Fréttablaðið - 16.11.2015, Síða 16

Fréttablaðið - 16.11.2015, Síða 16
Fólk| Mest seldu ofnar á Norðurlöndum 10 ára ábyrgð Hjá okkur eru ofnar hitamál LÁGHITA MIÐSTÖÐVAROFNAR Gæði fara aldrei úr tísku Við kynnum nýja heimasíðu, www.isleifur.is Dragháls 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 Fax 4 12 12 01 bílar Verkefni „Þegar þessu verk- efni lýkur þá eru ekki nema tvö ár í bílprófið hjá stráknum. Ætli það verði ekki komið eitthvert tryllitæki til uppgerðar í bíl- skúrnum á þeim tíma, kannski bara jeppi?“ fólk er kynningarblað sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir feðgarnir Björgvin Trausti Guð-mundsson og Ásgeir Fannar Björg-vinsson hafa alla tíð verið með mikla græjudellu. Gegnum árin hefur Björgvin átt nokkur mótorhjól, vélsleða og jeppa en sonur hans, sem er þrett- án ára, eignaðist fyrsta fjórhjólið sitt aðeins tveggja ára gamall og hefur átt nokkur mótorhjól síðan. Nýjasta verkefni þeirra feðga er af metnaðarfyllri gerðinni. Fyrir nokkrum vikum hófu þeir tveggja ára verkefni sem gengur út á að gera upp Honda MTX 50cc mótorhjól, árgerð 1987, sem þeim áskotnaðist frá góðum vin fjöl- skyldunnar. „Um er að ræða tvö sams konar hjól, annað gangfært en hitt til uppgerðar. Hugmyndin er að gera annað hjólið upp í óaðfinnanlegt ástand og hafa það eins líkt og það var beint úr kassanum á sínum tíma,“ segir Björgvin. Það sem gerir þetta verkefni sérstak- lega skemmtilegt er að þegar sonurinn Ásgeir fær skellinöðruprófið eftir tvö ár verður hann 15 ára en hjólið helmingi eldra, eða 30 ára. „Hugmyndin var lengi að fæðast hjá okkur. Ætli pabbi hafi ekki átt hugmyndina en við feðgarnir ræddum hugmyndina fram og til baka og tókum sameiginlega ákvörðun um að hrinda henni í framkvæmd þegar okkur buðust þessi tvö hjól,“ bætir Ás- geir við. Pabbinn hjálPar til Planið næstu tvö árin er að vinna verk- efnið hægt og rólega. „Nú erum við t.d. búnir að rífa mótorinn í sundur. Við þurfum að panta alla varahluti, gler- blása hann og mála. Síðan verður hann settur saman aftur og geymdur uppi í hillu. Næst verður eitthvað annað tekið fyrir og farið eins að þar til allt er klárt og hægt að setja hjólið saman,“ segir Björgvin. Flestir varahlutirnir verða pantaðir á netinu enda ekki mikið til af þeim hér á landi. Feðgarnir segjast vera svo heppnir að eiga góðan vin sem er einn mesti Honda-sérfræðingur landsins og verði hann óspart notaður til aðstoðar við varahlutaöflun. „Síðan er hugmynd- in að ég vinni þetta sem mest sjálfur og pabbi stígi inn í ef upp koma vandamál sem eiga eflaust eftir að koma upp á,“ bætir Ásgeir við og segist mjög spennt- ur fyrir þessari áskorun. ljúfar minningar Björgvin er ekki ókunnugur svona verk- efnum í bílskúrnum. Faðir hans, sem nú er látinn, var smiður og alltaf að brasa eitthvað í skúrnum að sögn Björgvins. „Ég á mjög margar ljúfar minningar með honum enda var ég alltaf velkominn þangað. Þótt hann hafi verið smiður þá var hann með bíladellu sem endurspegl- aðist í því sem hann smíðaði með mér sem barni. Ég átti alltaf flottasta kassa- bílinn, timburleikfangabílinn eða bátana til að leika með. Þótt það hafi kannski ekki alltaf verið hjálp í mér gaf hann mér alltaf tíma til að brasa með sér. Þetta kenndi mér að bjarga mér á efri árum við flest það sem lífið hendir á mann og verð ég honum ávallt þakklátur fyrir.“ næg Verkefni Pabbinn á ekki mótorhjól í dag þótt sonurinn sé að gera upp eitt slíkt í bíl- skúrnum. Það gæti þó breyst á næst- unni að sögn Björgvins og segir hann þá feðga örugglega eiga eftir að hjóla saman á komandi árum í einhverri mynd. Spurðir um næstu verkefni segja þeir af nægu að taka. „Nú er ég kominn með mikinn áhuga á krossurum og er alltaf með endalausa dellu fyrir fjórhjól- um,“ segir Ásgeir. Aðalástæða þess að mótorhjól varð fyrir valinu núna segir Björgvin vera fyrst og fremst pláss- leysi. „Fjórhjól tekur svo mikið pláss í bílskúrnum. Þegar þessu verkefni lýkur þá eru ekki nema tvö ár í bílprófið hjá stráknum. Ætli það verði ekki komið eitthvert tryllitæki til uppgerðar í bíl- skúrnum á þeim tíma, kannski bara jeppi?“ segir Björgvin að lokum. SkaPað í Skúrnum í bílSkúrnum Feðgarnir Björgvin og Ásgeir takast á við tveggja ára verkefni sem gengur út á að gera upp 30 ára mótorhjól fyrir strákinn. aðalmaðurinn „Síðan er hugmyndin að ég vinni þetta sem mest sjálfur og pabbi stígi inn í ef upp koma vandamál,“ segir Ásgeir Fannar. fjÖr framunDan Ásgeir Fannar ætlar að gera upp mótorhjól á tveimur árum með föður sínum, Björgvini Trausta. MYND/ANTON BriNk

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.