Fréttablaðið - 29.07.2017, Side 62

Fréttablaðið - 29.07.2017, Side 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 23.07.17- 29.07.17 INNLIT Í 38 FERMETRA ÍBÚÐ Sara Björk Purkhús og Ágúst Orri Ágústsson búa í íbúð sem er skráð 38 fer- metrar. Hver fermetri er nýttur vel enda hafa þau dundað sér við að innrétta rýmið vandlega. Meirihluti húsgagnanna sem prýðir heimilið kemur úr Rúmfatalagernum, þar á meðal uppáhaldshúsgagn Söru. „Nánast öll húsgögnin okkar eru úr Rúmfatalagernum og líka margt annað smádót.“ KOMIN Á FULLT Á NÝJUM STAÐ Ólafía Kristjánsdóttir og Andri Már Engilbertsson hafa opnað húðflúr- stofuna sína aftur á nýjum stað eftir að stofan var eyðilögð í fyrra. „Nýja stofan er með öðru sniði en gengur og gerist á Íslandi og það er augljóst að mikið hefur verið lagt í að ná fram notalegu andrúmslofti.“ VANDASAMT AÐ KAUPA FÖT Í STÓRUM STÆRÐUM Förðunarfræðingurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir upplifir að það sé erfitt að kaupa föt í stórum stærðum á Íslandi. Hún segir úr- valið af fötum í stórum stærðum vera lítið og skipulagið vera skrítið. „Það væri gott ef búðir hétu ekki alltaf einhverju nafni sem bendir til að þær selji „plus size“ föt,“ sagði Fanney meðal annars í viðtali við Lífið. CHAD SMITH LEIKUR TROMMULISTIR Chad Smith, trommuleikari Red Hot Chili Peppers, kemur fram Í Hörpu á sunnu- daginn og mun þar leika trommulistir sínar og í leiðinni ausa úr visku- brunni sínum fyrir áhugasama. „Trommarar hafa kannski mestan áhuga á þessu en þetta er samt sem áður fyrir alla,“ sagði trommarinn Arnar Þór Gíslason sem heldur utan um viðburðinn. Ég byrjaði að vinna hjá flugfélaginu Emirates fyrir rétt rúmu ári. Það er án efa besta ákvörðun sem ég hef tekið. Ég flaug til Danmerkur í viðtal og mánuði seinna flutti ég til Dúbaí,“ segir flugfreyjan Svanhildur Heiða Snorradóttir þegar hún er spurð út í hvernig það kom til að hún flutti til Dúbaí. Hún starfar sem flugfreyja hjá Emirates og fílar það í botn. „Mér finnst gaman að vinna með fólki þannig að vinnan sjálf hentar mér mjög vel. Það sem drífur mig mest áfram í starfinu er tækifærið sem það gefur mér til að ferðast. Við stoppum oftast í sólarhring í því landi sem við fljúgum til þannig að við náum að nýta tímann vel sem við höfum. Ég er virki- lega þakklát fyrir að geta ferðast svona mikið,“ segir Svanhildur. „Fyrir mér er mikilvægt að vinna við það sem manni finnst skemmti- legt að gera. Það er gott að geta blandað á h u g a m á l u m o g vinnu saman af því við eyðum flest svo stórum parti af lífi okkar í vinnu.“ Hefur lært að njóta þess að vera ein Í upphafi sá Svanhildur ekki fyrir sér að búa lengi í Dúbaí. „Það var ekki ætlunin að vera í langan tíma fyrst, ég ætlaði að ferðast eins mikið og ég gæti í um það bil ár og taka svo stöðuna eftir það. En um leið og ég kom hingað þá fann ég að þetta er rétti staðurinn fyrir mig eins og er.“ Aðspurð hvernig Dúbaí sé segir Svanhildur borgina sífellt koma sér á óvart. „Það er eins og Dúbaí sé nafli alheimsins, einhvers konar miðja. Hér býr fólk af 200 þjóðernum og aðeins 15 prósent af íbúunum eru frá Dúbaí. Þannig að borgin er mjög „cosmopolitan“ og kemur alltaf á óvart. Ég upplifi mikið frjálslyndi hérna hvað varðar trú, siði og klæðn- að enda eru svo mörg þjóðerni komin saman í einni borg.