Fréttablaðið - 16.11.2015, Page 2
Gert er ráð fyrir norðaustan hvassviðri eða
stormi, einna hvassast á Vestfjörðum og
við suðausturströndina, en mun hægari
suðvestan til fram undir kvöld. Þessu
fylgir rigning eða slydda og snjókoma til
fjalla, en líklega alveg þurrt sunnan- og
suðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig víðast hvar.
Sjá Síðu 18
Veður Samverustund í Vídalínskirkju
Ástvina minnst Haldin var samverustund í Vídalínskirkju í gær fyrir vini, skólafélaga og aðstandendur Hauks Freys Agnarssonar og Hjalta Más Baldurs-
sonar sem fórust í flugslysi á Reykjanesi á fimmtudag. Fjölmargir komu til að minnast félaga sinna og sýna aðstandendum hlýhug. Fréttablaðið/anton brink
Samfélag „Hann yrði auðvitað
maður að meiri ef hann skilaði
fengnum. Það er bréfalúga á
kirkjunni ef hann vildi smeygja
einhverju þar inn,“ segir séra Sig
urður Jónsson, prestur í Áskirkju,
og biðlar til þjófs að skila veski
sem hann stal úr yfirhöfn kirkju
gests í útför í síðustu viku.
Þjófurinn athafnaði sig í miðri
útför í Áskirkju á miðvikudaginn.
Kirkjuvörður kom að ungum
manni sem þreifaði utan á yfir
höfnum gesta. Þegar hann spurði
manninn hvað hann væri að gera,
réðst hann að honum, sló hann í
andlitið og tók til fótanna út úr
kirkjunni.
„Þetta var á miðvikudaginn var,
þá var útför og nokkuð fjölmenn.
Þannig var að kirkjuvörðurinn
kemur að manni sem er að þreifa
á yfirhöfnum, ávarpar hann og
spyr hann hvort hann vanti eitt
hvað. Þá slær hann kirkjuvörðinn
högg í andlitið og hleypur út. Það
var farið á eftir honum, bæði
kirkjuvörðurinn og útfararþjónar.
En hann komst undan. Svo kom
í ljós að maður saknaði veskis úr
yfirhöfn sinni,“ segir séra Sigurður
um atburðarásina.
Hann segir lögreglu hafa
komið strax á staðinn og tekið
skýrslu af þeim sem urðu vitni að
þessu. Séra Sigurður segist halda
að þjófar fylgist jafnvel með
útfarartilkynningum. Aðferðin sé
þekkt. „Þetta er býsna langt geng
ið en maður hefur heyrt áður að
þetta sé þekkt aðferð. Það er eins
og menn fylgist þá með útfarartil
kynningum.“
Honum segist brugðið. Pilt
inum er lýst sem glæsilegum
ungum manni á þrítugsaldri.
„Þetta var glæsilegur piltur á þrí
Þjófur óð í vasa gesta í
Áskirkju í miðri útför
Kirkjuvörður í Áskirkju kom að þjófi sem stal úr yfirhöfnum kirkjugesta í útför.
Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur biðlar til þjófsins að skila þýfinu.
Séra Sigurður Jónsson, prestur í Áskirkju, segir þjófinn hafa verið glæsilegan pilt, vel til fara
og biðlar til hans að skila þýfinu. Fréttablaðið/Hari
Þetta er býsna langt
gengið en maður
hefur heyrt áður að þetta sé
þekkt aðferð. Það er eins og
menn fylgist þá með útfarar-
tilkynningum.
Séra Sigurður Jónsson, prestur í Áskirkju
Skák Magnus Carlsen, heimsmeistari
í skák, tefldi sína fyrstu skák á Evr
ópumóti landsliða í Laugardalshöll í
gær gegn Aseranum Levon Aronian.
Carlsen gafst upp eftir 44 leiki.
Hannes Hlífar Stefánsson stór
meistari segir að gaman yrði ef
íslenska sveitin fengi tækifæri til að
tefla við þá norsku.
Hann telur að til séu skákmenn sem
geti ógnað veldi Magnusar. „Kannski
ekki í Evrópu en aðallega í Kína. Það
er kannski meiri ógn þar og í Asíu en
hér í Evrópu,“ segir Hannes Hlífar.
Aðalsveit Íslands tefldi við lið Þjóð
verja í gær og gamla kempan Friðrik
Ólafsson tefldi með gullaldarliði
Íslands gegn Tyrklandi. Friðrik var
hinn rólegasti eftir fyrsta leik sinn og
gekk spekingslega um salinn á meðan
mótherji hans frá Tyrklandi svitnaði
yfir næsta leik fyrrverandi forseta
FIDE. Skákinni lauk með jafntefli.
- hmp / þea
Meistarinn
gafst upp
tugsaldri, vel til fara. Í fínni úti
vistarúlpu. Þetta er allt frekar
ömurlegt.“
Séra Sigurður segir kirkjugesti
þurfa að hafa varann á og geyma
ekki mikil verðmæti í yfirhöfnum
sínum. „Við verðum bara að læra
af þessu og vera með okkar fólk í
viðbragðsstöðu auk þess að biðja
fólk að geyma ekki mikil verð
mæti í yfirhöfnum sínum.“
Hann rifjar upp þjófnað fyrir
um áratug í Bústaðakirkju. „Þá
var brotin rúða í bíl, þar lá í fram
sæti hlutur sem líktist fartölvu.
Þjófurinn greip hlutinn og lét sig
hverfa. Þetta reyndist hins vegar
vera biblía með renndri kápu,
hún hefur vonandi orðið honum
til góðs.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
lögreglumál „Sjálfur hef ég marg
ítrekað ferðast inn og út af Schen
gensvæðinu – í eitt skipti meira að
segja með Glockskammbyssu með
45 skotum í þremur fullhlöðnum
magasínum í handfarangri,“ skrif
aði Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
á Facebooksíðu sinni. Ummælin
skrifar hann við stöðuuppfærslu hjá
sér sjálfum þar sem hann deilir frétt
af hörmungunum í París á föstudag.
Með hlaðna
byssu í flugi
Snorri Magnússon,
formaður lands-
sambands lögreglu-
manna
Í 21. grein vopnalaga er sérstak
lega tiltekið að sá sem fer með eða
notar skotvopn skuli ætíð gæta
fyllstu varúðar. Við burð og flutning
á skotvopnum milli staða skuli þau
vera óhlaðin og í umbúðum. Brot
gegn lögum þessum og reglum varða
sektum eða fangelsi allt að 4 árum.
Samgöngustofa hefur umsjón
með reglugerð um flugvernd. Í við
auka við reglugerðina er sérstaklega
tekið fram að skotvopn til persónu
legra nota sem og meðfylgjandi
kúlur, högl, örvar o.s.frv. sem sam
ræmast ofangreindum liðum megi
einungis flytja sem fragt eða í inn
rituðum farangri. Vopnin mega ekki
vera hlaðin. Ekki náðist í Snorra
Magnússon við vinnslu þessarar
fréttar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
til þess að spyrja hann hvort hann
hafi haft einhvers konar leyfi til
að flytja hlaðna skammbyssu með
þessum hætti.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
sagðist í kvöldfréttum Stöðvar 2
ekki skilja ummæli Snorra. „Ég held
að menn eigi að passa sig á því sem
þeir segja og að það sé eftir því tekið
þegar ákveðnir aðilar taka til máls.“
– kbg
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m á n u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð