Fréttablaðið - 16.11.2015, Síða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Enn snjallara heyrnartæki
heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Nýja Beltone Legend heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone,
iPad og iPod touch. Pantaðu ókeypis heyrnarmælingu í síma
568 7777 og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð)
með iOS eða nýrra stýriker. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypisheyrnarmælingsíðan 2004
Markmið morðingjanna í París um helgina var að höggva að rótum siðaðs samfélags. Ef siðuð lýðræðis-ríki telja sig í kjölfarið nauðbeygð til að grípa til aðgerða sem verulega hefta frelsi almennings til daglegra
athafna fagnar ógnvaldurinn.
Við viljum ekki stjórnvöld sem hafa líf borgaranna
undir smásjá – ekki lögreglu og landamæraverði með
alvæpni. Þannig fórnum við lífsgæðunum, sem skipa
samfélögum okkar í fremstu röð. En ógnin frá blóð-
þyrstum stigamönnum er raunveruleg. Gegn henni duga
engin lausatök.
Staðhæfing um að stríð geisi milli múslima og Evrópu
stenst ekki. Til þess er of erfitt að festa hendur á óvinin-
um. Öfgahóparnir eru fámennir og ekki fulltrúar neinna
lögmætra yfirvalda, hvað þá heilla trúarbragða eða
þjóða. Þeir njóta lítillar hylli í sínu nánasta umhverfi.
Þetta er glæpastarfsemi frekar en hernaður.
Í París voru afvegaleidd ungmenni að verki, heila-
þvegin handbendi ofstækismanna sem vinna óhæfuverk
sín í nafni trúarbragða, auðvitað umboðslausir með öllu.
„Við erum miður okkar yfir því sem gerst hefur, en
munum aldrei snúa baki við lífsgildum okkar,“ sagði
Jens Stoltenberg, þáverandi forsætisráðherra Noregs,
eftir voðaverkin í Útey sumarið 2011, þegar vitfirr-
ingurinn Anders Breivik varð 77 manns að bana með
heimagerðum sprengjum og skotvopnum. „Svarið er
virkara lýðræði, opnara samfélag og meiri manngæska,“
sagði Stoltenberg og bætti við að norska þjóðin væri
ekki í hefndarhug: „Við ætlum okkur að mæta hatrinu
með ástúð,“ sagði hann.
Viðbrögð Stoltenbergs vöktu aðdáun. Þó að Noregur
verði aldrei samur eftir harmleikinn í Útey tókst Breivik
ekki að eitra þannig út frá sér að fólk verði þess vart alla
daga. Honum tókst ekki ætlunarverkið, að láta hatrið
ala af sér meira hatur.
Eirin Kristin Kjær varð fyrir fjórum skotum í Útey.
Hún komst lífs af við illan leik. Hún var nokkrum árum
áður skiptinemi á Höfn í Hornafirði og kom í heimsókn
til Íslands skömmu eftir harmleikinn. Fréttablaðið tók
við hana viðtal og hún sagði meðal annars: „Breivik er
bara lítill maður – ekki skrímsli.“
Við skulum vona að Frökkum auðnist að vinna
úr grimmd helgarinnar líkt og Norðmenn hafa gert.
Aðstæður eru vissulega ólíkar. Breivik var einyrki. Hann
var tekinn úr umferð. Í París voru ódæðismennirnir
hluti af glæpagengi, sem enn er til. En tilgangurinn er
hinn sami, að eyðileggja samfélagið. Það má ekki takast.
Skoðun Donalds Trump, sem enn leiðir baráttuna um
að verða forsetaefni Repúblikana í Bandaríkjunum, á
atburðunum í París er hrollvekjandi. Hann sagði á fundi
í Texas á laugardag að vopnaburður almennings í París
hefði getað dregið úr hörmungunum: „Það var eng-
inn með byssu nema vondu karlarnir, “ sagði hann og
hneykslaðist á Frökkum fyrir stranga byssulöggjöf.
Trump nefndi ekki, að byssur í almannaeigu í Banda-
ríkjunum hafa kostað fleiri mannslíf en hryðjuverk
þar í landi undanfarin ár. Vitfirring er ekki svarið við
vitfirringu.
Vitfirring
Í París voru
afvegaleidd
ungmenni að
verki, heila-
þvegin
handbendi
ofstækis-
manna sem
vinna óhæfu-
verk sín í
nafni trúar-
bragða,
auðvitað
umboðslausir
með öllu.
