að Fiskislóð þar sem Ellingsen er til húsa.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.