Vesturbæjarblaðið - Dec 2017, Page 27

Vesturbæjarblaðið - Dec 2017, Page 27
Níu KR ingar hafa verið valdir í yngri landslið karla í knattspyrnu en æfingar fara fram milli jóla og nýárs. Þeir leikmenn sem hafa verið valdir í landslið U19 eru; Atli Hrafn Andrason, Ástbjörn Þórðarson, Ólíver Dagur Thorlacius, og Guðmundur Andri Tryggvason. KR ingar eiga einnig leikmenn í yngri landsliðum kvenna líkt og karla en þær eru: Kristín Erla Ó. Johnsson, Emilía Ingvadóttir og Alma Gui Mathiesen. 27VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2017 GETRAUNANÚMER KR ER 107 Sími: 588 9705 www.skautaholl.is Opnunartímar: Mánud. Þriðjud. og miðvikud. 13:00-14:30 Fimmtudaga 13:00-14:30 og 17:00-19:30 Föstudaga 13:00-14:30 Laugardaga og sunnudaga 13:00-17:00 Skólar og sérhópar: Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00. KR-ingar í yngri landsliðum Hin árlega afhending mark- mannabikars KR fór fram 25. nóvember sl, Markmannafélag KR sá um afhendinguna, en gefandinn Heimir Guðjóns- son fyrrum markmaður KR og lands-liðsins er nú búsettur á Spáni. Heimir var markvörður meistaraflokks KR á árunum 1955 til 1965 og var lykilmaður í sigur-sælu liði KR á þessum tíma og vann alla titla sem í boði voru og lék að auki með landsliðinu. Kunna KR ingar vel að meta ræktarsemi hans fyrir gamla félaginu og ber að þakka það. Það er markamannsþjálfari yngri flokka, Valþór Halldórs- son, sem ber hitann og þungann af valinu þetta árið. Við valið er einkum horft til frammistöðu á vellinum, ástundun við æfingar og framkomu innan sem utan vallar. Markmenn KR 2017 eru: Í kvennaflokki voru það markmenn 5. flokks þær Birna Guðlaugs- dóttir og Helena Sörensdóttir sem urðu fyrir valinu. Þær léku vel í sumar, mættu vel á æfingar og tóku miklum framförum og haldi sem horfir með þær verða markmannsmálin í kvenna- knattspyrninnu hjá KR í góðum höndum næstu árin. Í karlaflokki var Ómar Castaldo markmaður 3. flokks valinn. Hann var lykilmaður í liði 3. flokks í sumar og eins og stelpurnar mætti hann vel á æfingar, tók miklum framförum og sýndi góða framkomu utan vallar sem innan. Þá var hann valinn í U 17 ára landsliðið og tók þátt í tveimur leikjum í Norðurlandamótinu sem fram fór hér heima. Markmannabikar KR 2017 Frá vinstri : Magnús Guðmundsson, Guðmundur Pétursson, Ómar Castaldo, Halldór Pálsson, Valþór Hilmarsson, Kristján Finnbogason, Birna Guðlaugsdóttir og Helena Sörensdóttir BÍLAVIÐGERÐIR GRANDA FISKISLÓÐ 83 - 101 REYKJAVÍK S: 562 5999 S: 669 5999 Efnilegir KR-ingar sem hafa verið valdir í yngri landsliðin í fótbolta. Þú færð KR-vörurnar hjá okkur! Ármúli 36 • Reykjavík 108 S: 588 1560 Óskum KR-ingum og öllum Vesturbæingum gleðilegra jóla.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.