Fréttablaðið - 23.01.2016, Page 86

Fréttablaðið - 23.01.2016, Page 86
Hugmyndin um dul-arfulla stjörnu sem líður um sólkerfið f j a r r i s j ó n u m mannsins nær ára-tugi aftur í tímann. Vísindamenn jafnt sem samsæris- kenningasmiðir hafa haldið hug- myndinni á lofti, oftar en ekki með lítið annað í höndunum en víðtæk- ar og vonlausar fullyrðingar. Reiki- stjarna þessi hefur gengið undir ýmsum nöfnum, þar á meðal Plán- eta X, Nibiru og Nemesis. Það er því óhætt að segja að það hafi komið á óvart í vikunni þegar tveir virtir stjörnufræðingar kynntu ti l leiks níundu plánetu sólkerfisins sem þeir höfðu fundið með óbeinum h æ t t i . E n n merkilegri er sú staðreynd að til- kynning vísinda- mannanna var í formi ritrýndrar og afar faglegrar vís- indagreinar sem birt var í virtu tímariti. Höfundarnir eru Mike Brown, stjörnufræðingur og prófessor í reikistjörnufræðum, og hinn 28 ára gamli Konstan- tin Batygin, aðstoðarprófessor í sömu fræðum. Báðir kenna þeir við Tækniháskólann í Kaliforníu (Cal- tech) og báðir hafa þeir fyrir löngu vakið athygli og aðdáun í vísinda- heiminum. Kenning þeirra, sem nú bíður staðfestingar, nær aftur til árdaga sólkerfisins, fyrir 4,5 milljörðum ára. Níunda reikistjarna þeirra hafði þá myndast í aðsópsskífu Sólarinn- ar ásamt hinum reikistjörnunum átta. Á einhverjum tímapunkti þeyttist plánetan út úr skífunni og hefur síðan þá verið á langri spor- braut um Sólina. Umferðartími níundu plánetunnar um Sólina er á bilinu 15.000 til 20.000 ár. Grunsemdir staðfestar Kenning Browns og Batygin á rætur að rekja til athugana sem samstarfs- félagar þeirra, þeir Chad Trujillo og David Rabinowitz, kynntu árið 2015 og tekur til undarlegrar hegð- unar íshnatta sem dóla handan við sporbraut Neptúnusar. Þegar horft er á sólkerfið hornrétt miðað við sólbaug sést hvernig Neptúnus og allar hinar reikistjörnurnar innan hringbrautar hans falla inn í sama sporöskjulaga hringinn. Trujillo og Rabino- witz tóku eftir því hvernig sporbraut dvergreikistjörn- unnar Sednu og fleiri sambæri- legra fyrirbæra í útjaðri Kuiper- beltisins teygja anga sína langt í sömu áttina. Þegar horft er á sólkerfið á hlið kemur í ljós að þessi fyrirbæri deila sömu fastasléttunni sem er ekki sú sama og reikistjörnurnar tilheyra. Niðurstöður þeirra voru að staða fyrirbæranna var afleiðing massamikils fyrirbæris sem truflar sporbraut þeirra. Brown og Batygin tóku nú til sinna ráða og freistuðu þess að útskýra af hverju íshnett- irnir í jaðri sólkerfisins þyrpast saman eins og raun ber vitni. Með því að rýna í sex íshnetti handan brautar Neptúnusar treysta félagarnir sér nú til að draga þá ályktun að ekkert annað en ókunn reikistjarna getur útskýrt þessa undarlegu þyrpingu. Í raun fullyrða Brown og Batygin að það séu 0,007% líkur, eða einn á móti 15.000, að þyrpingin sé tilviljun. „Þangað til að við sjáum fyrirbærið milliliðalaust þá er þetta fyrst og fremst tilgáta — þó afar góð tilgáta,“ segir Brown. „Um árabil hefur menn grunað sterklega að það séu fleiri hnettir þarna úti,“ segir Sævar Helgi Braga- son, formaður Stjörnuskoðunar- félags Seltjarnarness. „Og þá býsna stórir hnettir sem ráði uppbygg- ingu íshnatta utarlega í sólkerfinu. Ef sá hnöttur finnst þá eru það mjög merkilegar fréttir því það kennir okkur ýmislegt um myndun sól- kerfisins.“ Maðurinn sem felldi Plútó Skrautlegur bakgrunnur Mike Browns skiptir nokkru máli í þessu samhengi. Árið 2005 uppgötvaði hann ásamt Trujillo og Rabinowitz hnöttinn Eris. Um stund var Eris talin vera tíunda reikistjarna sól- kerfisins en deilur um stöðu Plútó vöknuðu í kjölfar uppgötvunarinn- ar. Deilur sem á endanum leiddu til þess að nýr flokkur reikistjarna varð til, dvergreikistjarnan, sem Eris og aumingjans Plútó tilheyra nú. Mike Brown drap Plútó og við sátum uppi með sólkerfi skipað átta reikistjörnum. „Það er náttúrulega mjög kaldhæðnislegt ef þetta endar þannig að maðurinn sem felldi níundu plánetuna af stalli finnur síðan aftur níundu plánetuna,“ segir Sævar. Leitin hefst Stjörnufræðingar eru þegar farnir að beina sjónaukum sínum í áttina að dularfullu plánetunni. Brown og Batygin vita nokkuð vel hvar hnött- inn er að finna en það verður hins vegar hægara sagt en gert að finna reikistjörnuna. „Við getum hugsað okkur að ef Sólin er fótbolti í Reykja- vík þá er þessi hnöttur bláber í Vík þegar hann er næst Sólinni,“ segir Sævar og bendir um leið á að ýmis- legt gefi tilefni til að efast um niður- stöður stjörnufræðinganna: „Þetta er byggt á staðsetningu fimm til tíu hnatta sem eru mjög utarlega í sólkerfinu. Þannig að það gæti vel verið að við höfum einfaldlega ekki fundið hnettina sem kollvarpa þess- ari tilgátu. Hnettir sem gætu verið hinum megin við þetta svæði sem menn skoða núna. En eins og sakir standa núna þá er þetta líklegasta skýringin. Síðasti áratugur hefur verið býsna skemmtilegur,“ segir Sævar og það er sannarlega rétt. Stjörnufræðingar hafa sífellt horft lengra og finna nú undarlega íshnetti í jaðri sólkerfis- ins. Uppgötvun Eris var gríðarlega mikilvægur áfangi og fall Plútó sömuleiðis. „Menn héldu að það væri komin góð mynd á sólkerfið, en þessi [nýja] hugmynd segir okkur að við eigum margt eftir ólært.“ Níunda plánetan leynist handan Plútó Yfirlýsing virtra stjörnufræðinga um að níunda reikistjarnan sé á sveimi í sólkerfinu kom sem þruma úr heiðskíru lofti. Nú hefst æsileg leit að nýjum fjölskyldumeðlim sólkerfisins. 2 3 . j a n ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r38 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.