Fréttablaðið - 16.11.2015, Qupperneq 36
Merkisatburðir
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína Magnúsdóttir
Rauðalæk 32,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík
27. október sl., verður jarðsungin frá
Laugarneskirkju 18. nóvember nk. og
hefst athöfnin kl. 13.
Svandís Árnadóttir Sævar H. Jóhannsson
Gylfi Vilberg Árnason Soffía Guðlaugsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
1532 Francisco Pizarro og menn hans taka Atahualpa Inkakonung
til fanga.
1621 Páfi gefur út tilskipun um að fyrsti janúar skuli verða fyrsti
dagur ársins.
1632 Gústaf annar Adolf Svíakonungur fellur í
orrustunni við Lützen.
1907 Stytta Einars Jónssonar af Jónasi
Hallgrímssyni er afhjúpuð við Amt-
mannsstíg.
1917 Reykjavíkurhöfn er formlega
tekin í notkun.
1930 Austurbæjarskóli tekur til starfa.
1930 Lúðrasveitin Svanur er stofnuð.
1946 Jarðneskar leifar Jónasar Hallgríms-
sonar eru jarðsettar í þjóðargrafreitnum.
1972 Heimsminjaskrá UNESCO er sett á stofn.
1996 Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn.
Jónas Hallgrímsson, ljóðskáld og náttúru-
fræðingur, fæddist þennan dag árið 1807
að Hrauni í Öxnadal.
Hann orti ljóð, skrifaði sögur, þýddi
verk, smíðaði nýyrði og kannaði íslenska
náttúru. Verk hans mörkuðu djúp spor í
Íslandssöguna.
Að loknu stúdentsprófi frá Bessastaða-
skóla fluttist Jónas til Kaupmannahafnar
í frekara nám. Þar lagði hann stund á
lögfræði, náttúrufræði og bókmennta-
fræði og er hann þekktastur fyrir störf sín
á síðastnefndum sviðum.
Skáldið skildi eftir sig fjöldann allan af
verkum sem mörg hver birtust í Fjölni,
tímariti sem hann ritstýrði.
Jónas lést í Kaupmannahöfn árið 1845.
Þ etta g e r ð i st : 1 6 . n óv e m b e r 1 8 0 7
Skáldið Jónas Hallgrímsson fæðist
mikil hátíðardagskrá er víða um land í
dag í tilefni dags íslenskrar tungu sem nú
er haldinn í nítjánda sinn, á fæðingar-
degi Jónasar Hallgrímssonar.
„Þetta er í þriðja sinn sem ég er með
þetta verkefni ásamt Jóhannesi bjarna
sigtryggssyni og höfum við unnið
með menntamálaráðuneytinu. Í ár
þá ákváðum við að prufa dálítið nýtt
og hefur dagurinn ákveðið þema í ár,
veðurorð. Ég er sjálf mikill áhugamaður
um orð og finnst gaman að safna orðum
um alls konar hluti,“ segir Hjördís erna
sigurðardóttir, sagnfræðingur og skipu-
leggjandi hátíðardagskrárinnar.
Í ár verður dagurinn haldinn hátíð-
legur með hátíðardagskrá á vegum
mennta- og menningarmálaráðherra
í bókasafni mosfellsbæjar. Þar að auki
verður dagskrá í Árnagarði Háskóla
Íslands á vegum mímis, félags stúdenta í
íslenskum fræðum, málþing í Hallgríms-
kirkju um viðeyjarbiblíu, fyrsti áfangi
stóru upplestrarkeppninnar og dagskrá
í Háskólanum á akureyri svo fátt eitt
sé nefnt. Þar að auki verður dagskrá í
skólum og á bókasöfnum víða um land.
illugi gunnarsson menntamálaráð-
herra mun flytja ávarp í mosfellsbæ
auk þess sem verðlaunahafarnir tveir,
þeir sem hljóta verðlaun Jónasar Hall-
grímssonar og sérstaka viðurkenningu
fyrir stuðning við íslenska tungu, verða
kynntir og munu flytja ávarp.
