Fréttablaðið - 16.11.2015, Side 8
Audi A5
2.0T Quattro
7.990.0002013
40
VW Polo
Trendline 1.2 TDI
Renault Clio IV
1500 Dynamic
Skoda Rapid
Spaceback 1.2 TSI
Suzuki
Grand Vitara
1.890.000
2.550.000
2.550.000
3.090.000
2013
2014
2014
2010
61
57
65
38
Skoda Octavia RS
2.0 TSI
5.590.0002015
1
VW Golf
Trendline 1.4 TSI AT
Hyundai I30
Comfort Wagon
Skoda Yeti
TDi
Mercedes Benz
E 200 Kompressor
1.880.000
1.890.000
4.890.000
1.690.000
2011
2009
2015
2005
119
92
138
1
Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040
Glaðklakkalegt
start
Eigendaskipti
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
30
Fólk kom saman fyrir framan kaffihúsið Bonne Biere í gær til þess að minnast þeirra sem féllu í árásunum í París á föstudags-
kvöld. FréttaBlaðið/EPa
Frakkland Alríkislögregla Banda-
ríkjanna (FBI) mun senda rannsak-
endur til Parísarborgar í þeim tilgangi
að aðstoða við rannsókn á hryðju-
verkaárásum sem dundu á borginni
á föstudagskvöld. Frá þessu greinir
fréttastofa New York Times.
Rannsakendurnir sem sendir verða
sérhæfa sig í að endurheimta upp-
lýsingar úr farsímum og tölvum. Þar
að auki munu útsendararnir miðla
öllum upplýsingum um árásirnar
heim til Bandaríkjanna, sér í lagi til að
kanna hvort árásarmenn hafi tengsl
við Bandaríkin.
Að minnsta kosti 129 féllu í árás-
unum og 350 særðust. Í gærkvöld
voru enn 42 á gjörgæslu. Stærstur
hluti hinna föllnu var myrtur í
árás sem gerð var á tónleikahöll-
ina Bataclan þar sem hljómsveitin
Eagles of Death Metal hélt tónleika
fyrir um 1.500 gesti. Á miðjum tón-
leikum réðust vígamenn inn og hófu
skotárás. Tónleikagestir voru teknir
í gíslingu og teknir af lífi, einn í einu.
Lögregla réðst inn nokkru seinna og
sprengdu þrír árásarmannanna sig í
loft upp inni í húsinu.
Einnig réðust árásarmenn að kaffi-
húsum og veitingastöðum í nágrenn-
inu og féllu 38 í þeim árásum hið
minnsta.
Þá féllu þrír í tveimur sjálfsmorðs-
árásum nærri Stade de France þar
sem karlalandslið Frakka og Þjóð-
verja spiluðu vináttulandsleik í knatt-
spyrnu. Francois Hollande Frakk-
landsforseti var viðstaddur leikinn
en var fluttur á brott í flýti um leið og
tíðindi af árásunum bárust. Síðar um
kvöldið lýsti hann yfir neyðarástandi
FBI aðstoðar í París
Bandaríska alríkislögreglan mun aðstoða við rannsókn á hryðjuverkunum í
París. Minnst 132 féllu og 350 særðust þegar vígamenn Íslamska ríkisins réðust
á borgina á föstudagskvöld. Mannskæðasta árás í Evrópu síðan í Madríd 2004.
Evrópusambandið boðar mínútuþögn
Leiðtogar Evrópusambandsins hvetja
til einnar mínútu þagnar í dag klukkan
12.00 í tilkynningu sem send var út í
gær. Tilkynningin er svohljóðandi:
„Evrópusambandinu er alvarlega
brugðið og syrgir nú vegna hryðju-
verkaárásanna í París. Árásunum var
beint gegn okkur öllum. Þessari ógn
munum við mæta í sameiningu, með
öllum tiltækum ráðum og af vægðar-
lausri staðfestu.
Frakkar eru mikil og sterk þjóð.
Gildi landsins, frelsi, jöfnuður og
bræðralag, voru og eru Evrópusam-
bandinu innblástur. Í dag stöndum
við í sameiningu með Frökkum og
ríkisstjórn Frakklands. Afleiðingar
þessa skammarlega hryðjuverks
verða þveröfugar við ásetninginn að
baki því, sem var að sundra, skelfa og
sá hatri.
Hið góða er illskunni yfirsterkara.
Allt það sem unnt er að gera á evr-
ópskum vettvangi til að tryggja öryggi
Frakklands verður gert. Við munum
taka til hvaða ráða sem þarf til að
sigrast á öfgastefnu, hryðjuverkaógn
og hatri.
Við, íbúar Evrópu, munum öll
minnast 13. nóvember 2015 sem
sorgardags. Öllum Evrópubúum er
boðið að taka þátt í einnar mínútu
þögn til minningar um fórnarlömbin á
hádegi, mánudaginn 16. nóvember.“
í Frakklandi og lokaði landamærum
landsins í fyrsta sinn frá lokum seinni
heimsstyrjaldar.
Íslamska ríkið (ISIS) hefur lýst
yfir ábyrgð á árásunum sem eru þær
mannskæðustu í Evrópu frá því 191
lést í hryðjuverkaárásunum á Madrid
árið 2004.
Þrír rifflar af gerðinni Kalashnikov,
sömu tegund og notuð var í árás-
unum, fundust í svartri Seat-bifreið
í París í gær. Bifreiðin var flóttabíll
árásarmannanna sem skutu á gesti
veitingastaða í borginni.
Þá handtók belgíska lögreglan sjö
einstaklinga. Einn þeirra var bendl-
aður við leigu á Volkswagen Polo
sem árásarmennirnir í Bataclan höfðu
notað. Lögreglan sagði enn fremur að
tveir þeirra árásarmanna sem sviptu
sig lífi hafi búið í höfuðborg Belgíu,
Brussel. Auk þess var fjölskylda eins
árásarmanna færð í gæsluvarðhald.
Lögregla í París nafngreindi einn
árásarmanna í gær, Ismaël Omar Mos-
tefaï, 29 ára franskan ríkisborgara sem
bjó suðvestur af París.
Talið er að árásarmenn hafi verið
átta talsins. Sjö féllu á föstudagskvöld
en einn þeirra komst lífs af. Lýst var
eftir manni að nafni Abdeslam Salah,
hann handtekinn en síðan sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Grikkir og Serbar staðfestu einn-
ig að sýrlenskt vegabréf sem fannst
nærri líki eins árásarmannanna hafi
farið í gegn um löndin á leið sinni til
Frakklands, leið sem margir flótta-
menn fara. Þó er ekki víst að vega-
bréfið sé ófalsað þar sem stór mark-
aður er fyrir fölsuð sýrlensk vegabréf.
thorgnyr@frettabladid.is
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð