Fréttablaðið - 23.01.2016, Page 76
Nýlega tók Margrét Pétursdóttir við
formennsku í Félagi löggiltra end-
urskoðenda (FLE) en félagið varð
áttatíu ára á síðasta ári. Töluverðar
breytingar hafa átt sér stað í grein-
inni undanfarin ár og hafa endur-
skoðendur verið í stöðugri nafla-
skoðun um starfsemi stéttarinnar,
ekki bara á Íslandi heldur um allan
heim að hennar sögn. „Evrópusam-
bandið fór af stað með stórt verk-
efni með það að markmiði að kanna
hvað mætti betur fara í starfsum-
hverfi endurskoðenda með sérstaka
áherslu á félög tengd almannahags-
munum. Það hefur í kjölfarið gefið
út tilskipun sem felur í sér viðamikl-
ar breytingar á þeim reglum sem
endurskoðendum ber að starfa eftir
og mun m.a. auka þær upplýsingar
sem notendur reikningsskila fá í
árituninni. Fram undan er því vinna
vegna innleiðingar endurskoðunar-
tilskipunar Evrópusambandsins
og hefur atvinnu- og nýsköpunar-
ráðuneytið veg og vanda af þeirri
vinnu og hefur með sér til fullting-
is vinnuhóp sem m.a. FLE tekur
þátt í. Auk þess hefur FLE skipað
eigin ráðgjafahóp sem þegar hefur
hafið yfirferð á tilskipuninni og er
það stærsta verkefnið sem er fram
undan hjá félaginu á næstunni.“
Helstu breytingar, sem er að
vænta að sögn Margrétar, snúa að
auknu gagnsæi við áritun endur-
skoðenda, frekari reglum um óhæði
sem taka t.d. á því hvaða verkefn-
um er heimilt að sinna og ákveðn-
um reglum um ráðningar tímabil
endurskoðenda félaga sem tengjast
almannahagsmunum. „Auk þess má
nefna breytt fyrirkomulag á gæða-
eftirliti með störfum endurskoð-
enda, sérstaklega hvað varðar félög
tengd almannahagsmunum. Einnig
breytast viður lög og refsiheimildir.“
Fleiri breytingar í vændum
Margrét nefnir auk þess tvennt
annað sem er í vinnslu þessa dag-
ana sem mun hafa mikil áhrif á
störf stéttarinnar. „Annars vegar
eru það breytingar á lögum um
ársreikninga sem nú liggja fyrir í
frumvarpsdrögum og hins vegar
umræðan um endurskoðun smærri
félaga. Breytingarnar á lögum um
ársreikninga snúa m.a. að því að
einfalda skýrslugerð fyrir smærri
aðila og munu allra smæstu félög-
in skv. því frumvarpi ekki þurfa að
útbúa formlegan ársreikning.“
Umræðan um endurskoðun
smærri félaga og spurningin um
hvort sömu reglur eigi að gilda um
endurskoðun smærri og stærri fé-
laga hefur fengið byr undir báða
vængi vegna samstarfsverkefn-
is félaga endurskoðenda á Norður-
löndunum að hennar sögn. „Það
verður spennandi að sjá hvert sú
umræða leiðir okkur, en eins og þeir
sem fylgjast með þessari umræðu
vita hefur lengi verið rætt um það
hvort aðlaga þurfi reglur og staðla
að smærri félögum eða ekki.“
Fjölbreytt hlutverk
Margrét hóf störf við endurskoð-
un árið 1998 en útskrifaðist frá Há-
skóla Íslands árið 2003. Í dag stýrir
hún endurskoðunarsviði EY en hún
átti áður sæti í menntunarnefnd
FLE, hefur starfað sem gæðaeftir-
litsmaður FLE auk þess að vera
varaformaður félagsins árin 2013-
2015. Hún var kjörin formaður FLE
í október á síðasta ári og mun sinna
því starfi næstu tvö árin.
Helsta hlutverk FLE, að sögn
Margrétar, er að gæta hagsmuna fé-
lagsmanna samkvæmt lögbundnum
verkefnum og samþykktum félags-
ins. „FLE stuðlar að faglegri þróun
stéttarinnar, er vettvangur skoð-
anaskipta og eflir um leið félagslíf
meðal félagsmanna með fjölbreytt-
um viðburðum og öðrum vettvangi
til félagsstarfa.“
Að sögn Margrétar er FLE fyrir
alla þá sem hlotið hafa löggildingu
sem endurskoðendur á Íslandi auk
þess sem aukaaðild er veitt þeim
sem skráðir eru í starfsþjálfun hjá
endurskoðunar fyrirtækjum. „End-
urnýjun og fjölgun í stéttinni er þó
ákveðið áhyggjuefni, sérstaklega
þegar haft er í huga að yfir 40%
félagsmanna eru 55 ára eða eldri.
Enda voru stórir árgangar sem út-
skrifuðust á árunum 1980-1985 og
eru nú öðru hvoru megin við 60
ára aldurinn. Þess má jafnframt til
gamans geta að á þriggja ára tíma-
bili eftir 1980 útskrifuðust 40 endur-
skoðendur en á síðastliðnum þrem-
ur árum hafa einungis 23 útskrif-
ast sem ættu að taka við keflinu af
þeim hópi.“
Hún segir nauðsynlegt að fjölga
í stéttinni og fá fleiri aðila þar til
starfa. Það sé þó ekki einfalt mál því
miklar kröfur séu gerðar til mennt-
unar endurskoðenda. „Þeir þurfa
að ljúka fimm ára háskólanámi auk
þess að vinna við fagið í þrjú ár og
taka í lok þess tímabils próf sem
er mjög krefjandi og ekki allra að
stand ast. Ég hvet samt ungt fólk til
að hugleiða endur skoðun sem starfs-
frama. Starfið er mjög fjölbreytt og
krefjandi og það er spennandi að fá
að taka þátt í fjölbreyttum verkefn-
um með viðskiptavinum auk þess að
árita reikningsskil.“
endurmenntun sinnt vel
Að sögn Margrétar leitast félagið
einnig við að tryggja fjölbreytt
framboð endurmenntunar sem upp-
fyllir mismunandi þarfir félags-
manna og um leið lagaskyldu um
framboð endurmenntunar. Ríkar
endurmenntunarkröfur eru gerðar
til endurskoðenda og ber þeim að
stunda endurmenntun sem nemur
120 klukkutímum á hverju þriggja
ára tímabili.
„Í þessu samhengi má nefna að
FLE stóð fyrir samtals 26 atburð-
um á seinasta starfsári í þeim til-
gangi að efla og viðhalda endur-
menntun endurskoðenda. Heildar-
mæting á þessa atburði var tæplega
1.400 manns. Við erum einnig með
Námsstyrkja- og rannsóknasjóð en
honum er ætlað að efla þekkingu
stéttarinnar með því að styrkja
aðila til framhaldsnáms í endur-
skoðun og veita einnig styrki til
eflingar rannsókna í endurskoðun
og reikningshaldi. Sjóðurinn hefur
þegar styrkt einn aðila til doktors-
náms í endurskoðun og veitti ný-
lega tvo rannsóknarstyrki til aðila
sem starfa hjá Háskóla Íslands.“
Frjótt erlent samstarF
Meðal annarra verkefna FLE er
að koma á og viðhalda tengslum
við hagsmunaaðila og aðra sem
hafa hagsmuna að gæta af störf-
um endur skoðenda. „Um leið er
FLE einnig ætlað að kynna hlut-
verk og störf endurskoðenda út á
við. Félagið er því í forsvari við að
gæta að og efla ímynd stéttarinn-
ar gagnvart almenningi, viðskipta-
vinum og öðrum hagsmunaaðilum,
í þeim tilgangi að viðhalda og verja
traust og heilindi hennar.“
Þess má jafnframt geta að
FLE er virkur þátttakandi í er-
lendu samstarfi en þar er helsta
áherslan á samstarf við Norður-
löndin (NRF) og Evrópusamband
endurskoðenda (FEE). „Þá leitast
félagið við að uppfylla skuldbind-
ingar Alþjóðasamtaka endurskoð-
enda (IFAC) auk þess sem okkur er
einnig ætlað að miðla þeim upplýs-
ingum sem aflað er með alþjóðlegu
samstarfi til félagsmanna okkar
auk annarra hagsmunaaðila eins
og stjórnvalda. Það eru því spenn-
andi tímar fram undan með mörg-
um og fjölbreyttum verkefnum þar
sem félagið þarf að vera í farar-
broddi hvað varðar þróun á starfs-
umhverfi stéttarinnar.“
Það eru
spennandi tímar
Fram undan
Töluverðar breytingar hafa átt sér stað í starfsumhverfi
endurskoðenda undanfarin ár. Nýlega tók Margrét Pétursdóttir
við formennsku í Félagi löggiltra endurskoðenda. Hún segir
spennandi tíma fram undan með fjölbreyttum verkefnum er
snerta þróun á starfsumhverfi stéttarinnar. Fjölbreytt
endurmenntun og frjótt erlent samstarf einkenna starf félagsins.
„Ég hvet samt ungt fólk til að hugleiða endurskoðun sem starfsframa. Starfið er mjög fjölbreytt og krefjandi og það er spenn-
andi að fá að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum með viðskiptavinum,“ segir Margrét Pétursdóttir. MYND/ANTON briNk
FLE stóð fyrir sam-
tals 26 atburðum
á seinasta starfsári í þeim
tilgangi að efla og við-
halda endurmenntun
endurskoðenda.
Bókhald & endurskoðun12 FÓLk 23. janúar 2016