Orðaforði Íslendinga er áberandi í
hátíðardagskránni. auk þess sem veður-
orðin eru þema dagsins munu samtökin
’78 einnig fjalla um mikilvægi hinsegin
orðaforða í Árnagarði.
Hátíðarhaldarar óskuðu eftir því að
Íslendingar sendu þeim sín uppáhalds-
veðurorð og verða nokkrum þeirra
gerð skil. „Þó nokkuð margir komu
með skemmtileg veðurorð, sum mjög
fáheyrð. Þau eru oft landshlutaskyld
og merking þeirra líka. Þetta var bara
mjög skemmtilegt að fá að kasta þessu
út í samfélagið og fá svona viðbrögð því
íslenskan væri fátækleg ef við hefðum
bara þessa stóru hatta, gott veður og
vont veður. Þá myndi vanta falleg blæ-
og tilbrigðaorð um allt þar á milli,“ segir
Hjördís.
„við megum ekki týna uppáhalds-
orðum okkar eins og til dæmis orðinu
hundslappadrífa, það væri þyngra en
tárum taki.“ thorgnyr@frettabladid.is
Fagna degi íslenskrar
tungu í nítjánda sinn
Viðurkenningar og verðlaun verða veitt í bókasafni Mosfellsbæjar í dag í tilefni þess að
dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í nítjánda sinn. Hjördís Erna Sigurðardóttir
sagnfræðingur er annar skipuleggjenda dagsins og segist hún vera full tilhlökkunnar.
Hjördís Erna Sigurðardóttir er mikill áhugamaður um orð og finnst gaman að safna orðum um alls konar hluti. Fréttablaðið/VilHElm
Við megum ekki týna
uppáhaldsorðum okkar
eins og til dæmis orðinu hunds-
lappadrífa. Það væri þyngra en
tárum taki.
Hjördís Erna Sigurðardóttir
sagnfræðingur
Ástarstjörnu
yfir Hraundranga
skýla næturský.
Hló hún á himni,
hryggur þráir
sveinn í djúpum dali.
(Úr Ferðalokum, 1845)
»
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Stefánsdóttir
(Hidda)
Suðurlandsbraut 58,
lést 2. nóvember á Landspítalanum
í Fossvogi. Útför hennar hefur farið fram.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild B7 fyrir góða
umönnun í veikindum hennar.
Guðrún Karlsdóttir Jens Hilmarsson
Ásta Sigrún Karlsdóttir
Stefán Örn Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
blaðberum gafst á laugardaginn
tækifæri til þess að fagna saman
og skoða aðstæður hjá Póstdreif-
ingu, sem sér meðal annars um
dreifingu á Fréttablaðinu. „við
höfum haldið þetta einu sinni á
ári til þess að hvetja fólkið okkar
og leyfa því að kynnast starfsem-
inni hjá okkur. Þetta eru aðilar
sem vinna hver í sínu hverfi og
hittast aldrei. Þarna fá þeir tæki-
færi til að hittast,“ segir Hannes
Hannesson, framkvæmdastjóri
hjá Póstdreifingu. Hannes segir
að þegar vetrar verði starf blað-
beranna erfiðara en ella. Því
hvetur hann fólk til þess að hafa
ljós kveikt í anddyrum og gæta
þess að snjór og hálka torveldi
ekki blaðberum starfið. Ljós-
myndari Fréttablaðsins smellti
nokkrum myndum af blað-
berum og má finna myndasafn
á vísi. – jhh
Blaðberar komu
saman til að fagna
Um 150 manns komu saman hjá Póstdreifingu á laugardaginn, þáðu
veitingar og hlustuðu á tónlist. Fréttablaðið/DaníEl Þór ÁgúStSSon