Fréttablaðið - 23.01.2016, Qupperneq 10
Allt sem þú vilt vita
um hindúisma, búddisma, endur-
holdgun, stjörnuspeki, Kóraninn,
Biblíuna, taóisma, shintó, ISIS,
shía múslíma, súfista, Mishna,
Talmúd, jóga, Vísindakirkjuna,
Moonista, tíbetíönsku dauðabókina,
Avolakitesvara, spíritisma, kirkju-
deildirnar, krossferðir, súnnímúslíma
- og margt margt fleira,
- færð þú að vita á 5 vikna námskeiði um trúarbrögð heimsins
sem byrjar í Gerðubergi 1. febrúar næstkomandi
Leiðbeinandi er
Þórhallur Heimisson sem hefur
fjallað um trúarbrögð heimsins á
fjölmörgum námskeiðum
- auk þess að vera leiðsögu-
maður í ferðum á merkustu
slóðir trúarbragðanna
Þórhallur Heimisson, prestur og ráðgjafi
Sími (ÍS) 00354- 8917562
Staður;
Gerðuberg
Tími:
1., 8., 15., 22. og 29. febrúar kl.20.00-22.00
Skráning og upplýsingar á thorhallur33@gmail.com
Trúarbrögð heimsins
©
ès/C
orbis
MBMR_Ireland_Launch_poster_01.indd 1 20/05/2015 19:02
Hún er ekki
glæpamaður!
Írsk stjórnvöld brjóta mannréttindi kvenna og stúlkna
með harðneskjulegri fóstureyðingarlöggjöf.
Íslandsdeild Amnesty International stendur fyrir pall-
borðsumræðum þar sem írska fóstureyðingarlöggjöfin
verður rædd og heimildarmyndin Take the boat sýnd í
Bíó paradís, miðvikudaginn 27. janúar kl. 19:30.
Gestafyrirlesarar eru: gaye
edwards þolandi fóstureyðingar-
löggjafarinnar, Sorcha Tunney
frá Amnesty International á
Írlandi og Camille Hamet,
leikstjóri og framleiðandi
myndarinnar.
FríTT inn og allir
velkomnir!
minn líkami mín rÉTTinDi
Frakkland Manuel Valls, forsætis-
ráðherra Frakklands, segir ómögu-
legt að fella neyðarlög úr gildi fyrr
en fullnaðarsigur hefur unnist á víga-
mönnum Íslamska ríkisins, DAISH-
samtökunum svonefndu.
„Við verðum að uppræta og
útrýma DAISH í Afríku, Mið-Austur-
löndum og Asíu,“ sagði Valls í viðtali
við BBC á alþjóðlegu efnahagsráð-
stefnunni í Davos í Sviss í gær.
Hann sagði alþjóðlegt stríð vera
háð gegn hryðjuverkamönnum.
„Á meðan ógnin er til staðar, þá
verðum við að grípa til allra ráða,“
sagði Valls og hélt því fram að stríð
gegn hryðjuverkamönnum væri
alheimsstríð: „Stríðið, sem við heyj-
um, þarf líka að vera altækt, hnatt-
rænt og miskunnarlaust.“
Neyðarlögin voru sett í kjölfar
hryðjuverkanna í París í nóvember.
Þau eiga að renna úr gildi 26. febrúar.
Valls segir, í sama viðtali, nauð-
synlegt að finna pólitíska lausn á
ástandinu í Sýrlandi og Írak. En
um leið þurfi Evrópusambandið að
grípa strax til aðgerða til að verja ytri
landamæri sín gegn þeim straumi
flóttamanna, sem er að flýja styrj-
aldarástandið þar.
„Ef Evrópa er ófær um að gæta
landamæra sinna, þá er hugmyndin
sjálf um Evrópu í húfi,“ sagði Valls,
og á strangt til tekið við Evrópusam-
bandið þegar hann talar um Evrópu.
Hann sagði auk þess vonlaust að
Evrópuríki gætu tekið við öllum sem
flýja frá Sýrlandi og Írak. Það myndi
grafa undan öllum stöðugleika í Evr-
ópulöndum.
Á síðasta ári komu meira en milljón
flóttamenn til Evrópu, flestir frá Sýr-
landi og flestir sjóleiðina yfir Mið-
jarðarhafið. Þúsundir drukknuðu
í hafinu. Valls sagði, aðspurður, að
hann teldi Angelu Merkel Þýska-
landskanslara ekki hafa gert mistök
þegar hún sagði flóttafólk velkomið
til Þýskalands. Hins vegar hefðu þess-
ar yfirlýsingar hennar haft mikil áhrif.
Flóttamannamálin voru helsta
umræðuefnið í gær á fundi Merkel
með Ahmed Davutoglu, forsætis-
ráðherra Tyrklands, sem kom í heim-
sókn til Þýskalands.
Davutoglu leggur áherslu á að
Evrópusambandið útvegi Tyrkjum
meira fé til þess að sinna flóttafólki
í Tyrklandi. Meira en 2,5 milljónir
flóttamanna frá Sýrlandi eru í Tyrk-
landi. – gb
Neyðarlögin
ótímabundin
Forsætisráðherra Frakklands segir stríðið gegn
DAISH-samtökunum vera alþjóðlegt. Ekki sé hægt
að aflétta neyðarlögum fyrr en þessu stríði sé lokið.
Tugir drukknuðu
Tugir flóttamanna drukknuðu í
Eyjahafinu í gær, við grísku eyjarnar
Farmakonisi og Kalolimnos. Fólkið
var á litlum bátum á ferðinni frá
Tyrklandi til Grikklands þegar
bátunum hvolfdi.
Fyrst hvolfdi bát með 48 manns
innanborðs við grísku eyna Farma-
konisi. Átta þeirra létust, ein kona
og sjö börn, en 40 tókst að komast
í land.
Nokkru síðar hvolfdi bát með
allt að sjötíu manns innanborðs
út af eyjunni Kalolimnos. Tuttugu
og sex þeirra björguðust en allt að
44 fórust. Í gær var búið að finn lík
34 þeirra.
Á síðasta ári drukknuðu um
3.800 manns í hafinu á leiðinni til
Evrópu.
Ef Evrópa er ófær
um að gæta landa-
mæra sinna, þá er hugmynd-
in sjálf um
Evrópu í húfi.
Manuel Valls,
forsætisráðherra
Frakklands
Forsætisráðherra Frakklands segir stríðið gegn DAISH verða að vera miskunnarlaust. NorDIcpHotoS/AFp
2 3 . j a n ú a r 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð