Fréttablaðið - 23.01.2016, Page 32

Fréttablaðið - 23.01.2016, Page 32
© GRAPHIC NEWSSource: UNHCR Picture: Getty Images Líbanon ræður ekki við þann ölda ‚óttamanna sem hefur streymt frá Sýrlandi inn til landsins. Nú mæta ‚óttamenn aðgönguhindrunum og eiga þar ekki víst skjól. Damascus Deir al Zour S Ý R L A N D Í R A K JÓRDANÍA LÍBANON EGYPTALAND T Y R K L A N D Raqqa Hasakah Kobane Homs 100km 60 miles Dera’a Aleppo Hama Baniyas Miðjarðarhaf Sýrlendingar sem vilja fara til Líbanon verða að sýna fram á tilgang heimsóknar sinnar. Ef heim- sóknin er samþykkt fá þeir dvalarleyš til takmarkaðs tíma. HINDRANIR Í LÍBANON Sýrlendingar sem eru í Líbanon og ekki skráðir hjá UNHRC fá litla sem enga hjálp. Sýrlendingar sem vilja vinna í Líbanon verða að njóta stuðnings ríkisborgara í Líbanon eða fyrirtækis þar í landi. Flóttamannabúðir Átakasvæði Heildaröldi Sýrlendinga á ‚ótta 4,2 milljónir og þar af 2 milljónir barna SÝRLENSKIR FLÓTTAMENN Í NÁGRANNALÖNDUM 1.800.000 1.200.000 628.800 251.300 131.900 Tyrkland Líbanon Jórdanía Írak Egyptaland Júní 2015 Líbanon takmarkar för ”óttamanna frá Sýrlandi Meira en fjórar milljónir Sýr­lendinga hafa f l ú i ð st r í ð s ­átökin og af þeim eru tvær milljónir á barnsaldri. Flestir leita skjóls í nágrannalöndum, Jórdaníu, Írak og Líbanon. Í Líbanon búa fleiri en milljón Sýr­ lendingar skráðir hjá flóttamanna­ aðstoð Sameinuðu þjóðanna og fjöl­ margir þeirra halda til í Beirút. Í Líbanon hafa alls ekki allir flótta­ menn almennan aðgang að heil­ brigðiskerfi en þeir sem eru skráðir hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafa betri tækifæri en aðrir til lífs. Týnd kynslóð sýrlenskra barna Atli Viðar Thorstensen, fram­ kvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, segir stuðning utanríkisráðu­ neytisins hafa gert Rauða krossinum á Íslandi kleift að styðja líbanska Rauða krossinn við að starfrækja svokallaðar færanlegar heilsugæslur frá haustinu 2013. „Heilbrigðisstarfsmenn fara dag­ lega um afskekkt svæði á sérút­ búnum bíl og veita flóttafólki marg­ víslega nauðsynlega læknisþjónustu, auk þess sem gefinn er sérstakur gaumur að leiðum til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi og ofbeldi gegn börnum sem því miður fylgir oft aðstæðum sem þessum. Með auknum stuðningi utanríkisráðu­ neytisins árið 2016 mun íslenski Rauði krossinn nú geta stutt systur­ félag sitt í Líbanon enn frekar við að efla neyðarheilbrigðisþjónustu fyrir fórnarlömb sprenginga og stríðs­ særða við og innan landamæra Líb­ anons og Sýrlands.“ Hann segir að nú þegar átökin hafa staðið yfir í á fimmta ár séu bjargir flóttafólksins orðnar bágbornar. Sér­ staklega sé þörf fyrir aðstoð til barna mikil. „Þörfin fyrir aukna aðstoð, ekki hvað síst í formi menntunar barna, er yfirþyrmandi. Við upphaf átakanna árið 2011 státaði Sýrland af hæsta hlutfalli innritaðra barna af báðum kynjum í grunnskóla í Austurlöndum nær með 121 prósent GER (e. gross enrollment ratio). Aðgangur barna að menntun hefur nú minnkað stór­ lega og er talið að GER­hlutfallið hafi verið komið niður fyrir 74 prósent árið 2013. Því miður er ekki útlit fyrir að þetta hlutfall fari hækk­ andi aftur nema til komi stóraukinn stuðningur alþjóðasamfélagsins við þá sem standa að mannúðaraðstoð í Sýrlandi og nágrannalöndum þess. Stríðið hefur nú geisað í á fimmta ár og raunveruleg hætta er á að „týnd kynslóð“ sýrlenskra barna verði raunin.“ Fólk á vergangi í Líbanon Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, kynntist vel aðstæðum sýrlenskra flóttamanna í Tyrklandi og Líbanon í ferð þangað á síðasta ári. „Hugmynd okkar um reglulegar skilgreindar flóttamannabúðir er mikil einföldun. Innan við fimm pró­ sent flóttamanna búa í skipulögðum búðum og helst þeir sem eiga sérstak­ lega undir högg að sækja. Flóttamenn í Líbanon halda sjálfir búðir á landi sem þeir fá leyfi til að vera á. Þetta eru óformlegar búðir í raun og veru, við kynntumst aðstæðum flóttamanna í norðurhlutanum nálægt Trípólí og í suðurhlutanum nálægt Thyre. Sumir leigja sér húsnæði, það er oft hálf­ byggt eða lélegt, sumir eru á vergangi og jafnvel ekki í húsnæði og einhverj­ ir eru í skýlum sem hafa verið reist til bráðabirgða. Flóttamannastofnanir og samtök eru síðan bara á ferðinni og aðstoða fólk eins og mögulegt er.“ Fleiri frá Beirút Það er talið mikilvægt að aðlögun flóttafólksins takist vel, því fleiri munu koma frá búðunum í Beirút. Þá verður komin ákveðin reynsla á fyrir­ komulagið en mikill fjöldi Íslendinga réttir því flóttafólki sem hingað er komið hjálparhönd með einum eða öðrum hætti. Tuttugu manna hópur flóttamanna er væntanlegur í febrúar. Þá kemur hópur frá Beirút um mitt árið. Margir flóttamannanna vonast til þess að geta einhvern tímann snúið aftur heim og kvíða því að flytja heimkynni sín um langan veg, eins og til Íslands. Einhverjir hættu við að koma til Íslands, treystu sér ekki til flutnings­ ins. Það er skiljanlegt, jafnvel þótt á næstunni séu litlar sem engar líkur á pólitískri lausn ófriðar sem orsakað hefur flóttamannavandann, þá held­ ur fólk í vonina. Eygló Harðardóttir, félags­ og hús­ næðismálaráðherra, segir mikilvægt að læra af reynslunni. „Íslendingar hafa áður tekið við flóttamönnum og við lærum af því. Við vitum að það er mikilvægt að þeir verði virkir samfélagsþegnar og fái stuðning til aðlögunar.“ Aðstæður flóttafólks í Líbanon Fólkið sem kemur hingað til Íslands hefur búið við ótryggar og erfiðar aðstæður í Beirút. Næstu hópar sýrlensks flóttafólks munu líka koma frá Líbanon. Bjargir þeirra sem þar dvelja eru bágbornar og þörfin fyrir aðstoð mikil. Sýrlensku fjölskyldurnar tvær sem Kópavogsbær veitti móttöku eru að koma sér fyrir á nýjum heimilum sínum. Hjónin Mohammad og Ahlam eiga þrjá syni og dóttur. Börnin eru á leikskóla­ og grunnskólaaldri. Fjöl­ skyldan eru að ná áttum eftir langt ferðalag frá Beirút til Íslands og hefur fengið ótal heimsóknir frá starfs­ mönnum Rauða krossins, Kópavogs­ bæjar og stuðningsfjölskyldu. Ahlam heyrði af gestrisni Íslend­ inga áður en þau komu til landsins en segir fjölskylduna gera sér litla grein fyrir því hvað bíði þeirra hér á landi. Aðstæður þeirra í Beirút voru ákaflega ótryggar og þau eru fegin að vera komin með börnin í samfélag þar sem þau munu geta þrifist. Þau hafa farið í göngutúra um hverfið og farið í verslanir. Börnin bíða þess óþreyjufull að hefja skólagöngu á Íslandi en í Beirút var ekkert form­ legt skólahald. Þau eiga enn margt eftir ógert, eiga eftir að líta betur á fatnað og hluti til heimilisins og ætla að nýta helgina vel. Tengiliður fjölskyldunnar hjá Rauða krossinum, Hrafnhildur Kvaran, segir líklegt að börnin komist í skóla eftir um það bil tvær vikur. Á Akureyri hlaut flóttafólkið góðar móttökur. Rauði krossinn í Eyjafirði bauð fjölskyldunum fjórum í mat í húsnæði sínu ásamt stuðnings­ fjölskyldum þeirra, sjálfboðaliðum Rauða krossins og fulltrúum frá Akureyrarbæ. Sigurður Ólafsson, formaður deildarinnar, Sveinn Krist­ insson, formaður Rauða krossins á Íslandi, og Eiríkur Björn Björgvins­ son bæjarstjóri buðu hópinn vel­ kominn. Börnin voru hrifin af snjónum og fóru fljótlega út að leika sér. Þau kipptu sér ekki upp við kuldann en verða vel búin í vetur því verslunin Ellingsen bauð þeim vetrarfatnað. Annað norðlenskt fyrirtæki, Varma, bauð bæði börnum og fullorðnum húfur og sokka úr ull. Ekki líður á löngu þar til börnin á Akureyri hefja skólagöngu og íslenskunám. Eldri börnin eru óþreyjufyllri en þau yngri að hitta nýja skólafélaga sína. Í daglegu lífi fá svo fjölskyldurnar aðstoð stuðningsfjölskyldna sinna. Fyrstu dagar flóttafólks á Íslandi Mohammad með dóttur sinni á flug- vellinum í París. FréTTaBLaðið/KrisTjana Börn flótta- manna hefja skólagöngu sína í kópavogi og á akureyri næstu vikur og fá dygga aðstoð til aðlögunar. Mynd/rauði Krossinn aKureyri sýrlenskir strákar skemmtu sér í snjónum á akureyri. 2 3 . j a n ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r32 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.