Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 48
Mér leið betur eftir hlaupið núna en í fyrra og var ekkert eftir mig. Fór beint og fékk mér að borða eitthvað sem boðið var upp á inni í tjaldi en auðvitað var ég smástund að ná mér niður,“ segir Sólveig Guðlaugsdóttir eftir að hafa hlaupið hinn 55 kílómetra langa Laugaveg, milli Land- mannalauga og Þórsmerkur, á 7:16:01, og sigrað í flokki kvenna á aldrinum 60-69 ára. „Ég varð stolt eftir á þegar Ármann, mágur minn, benti mér á að ég hefði sleg- ið brautarmet,“ viðurkennir hún. „Gamla metið er frá 2009 og mismunurinn nemur 25 mínútum.“ Hún segir þó ekki hafa verið kjörað- stæður í ár. „Það var bölvað rok í fangið meira og minna alla leiðina og svo komu svaka dembur. Margir flottir hlauparar héldu ekki fyrri tímum sínum.“ En hljóp hún í einum spretti? „Ég stoppaði á drykkjarstöðum og fékk mér vatn, annað ekki. En ég gekk upp brekkur. Hækkun á Laugaveginum í heild er um 1.900 metrar, ef hún er tekin saman. Mestu brekkurnar eru upp í Hrafntinnusker en svo eru þær víða á leiðinni.“ Sólveig kveðst hafa þjálfað sig mark- visst fyrir hlaupið frá því í janúar ásamt eiginmanninum Ingvari Kristinssyni. „Við hlupum Laugaveginn í fyrra líka, þá var ég bara ekki orðin nógu gömul! Mér gekk mun betur núna enda höfum við haldið okkur við, en vorum tiltölulega róleg frá september til janúar, svo fórum við að taka á því. Lengsta vegalengd sem við fórum núna fyrir hlaupið voru tæpir 37 kílómetrar í einu,“ lýsir Sólveig og nefnir Heiðmörkina og leiðina upp og niður Esju meðal æfingastaða. „Tvisvar höfum við líka hlaupið frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi upp í Bæjarstaðarskóg og þaðan í Skaftafell.“ Langhlaup kveðst Sólveig ekki hafa farið að iðka fyrr en eftir fimmtugt. „Það má segja að ég sé búin að hlaupa styttri vegalengdir í níu ár. Ég ætlaði að ganga á Hvannadalshnjúk 2008 en varð að snúa við vegna veðurs. Var búin að þjálfa mig fyrir gönguna og vildi svo halda mér í því formi sem ég þóttist vera komin í. Þá fór ég að hlaupa og Ingvar kom fljótlega með mér. Við höfum tekið rólega tíma af og til en þó alltaf getað hlaupið 10 kílómetra án þess að stoppa. Mér finnst þetta ótrú- lega góð og skemmtileg hreyfing og verð ábyggilega gutlandi í þessu sporti eitt- hvað áfram. Ég er ekkert í keppnum úti um allar jarðir og finnst miklu skemmti- legra að hlaupa annars staðar en á mal- bikinu. Að hlaupa úti í víðáttunni fyllir mig frelsistilfinningu. Helsta vandamálið hjá mér er að mér finnst svo gaman og ég gæti farið miklu hraðar stóran part af vegalengdinni en veit að þá mundi ég ekki duga alla leið. Maður getur skemmt sig á því að muna ekki hvað maður er að gera. Þannig að aðalatriðið er að hafa kollinn í lagi.“ gun@frettabladid.is Að hlaupa úti í víðáttunni fyllir mig frelsistilfinningu Sólveig Guðlaugsdóttir varð 35. í röðinni af 138 konum sem luku Laugavegshlaupinu í ár. Hún fór hraðar yfir en konur í flokki 60-70 ára hafa áður gert frá því hlaupin hófust árið 1996. Hún byrjaði seint að iðka hlaup en býst við að „gutla“ í þessu sporti eitthvað áfram. „Það sem skiptir mestu máli til að komast alla leið er að æfa vel og fara ekki of hratt svo að skrokkurinn endist alla leið,“ segir Sólveig. FRÉTTABLAÐIÐ/LAUFEY ELÍASDÓTTIR Helsta vandamálið hjá mér er að mér finnst svo gaman og ég gæti farið miklu hraðar stóran part af vegalengd- inni en veit að þá mundi ég ekki duga alla leið. Maður getur skemmt sig á því að muna ekki hvað maður er að gera. Þannig að aðalatriðið er að hafa kollinn í lagi. Merkisatburðir 1030 Stiklastaðaorusta er háð í Noregi. Ólafur digri er veginn og er upp frá því nefndur Ólafur helgi. 1907 Friðrik 8. Danakonungur kemur í heimsókn til Íslands. 1934 Ríkisstjórn Hermanns Jónassonar tekur við völdum. 1957 Alþjóðakjarnorkumálastofnunin er stofnuð af Sameinuðu þjóðunum. 1977 Þýskur bankaræningi, sem er e‚irlýstur erlendis, er handtekinn í Reykjavík með 277 þúsund mörk. 1985 Í Þorlákshöfn er vígð kirkja í minningu Þorláks biskups Þórhallssonar. 2011 Stjórnlagaráð a‡endir Alþingi formlega frumvarp sitt að nýrri stjórnarskrá. Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánar- bússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.