Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 31. maí 2012 19
Skelfilegur endir er betri en endalaus skelfing, segir þýskt
máltæki, eignað prússneskum
herforingja. Þessi sannindi tauta
nú margir germanar í barm
sinn. Sumir bæta kannski við
einhverjum einföldustu sann-
indum sem nokkru sinni hafa
verið höfð eftir nóbelsverðlauna-
hafa í hagfræði en þau eru þessi:
Það sem getur ekki haldið áfram
gerir það ekki. Valið í Evrópu er
á milli afarkosta. Efnahagslegra
skelfinga eða pólitískrar erfiðis-
vinnu. Og hjá valinu verður ekki
komist.
Bið á byltingu
Það er samt svo að Þýskaland
hefur nægilegt afl til að bjarga
Evrópu. Með ákvörðun í Berlín
væri hægt að leysa skuldavanda
evruríkja. En aðeins í bili. Og
þar liggur hundurinn graf-
inn. Þjóðverjar vilja ekki fórna
efnalegu öryggi sínu nema þeir
trúi því að skuldug og illa rekin
ríki Suður-Evrópu sýni ábyrgð
og skynsemi í framtíðinni. Í til-
viki Grikklands og Ítalíu væri
það hrein bylting og hún er varla
hafin. Í Grikklandi segja vinsæl-
ir menn að landið þurfi ekkert
að borga því Evrópa þori ekki
að láta Grikkland fara á hausinn
og muni redda þessu hvort sem
landsmenn borga skuldir sínar
eða ekki. Álíka stórmennska
er raunar líka nokkuð vinsæl
á Írlandi í aðdraganda þjóðar-
atkvæðis þar. Á Ítalíu hóta hver
hagsmunasamtökin af öðrum að
lama landið ef gengið verður á
skipulögð forréttindi þeirra. Þar
ríkja alls kyns kvótakerfi allt
frá leigubílaakstri til lyfsölu.
Alls staðar er stemning fyrir að
kenna útlendingum um vandann
og í þeim leik fá Þjóðverjar oft-
ast tólf stig.
Tvær leiðir
Um tvær leiðir er að velja.
Önnur er sú að gefast upp á evr-
unni. Þótt þokkalega gengi að
leysa urmul af tæknilegum og
lagalegum hnútum yrði þetta án
nokkurs vafa svo dýrt að heims-
kreppa hlytist af. Hún yrði ekki
endilega langvarandi á heims-
vísu en Evrópa yrði aldrei aftur
stærsta efnahagssvæði jarðar.
Efnalegt öryggisleysi í álfunni
myndi líka án efa breyta henni í
verri stað. Með því yrði heim-
urinn grárri og fátækari. Hin
leiðin er að dýpka samrunann
í Evrópu og tengja lönd evru-
svæðisins svo sterkt saman að
ekki verði aftur snúið. Þetta er
tiltölulega einfalt tæknilega,
svona miðað við annað, en afar
erfitt pólitískt. Þetta krefst víð-
tæks og almenns trausts á milli
landa. Það er einmitt það sem
hefur þorrið í Evrópu að undan-
förnu.
Þrjár kreppur
Kjarni málsins er sá að kreppan
í Evrópu er ekki einföld heldur
þreföld: Bankakreppa, skulda-
kreppa og kreppa vegna síversn-
andi samkeppnisstöðu þjóða
Suður-Evrópu í samanburði við
Norður-Evrópu og Austur-Asíu.
Bankakreppan og skuldakrepp-
an hafa vakið mesta athygli en
það er þriðja kreppan, alltof
hár launakostnaður miðað við
framleiðni í Suður-Evrópu sem
er stærsti vandinn og undirrót
kreppunnar.
Lausn á bankakreppu
Bankakreppuna er hægt að
leysa með sameiginlegum trygg-
ingasjóði fyrir innistæðueigend-
ur sem greiddi út í evrum jafn-
vel þótt viðkomandi land hætti
að nota evrur. Þetta kæmi í veg
fyrir áhlaup á banka í löndum
sem glíma við skuldavanda. Um
leið þyrfti að setja upp sam-
eiginlegan björgunarsjóð fyrir
banka í vandræðum með veðlán.
Líka sameiginlegt fjármála-
eftirlit fyrir evruríki með víð-
tækari valdheimildir en nú eru
til staðar. Allt þetta er gerlegt,
og er líklega þegar í undirbún-
ingi, þótt pólitískar ákvarðanir
um þetta séu óvissar. Ef banka-
kreppan væri eini vandinn væri
málið þar með að stórum hluta
leyst.