Öruggt veðmál
Hinn mælski þingmaður Össur
Skarphéðinsson ræðir pólitíkina
í nýjasta föstudagsviðtali Frétta-
blaðsins. Hann ræðir vanda
Samfylkingarinnar, en líka póli-
tískt landslag eins og það er í dag.
„Miðað við pólitíska stöðu dagsins
er ég til í að bjóða hverjum sem er
upp á veðmál um að ríkisstjórnin
muni falla í næstu kosningum,“
segir Össur, handviss. Það yrði
svo sem ekki djarft teflt í þessu
veðmáli hans Össurar. Síðasta
árið hefur engin skoðanakönnun
á fylgi flokkanna bent til þess að
núverandi meirihluti á Alþingi
myndi halda. Það þyrfti því að vera
ansi bjartsýnn maður sem ætlaði
sér að taka þessu veðmáli.
Sama fylgið
Einn af þeim sem fögnuðu fylgi
Sjálfstæðisflokksins var Elliði
Vignisson bæjarstjóri. „Það er hægt
að lesa margt í þetta. Ekki leikur
vafi á að breyttar áherslur seinasta
landsfundar skipta hér miklu fyrir
Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði Elliði
Vignisson og hvatti til þess að dreg-
ið yrði úr afskiptum hins opinbera
af einstaklingnum. Það er jákvætt
að Elliði hvetji til aukins einstak-
lingsfrelsis. Það er þó vafasamt að
líta svo á að áherslur landsfundar
hafi nokkuð breytt fylgi flokksins.
Fylgið í nóvemberkönnuninni er
nefnilega hið sama og í síðustu
könnun Fréttablaðsins, frá því í
júní, eða rétt undir 30 prósentum.
jonhakon@frettabladid.is
Næstum allt peningamagn í umferð er búið til af við-skiptabönkunum í formi rafrænna peninga (inn-lána). Rafrænir peningar myndast þegar bankinn
býr til í reikning lántakanda við lántöku. Þetta verklag er
svokallað brotaforðakerfi sem er við lýði um allan heim.
Fyrir daga rafrænna peninga hafði ríkið, í gegnum seðla-
bankann, einkarétt til að gefa út peninga, þ.e. seðla og
mynt.
Árið 1891 tók svissneska þjóðin, með þjóðaratkvæða-
greiðslum, valdið til að prenta seðla af bönkunum og flutti
til svissneska seðlabankans. Með réttu ætti hið sama að
gerast í tilfelli innlána, algengustu peningategundarinnar.
Í svissnesku stjórnarskránni er heimild þjóðarinnar til
að vísa til þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu um lagabreyting-
ar. Niðurstöðurnar eru lagalega bindandi fyrir svissneska
þingið. Grasrótarsamtökin „Vollgeld-Initiative“, sem hafa
það markmið að færa peningasköpunarvaldið aftur yfir til
seðlabankans, hafa nú safnað yfir 100.000 undirskriftum
kosningarbærra manna og þannig knúið fram þjóðar-
atkvæðagreiðslu um að taka peningasköpunarvaldið af
viðskiptabönkum. Mun atkvæðagreiðslan fara fram á
næstu árum.
Sviss gæti því orðið fyrsta landið í heiminum til þess að
endurbæta peningakerfið. Einungis seðlabankinn myndi
þá koma nýjum peningum í umferð – bæði reiðufé og raf-
rænum peningum, og hefði þannig meiri stjórn á peninga-
magni í umferð. Rafrænir og órafrænir peningar yrðu að
fullu tryggðir af seðlabankanum ef viðskiptabankar fara í
þrot. Hætta á bankaáhlaupum væri úr sögunni. Bankarnir
myndu sjá um bankareikninga í fjárvörslu fyrir viðskipta-
vini – eins og í dag í tilfelli verðbréfa. Þá myndi ríkið fá
aftur til sín þann hagnað sem peningasköpun hefur í för
með sér og gæti því minnkað skuldsetningu sína veru-
lega. Þetta eru hinir svonefndu þjóðpeningar (e. sovereign
money) í stað bankapeninga (e. commerical bank money).
En áður en þetta getur orðið að veruleika og Sviss orðið
fyrsta landið sem leggur af brotaforðakerfið sem hefur
verið allsráðandi undanfarin 200 ár, þurfa rúmlega tvær
milljónir Svisslendinga að greiða nýju peningakerfi
atkvæði sitt.
Nýtt peningakerfi
Rafrænir og
órafrænir
peningar
yrðu að fullu
tryggðir af
seðlabank-
anum ef
viðskipta-
bankar fara í
þrot.
Albrecht
Ehmann
viðskipta
fræðingur og
áhugamaður um
betra peninga
kerfi
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN