Fréttablaðið - 16.02.2015, Síða 16

Fréttablaðið - 16.02.2015, Síða 16
FÓLK|HEIMILI Við vorum að skoða þetta á netinu, ég og bróðursonur mannsins míns. Okkur fannst þetta svo sniðug hug- mynd að ég ákvað að prófa að búa svona til og gaf honum svo í jólagjöf. Svuntu og pottaleppa úr gamalli skyrtu. Ermarnar verða að pottaleppum og ég notaði gömul handklæði innan í potta- leppana til að þykkja. Ég gerði reyndar nokkur svona sett fyrir jólin,“ segir Hildur Gunnarsdóttir hannyrðakona með meiru. Endurvinnsla er Hildi hugleik- in og segist hún eiga erfitt með að henda nokkrum hlut. „Ég er að nálgast sjötugt og hef búið til nánast allar jólagjafir alla tíð. Stundum hef ég átt lítið af peningum en nógan tíma og nýtt þá það sem ég hef haft. Mér finnst gaman að gera nothæft úr ónothæfu og finnst voðalega sorglegt að horfa á ýmsa hluti fara í ruslið. Ég á til dæmis mjög erfitt með að henda pappír, tuskum og spýtum,“ segir Hildur. „Það er eins og maður finni alltaf pláss undir það sem maður hefur áhuga á,“ bætir hún við sposk. Gamlar gallabuxur eru hennar helsta hráefni og hefur hún meðal annars saumað poka undir sund- og leikfimidót barna- barnanna, bútateppi og þá hefur hún heklað mottur úr gömlum nælonsokkabuxum. „Tengdason minn vantaði eitthvað til að geyma hálsbindin sín í og ég bjó þá til hengi með hólfum, sem hann hengir innan á skáphurðina sína, og notaði gamlar gallabuxur í bakið. Galla- efni er svo þykkt og gott efni og ég hef saumað úr því svuntur og allt mögulegt. Ég hef saumað bútateppi handa barnabörn- unum þegar þau fermast, meðal annars úr gallabuxum.“ Hildur segist hafa flokkað sorp árum saman og var farin að flokka allan pappír frá löngu áður en reglur voru settar þar um. „Annars var maður alltaf að fara út með ruslið. Ég nýtti líka þann pappír sem ég gat í annað en á endanum fór restin í tunn- una. Þetta var áður en farið var að taka á móti pappír sérstak- lega. Það er mikið af umbúðum í umferð sem eru of gott efni til að henda. Þar sem ég vinn hefur skapast hefð fyrir því að þeir sem eiga afmæli koma með köku með kaffinu. Þá safnast gjarnan upp kassar utan af bakarís- tertum og ég hef ekki getað séð á eftir þeim í ruslið. Ég hef til dæmis nýtt þessa kassa utan um jólagjafir þar sem allir pakkar frá mér eru mjúkir pakkar,“ segir Hildur og bætir við að endurvinnslu og endurnýtingu megi kalla hennar lífsstíl. „Ég vinn meðal annars við að gera við biluð föt á saumastofu. Það að gera eitthvað nothæft úr ónothæfu er fastur hluti af mínu lífi.“ GERIR NOTHÆFT ÚR ÓNOTHÆFU HEIMILI Hildur Gunnarsdóttir hannyrðakona á Akureyri vill helst nýta vel úr því sem hægt er og á erfitt með að henda nokkrum hlut. Hún skoðar hug- myndasíður á netinu og breytti til dæmis gamalli skyrtu í svuntu og pottaleppa. GALLABUXUR GOTT HRÁEFNI Uppáhaldshráefni Hildar eru gamlar gallabuxur en hún hefur bæði saumað úr þeim og notað sem umbúðir. FYRIR HÁLSBINDIN Hildur saumaði hengi með hólfum fyrir tengdason sinn til að geyma í bindi og smáhluti og notaði gamlar gallabuxur í bakið. POTTALEPPAR Skyrtuermarnar urðu að pottaleppum og gömul handklæði notuð til að þykkja þá. ÚTSJÓNARSÖM Hildur Gunnarsdóttir bjó til svuntu og pottaleppa úr gamalli skyrtu handa ungum manni í jólagjöf. Endurnýting er henni hugleikin og hún vill helst ekki sjá á eftir nýtilegum hlut í ruslið. MYND/AUÐUNN NÍELSSON hollur kostur á 5 mín. Gríms fiskibollur BESTA ALHLIÐA FÆÐUBÓTAREFNIÐ Á MARKAÐNUM SUPERCHARGER! Keyrir upp orku og brennslu Meiri einbeiting Eykur styrk og úthald www.leanbody.is EKKERT ANNAÐ! Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.