Fréttablaðið - 29.07.2017, Blaðsíða 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Sirrý
Hallgrímsdóttir
BAKÞANKAR
Fréttamaður: „Nú hefur komið í ljós að leikskólarnir eru að grotna niður vegna skorts á
viðhaldi. Hver eru þín viðbrögð?“
Álitsgjafi úr akademíunni: „Hér
eru að koma fram afleiðingarnar
af þessari skefjalausu frjálshyggju,
nýfrjálshyggju, sem öllu hefur
stýrt, auðgildið ofar manngildinu. Í
stað þess að fjárfesta í menntun og
umönnun barna þá er peningunum
eytt í yfirbyggingu og alls konar
gæluverkefni. Auðvitað er hneyksli
að heilsu barna sé stefnt í voða
vegna sinnuleysis og gróðahyggju
sem …“
Fréttamaður: „Ehe, bíddu nú
aðeins …“
Álitsgjafinn: „Það er ekki eftir
neinu að bíða, afleiðingarnar eru
nú að koma í ljós. Sama á við um
mengunarslysið hér um daginn,
fullkomið virðingarleysi og hroki
gagnvart borgarbúum. Það var
einmitt tekið á þessu í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis,
þessi leyndarhyggja og skortur á
gagnsæi. Það á alveg jafnt við um
fjármálakerfið eins og umhverfis-
málin og reyndar ótrúlegt að
enginn skuli hafa axlað pólitíska
ábyrgð á því máli. En þetta er frjáls-
hyggjan í hnotskurn.“
Fréttamaður: „Fyrirgefðu að ég
gríp fram í fyrir þér, en við erum að
tala um hann Dag okkar og meiri-
hlutann í Reykjavík.“
Álitsgjafinn: „Já, þú meinar, altso,
hélt að við værum að ræða annað
sveitarfélag, fyrirgefðu. En já, menn
mega ekki gleyma því að fjárhagur
borgarinnar er þröngur og að mínu
mati hefur gengið þokkalega að
snúa vörn í sókn í þessum málum
þó mikið sé enn óunnið. En það má
ekki horfa fram hjá þætti ríkis-
stjórnarinnar í þessum málum og
nauðsynlegt að menn þar á bæ axli
sína ábyrgð. En Reykjavík var ekki
byggð á einum degi, sjáðu til.“
Myglaðir
leikskólar
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ICELAND ENGIHJALLA,
VESTURBERGI,
ARNARBAKKA
OG GLÆSIBÆ
365.is
.