Lausn á skuldakreppu
Skuldakreppan er tengd þessu
en er erfiðari. Hún væri þó vel
leysanleg ef tvennt kæmi til.
Annað er aukið traust á því að
stjórnmálamenn og kjósendur
í Suður-Evrópu sýni í framtíð-
inni meiri skynsemi og ábyrgð
en hingað til. Þetta myndi gera
ríkum þjóðum norðursins kleift
að standa að útgáfu sameiginlegra
skuldabréfa fyrir evrusvæðið.
Það myndi lækka stórlega vexti
fyrir skuldsett ríki og leysa
skuldakreppuna í bili. Hitt er
trú á hagvexti í náinni framtíð.
Hann er hins vegar undir því
kominn að sjálft aðalvandamálið
verði leyst sem er léleg sam-
keppnisstaða Suður-Evrópu.
Lausn á samkeppnisvanda
Hér vandast málið. Þetta snýr
að hverju ríki fyrir sig en ekki
að ESB sem gerir þetta hins
vegar mögulegt með sameigin-
legum markaði sínum. Þarna
koma rammir sérhagsmunir
í veg fyrir lausnir. Á endan-
um snýst þetta þó um fremur
einfalda hluti. Ástæða þess að
Þýskaland er sterkt og ríkt þessi
árin er sú að laun í landinu hafa
ekki hækkað umfram afköst. Í
Suður-Evrópu væri hægt að gera
efnahagsbyltingu með aðeins
tveimur reglum sem báðar eru
almennt virtar, svona í það heila
tekið, í betur megandi ríkjum
Evrópu. Önnur er að sérhags-
munir víki fyrir almennum
hagsmunum. Hin að laun fari
ekki fram úr alþjóðlegri sam-
keppnishæfni atvinnulífsins.
Réttur
Evrópumenn eiga ekki guð-
legan rétt á betri lífskjörum
en Asíumenn eða Afríkumenn.
Lífskjör verða til með kunnáttu-
semi og þekkingu í efnahagslífi
og skynsemi og ábyrgð í stjórn-
málum. Vond stjórnmál þar sem
sérhagsmunir í atvinnulífi og
stundarhagsmunir í pólitík eru
ráðandi eitra fyrir þjóðum. Sú
eitrun veikir nú þjóðir frá sólar-
löndum til norðurhafa.
Í DAG
Jón Ormur
Halldórsson
dósent
Eitrað fyrir þjóðum
„Himneskir lífrænir gosdrykkir úr fyrsta okks
hráefni og allir í fjölskyldunni nna eitthvað
við sitt hæ.“
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus · www.lífrænt.is
Láttu hjartað ráða
AF NETINU
Firrt fjölþjóðastofnun
Allt er til í heimi stofnana. Vissi ekki,
að til er UNWTO, skammstöfun fyrir
Ferðamálastofnun Sameinuðu þjóð-
anna. Ekki er vitað til, að stofnunin
hafi nokkurn tíma gert neitt gagn.
Að minnsta kosti hef ég aldrei frétt
af neinu slíku. Um daginn vann hún
það afrek að velja Robert Mugabe,
einræðisherra Zimbabwe, sem
heiðurs-ferðamálafulltrúa heimsins.
Þessi 88 ára gamli dólgur er samt
eftirlýstur fyrir glæpi gegn mann-
kyni og er í ferðabanni til Evrópu og
Bandaríkjanna. Svo tjúlluð ákvörðun,
að hún er ekki einu sinni fyndin. Fjöl-
þjóðastofnun er svo firrt, að hún gerir
Sameinuðu þjóðirnar að athlægi.
http://jonas.is/
Jónas Kristjánsson
Innflytjendur
og íslensk tunga
Það er ekki gott ef innflytjandi sem vill
ekki læra íslensku, þó að hann hafi
til þess alla möguleika, kvartar síðan
yfir samskiptaerfiðleikum í landinu.
En sú staðreynd að innflytjandi getur
ekki talað íslenskuna þýðir alls ekki
sjálfkrafa að hann nenni ekki að læra
hana. Auk þess er raunin sú að margir
innflytjendur sem ekki kunna íslensku
vel leggja þó mikið af mörkum inn
í íslenskt samfélag. Ef ég skoða
aðeins í kringum mig þá starfa margir
sem leiðsögumenn og taka á móti
hundruðum ferðamanna frá heima-
landi sínu, aðrir starfa sem tungu-
málakennarar í skólum og margir
Íslendingar njóta þjónustu þeirra.
Einnig er oft bent á það, í umræðunni
um vinnumarkaðinn almennt, að
innflytjendur sinna þar störfum sem
Íslendingar kæra sig ekki um.
http://toshiki.blog.is
Toshiki Toma