“ Sva n h i l du r s e g i r Dúbaí hafa staðist væntingar sínar og rúmlega það og að borgin hafi kennt sér ýmislegt. „Ég hef breyst svo mikið eftir að ég flutti hingað. Ég hef kynnst mismunandi fólki og lært um fjölbreytta siði, hefðir og trú sem hefur breytt skoðunum mínum og sýn á lífið. Ég hef líka lært að njóta þess að vera ein. Ég flutti í borg sem er gjarn- an talin vera yfirborðskennd en hér hef ég náð að verða besta útgáfan af sjálfri mér.“ Saknar íslensku náttúrunnar Aðspurð hvort hún heimsæki Ísland reglulega segir hún: „Ég hef ekki verið dugleg að koma til Íslands af því mig hungrar svo ennþá í fleiri ferðalög og nýja áfangastaði. Þannig að þegar ég fer í frí þá ferðast ég með fjölskyld- unni minni sem kemur og hittir mig einhvers staðar úti í heimi. Það er auðvelt fyrir flest starfsfólk Emirates að heimsækja heimaland sitt og margir heimsækja heimaland sitt einu sinni í mánuði að minnsta kosti. En ég þarf að taka tvö flug hingað, svo ferðalagið verður aðeins lengra við það,“ útskýrir Svanhildur. Hún bætir við að planið sé að vera duglegri að heimsækja Ísland. Svanhildur kveðst sakna sinna nánustu þó að hún njóti sín vel í Dúbaí. „Ég er mjög náin fjölskyldunni minni og vinum þannig að ég sakna þeirra. Ég sakna þess líka að fá mér íslenskan bragðaref,“ segir Svan- hildur. „Og eftir að hafa ferðast um allan heim þá sé ég að ekkert jafnast á við íslensku náttúruna og þétta sam- félagið okkar. Ég finn að ræturnar mínar eru alltaf á Íslandi.“ En er eitthvað sem hún saknar ekki? „Já, það sem ég sakna ekki er veðrið. En planið er að skapa mér líf þar sem ég get verið á Íslandi í hálft ár og einhvers staðar annars staðar yfir vetrartímann, þar sem er heitt. Núna er ég bara að leita að rétta staðnum. En annars er ég er mjög stolt af því að koma frá Íslandi og fólk hvaðanæva úr heiminum sem ég hitti er virkilega heillað af landinu okkar. Samfélagið okkar er svo þétt og náið og við svo vel á veg komin í jafnréttismálum.“ gudnyhronn@365.is Býr í Dúbaí og ferðast út um allan heim Svanhildur hefur ferðast víða undanfarið, hér er hún að njóta á Balí. Svanhildur Heiða Flugfreyjan Svanhildur Heiða Snorradóttir býr í Dúbaí. Hún segir borgina hafa heillað hana strax upp úr skónum og að dvölin þar hafi breytt henni töluvert. Hún sér fyrir sér að búa áfram í Dúbaí. Ljós- og dökkgrátt slitsterkt áklæði. Hægra eða vinstra horn. Stærð: 297 x 241 x 88 cm. Fullt verð: 219.900 kr. Aðeins 164.925 kr. MEGA hornsófi – opinn Aðeins 79.920 kr. DALLAS hægindastóll 20% AFSLÁTTUR ÚTSALA Vandaður hægindastóll. Sveif til að lyfta upp fótaskemli er á hlið stólsins. Leður á slitflötum. Svartur, grár, dökkbrúnn og rauðbrúnn. Stærð: 82 x 96 x 103 cm Fullt verð 99.900 Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Sumar útsalan ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR 25% AFSLÁTTUR ÚTSALA SÍ ÐU ST U DA GA R 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.