Fréttablaðið - 16.11.2015, Síða 6

Fréttablaðið - 16.11.2015, Síða 6
Verðtryggð skuldabréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS151155 Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur birt útgef- andalýsingu og grunnlýsingu dagsett 13. nóvember 2015 vegna töku skuldabréfa til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. Útgefandalýsinguna og grunnlýsinguna ásamt gögnum sem vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á vefsíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is fram til lokagjalddaga skuldabréfanna. Skuldabréfin eru verðtryggð með jöfnum afborgunum. Bréfin bera fasta 2,50% ársvexti sem greiddir eru hálfsárslega, 15. maí og 15. nóvember ár hvert, í fyrsta sinn 15. maí 2016 og í síðasta sinn 15. nóvember 2055. Fyrsta afborgun höfuðstóls er 15. nóvember 2020. Bréfin eru uppgreiðanleg 15. nóvember 2035 og 15. nóvember 2045 skv. skilmálum sem getið er í grunnlýsingu. Auðkenni flokksins á NASDAQ OMX Iceland hf. er LSS151155 og ISIN númer IS0000026383. Reykjavík, 16. nóvember 2015. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. G20-leiðtogar hittust í Antalya Suður-AfríkA Spretthlauparinn Oscar Pistorius er byrjaður að sinna samfélagsþjónustu. Hann mætti á lögreglustöð á laugardaginn til þess að fá fyrirmæli um hvernig vinnunni skyldi háttað. Það var í fyrsta sinn sem Pistorius sást opin- berlega eftir að hann var látinn laus úr fangelsi fyrir mánuði. Pistorius var fundinn sekur um að hafa orðið unnustu sinni, Reevu Steenkamp, að bana árið 2013. Sam- hliða samfélagsþjónustunni verður Pistorius í stofufangelsi á heimili frænda síns í bænum Pretoria. Hann Byrjar þegnskylduvinnu lAndbúnAður Ríkisstuðningur sem fyrirtækið Ístex hefur fengið fyrir að safna ull frá sauðfjárbændum er gagnrýndur í nýrri skýrslu um sauðfjárræktarsamninginn. Styrkir til Ístex frá ríkinu hafa numið tæp- lega 200 milljónum króna á árunum 2013 til 2015. Upphæðin nemur 15% af þeim styrkjum sem ríkið úthlutar vegna ullarnýtingar, um 440 millj- ónum króna á fjárlögum þessa árs. Styrkirnir eru auglýstir til umsóknar einu sinni á ári en skil- yrðin fyrir veitingu þeirra eru sögð svo þröng að það gefi ástæðu til að álykta að þau séu beinlínis ætluð til að halda öðrum frá en Ístex. Til að eiga möguleika á styrknum þarf fyrir tækið að bjóðast til að kaupa alla ull af íslenskum sauðfjár- bændum, þvo að lágmarki 30 pró- sent hennar hér á landi og búa til úr þeim hluta band eða lopa. „Nýtt fyrirtæki þyrfti t.d. að hafa aðgang að ullarþvottastöð hérlendis en ein er starfandi og er í eigu Ístex,“ segir í skýrslunni sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið. Guðjón Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Ístex, segir bændur ekki skylduga til að selja fyrirtæk- inu ull. Þá geti hver sem er komið sér upp sömu tólum og tækjum og Ístex. „Ef þú kemur þér upp aðstöðu til þess að vinna úr ullinni þá getur hver sem er gert það,“ segir Guðjón. Hann segir tilgang fyrirkomulagsins hafa vera að tryggja að ullariðnaður- inn fái nýtilegt hráefni. Ístex er eina fyrirtækið sem sótt hefur um styrkinn frá því að núver- andi fyrirkomulagi var komið á árið 2013. Í skýrslunni er bent á að ekki sé hægt að útiloka að önnur fyrir- tæki hafi áhuga á að taka við ull frá bændum á hluta landsins og vinna hana hér á landi eða flytja úr landi til vinnslu. Í skýrslunni er lagt til að ríkið styrki bændur beint og þeir selji afurðir sínar svo á markaði. Því fé sem nú renni til Ístex mætti bæta við stuðninginn til bænda. Þetta hugnast Guðjóni illa. „Stuðningur- inn þarf að fara eftir þeim gæðum sem bóndinn skilar. Ef þeir eiga að fá ríkisstuðning vegna ullarviðskipta óháð gæðum þá segir það sig sjálft að það myndi enginn hugsa um gæðin lengur,“ segir hann. ingvar@frettabladid.is Telja að Ístex sitji að milljónatuga ríkisstyrk Ríkisstyrkir vegna ullarkaupa eru gagnrýndir í nýrri skýrslu um sauðfjárrækt. Skilyrði fyrir styrkjunum eru sögð þröng og í raun sérsniðin fyrir eitt fyrirtæki, Ístex. Fyrirtækið hefur fengið tæplega 200 milljónir frá ríkinu síðustu þrjú árin. Fundað í Tyrklandi Leiðtogafundur tuttugu helstu iðnvelda heims hófst í gær í Antalya í Tyrklandi. Barack Obama Bandaríkjaforseti heilsar kanslara Þýskalands, Angelu Merkel og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, við upphaf fundarins. Til umræðu var flóttamannavandinn, hlýnun jarðar og hryðjuverkaógn í kjölfar voðaverk- anna í París. Mikil öryggisgæsla er á fundarstaðnum í Antalaya en á laugardag sprengdi vígamaður, sem talinn er hafa tengsl við Íslamska ríkið, sig upp í Suðaustur-Tyrklandi, nærri landamærum Sýrlands. Fréttablaðið/EPa má ekki yfirgefa heimilið nema í sérstökum tilfellum, til dæmis til þess að sækja kirkju eða sinna sam- félagsþjónustunni. Pistorius var ekki dæmdur fyrir morð að yfirlögðu ráði og hlaut því einungis fimm ára dóm. Saksókn- arar hafa áfrýjað dómnum og vilja þyngri refsingu. – jhh Oscar Pistorius Ístex vinnur nær alla ull sem fæst af sauðfé hér á landi. Fréttablaðið/gva Ef þú kemur þér upp aðstöðu til þess að vinna úr ullinni þá getur hver sem er gert það. Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri Ístex 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n u d A G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.