Fréttablaðið - 16.11.2015, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 8 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 1 6 . n ó v e M b e r 2 0 1 5
D-VÍTAMÍN
frá NOW fyrir börn og fullorðna
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
Dekk
Dekk
Níðsterk dekk sem henta
vel í öllum aðstæðum
Dekkin eru öll míkróskorin
Sendum hvert á land sem er
Raðgreiðslur í allt að 12 mán
Burðardekk á
góðu verði
Njarðarbraut 11 Reykjanesbæ s. 421 1251 / 861 2319
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
trúMál „Það kemur mér ekki á
óvart að meirihlutinn skuli vera
hlynntur. Það kemur mér meira á
óvart að það skuli ekki vera stærri
meirihluti,“ segir Davíð Þór Jóns-
son héraðsprestur um niðurstöð-
ur nýrrar könnunar Fréttablaðs-
ins. Þær sýna að rúmur helmingur
þeirra sem afstöðu taka styður
aðskilnað ríkis og kirkju, en 45
prósent eru andvíg.
„Af umræðunni í samfélaginu
að dæma hefði ég haldið að það
væri stærri meirihluti,“ segir
Davíð Þór.
Um það bil 2 af hverjum
þremur svarendum á aldrinum
18-49 ára styður aðskilnað. Aftur
á móti styðja einungis um 43
prósent þeirra sem eru 50 ára og
eldri aðskilnað en 57 prósent eru
á móti. – jhh / sjá síðu 4
Yfir 50 prósent
vilja aðskilnað
Fréttablaðið í dag
skoðun Guðmundur Andri
Thorsson skrifar um illvirkjana
sem réðust handahófskennt á líf
ókunnugs og óviðkomandi fólks
í París til þess að vekja hatur á
sjálfum sér. 12-13
sport Stjarnan varð Norður-
landameistari félagsliða í hóp-
fimleikum eftir harða keppni við
tvö sænsk félög. 14
tÍMaMót Dagur íslenskrar tungu
er haldinn hátíðlegur á afmælis-
degi skáldsins Jónasar Hall-
grímssonar. 16
lÍfið Unnur Birna og Greta
Salome taka höndum saman í
tónlistinni. 24-26
plús 2 sérblöð
l fólk l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Minningarathöfn um þá sem fórust í hryðjuverkaárásunum í París á föstudag var haldin í Notre Dame-kirkjunni í París í gær. Þúsundir manna komu saman fyrir framan kirkjuna á meðan
athöfnin fór fram. Hryðjuverkaárásin á París er sú mannskæðasta síðan árás var gerð á Madríd árið 2004. Fréttablaðið/EPa
frakkland Franski herinn gerði í
gær loftárásir á borgina Rakka í Sýr-
landi, þar sem vígamenn Íslamska
ríkisins hafa haft höfuðstöðvar
sínar. Franska varnarmálaráðuneyt-
ið skýrði frá þessu. Þá hertu Banda-
ríkjamenn einnig loftárásir sínar á
svæði Íslamska ríkisins í Sýrlandi.
Innanríkisráðherra Frakklands,
Bernard Cazeneuve, sagði hryðju-
verkaárásirnar í París síðastliðið
föstudagskvöld hafa verið skipulagð-
ar utan Frakklands. 132 hið minnsta
féllu í árásunum og 350 særðust.
„Rannsókn á málinu mun leiða í
ljós að árásirnar voru undirbúnar
utan landsins af hóp hryðjuverka-
manna staðsettum í Belgíu sem vann
náið með vitorðsmönnum í Frakk-
landi,“ sagði Cazeneuve í ávarpi
sínu eftir fund með Jan Jambon,
belgískum starfsbróður sínum. „Það
er mikil þörf á samstarfi Frakka og
Belga. Þeir sem unnu að árásunum
frá Belgíu voru frönskum yfirvöldum
ekki kunnir,“ sagði Cazeneuve.
François Hollande Frakklandsfor-
seti mun fara fram á framlengingu
neyðarástands í landinu, en hann
lýsti yfir neyðarástandi á föstudag.
Fréttastofa AFP greinir frá því að
forsetinn muni fara fram á þriggja
mánaða neyðarástand hið minnsta
en samþykki þingsins þarf fyrir
lengra tímabili en tólf dögum.
Hollande fullyrti á laugardaginn
að Íslamska ríkið stæði að baki árás-
unum og lýstu samtökin yfir ábyrgð
sinni á þeim í kjölfarið.
Forsetinn sagði árásirnar stríðs-
yfirlýsingu og lofaði miskunnar-
lausum hefndum.
Talið er að átta skæruliðar hafi
verið að verki á föstudagskvöld en
lögregluyfirvöld í París hafa staðfest
að sjö þeirra séu dánir. Sex sprengdu
sig í loft upp en lögregla skaut þann
sjöunda til bana.
Lögregla leitaði logandi ljósi að
þeim áttunda í gær. Lýst var eftir
manni sem heitir Salah Abdeslam,
hann handtekinn en síðan sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Þjóðarsorg var lýst yfir í Frakk-
landi og markaðist helgin af mikilli
sorg. Verslanir, opinberar bygg-
ingar, ferðamannastaðir og skólar
voru lokuð um helgina og vígbúnir
lögreglumenn voru víðs vegar um
borgina. – þea / sjá síðu 8
Frakkar ráðast á vígi Íslamska ríkisins
Innanríkisráðherra Frakka segir hryðjuverkin í París hafa verið undirbúin utan Frakklands. Árásarmennirnir voru með bækistöðvar
sínar í Belgíu. Francois Hollande, forseti Frakklands, heitir miskunnarlausum hefndum. Frakkar gerðu í gær loftárásir á Sýrland.