Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 56
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR44 bio@frettabladid.is Fyrsta helgi júnímánaðar verður helst til róleg í kvikmyndahúsunum. Aðeins ein mynd verður frumsýnd um helgina og er það myndin Moonrise Kingdom sem er fjallað um hér að neðan. Tvær myndir voru þó frumsýndar í gærkvöldi. Ber þar fyrst að nefna nýj- ustu mynd Twilight-leikkonunnar Kristen Stewart, Snow White and the Huntsman. Stewart fer með hlutverk sjálfrar Mjall- hvítar í þessum útúrsnúningi hins fræga ævintýris. Volduga og fallega myrkradrottningin Ravenna, leikin af Charlize Theron, fær fregnir af því í gegnum töfraspegilinn sinn að Mjall- hvít sé hennar eina ógn um fegurð og völd. Hún leggur þá á ráðin um að ráða hana af dögum og neyðir til liðs við sig ungan og efnilegan veiðimann, Eric, leikinn af sjarmörnum Chris Hems- worth. Ráðabrugg drottningarinnar tekur þó nýja stefnu þegar Eric finnur Mjall- hvíti því í stað þess að drepa hana eins og drottningin hafði fyrirskipað þá snúa þau bökum saman og skipuleggja aðgerðir til að koma drottningunni fyrir kattarnef í eitt skipti fyrir öll. John Cusack leikur rithöfundinn og ljóð- skáldið Edgar Allan Poe í þrillernum The Raven. Myndin gerist árið 1849 og fjallar um óðan mann sem byrjar að fremja morð eftir bókum Poe. Ungur rannsóknarlög- reglumaður fær því rithöfundinn í lið með sér til að góma brjálæðinginn. - trs Mjallhvít án dverga og bókamorð SNÚA BÖKUM SAMAN Mjallhvít og veiðimaðurinn sem átti að drepa hana snúa bökum saman og ráðast gegn vondu drottningunni í myndinni Snow White and the Huntsman. Kvikmyndin Moonrise Kingdom verður frumsýnd í Bíó Paradís annað kvöld. Myndin er í leikstjórn Wes Anderson og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Moonrise Kingdom gerist árið 1965 og segir frá tólf ára göml- um strák sem verður ástfanginn af stúlku og saman ákveða þau að flýja saman út í óbyggðir eyjunn- ar sem þau búa á. Á meðan yfir- völd leita barnanna gerist aftaka- veður sem fær hið litla samfélag til að fara á annan endann. Hasar- leikarinn Bruce Willis fer með hlutverk lögreglustjórans Captain Sharp, Edward Norton leikur skátaforingjann Randy Ward og gæðaleikararnir Bill Murray og Frances McDormand leika for- elda Suzy Bishop, stúlkunnar er strýkur með piltinum að heiman. Með önnur hlutverk fara Tilda Swinton, Jason Schwartzman og hin ungu og efnilegu Jared Gilman og Kara Hayward. Wes Anderson leikstýrir mynd- inni og skrifaði einnig handritið að henni ásamt Roman Coppola, syni leikstjórans Francis Ford Coppola. Myndin var opnunarmynd kvik- myndahátíðarinnar í Cannes og hlaut þar góðar viðtökur áhorf- enda sem og gagnrýnenda. Moon- rise Kingdom var frumsýnd í Bandaríkjunum fyrir viku síðan og sló þá met yfir tekjur á hvern sýningarsal á einni helgi. Mynd- in halaði inn 17.082.748 krónum á hvern sal og er það meira en nokk- ur leikin kvikmynd hefur gert fram að þessu. Myndin hefur hlotið frábæra dóma og er með 96 prósent fersk- leikastig á vefsíðunni Rottentom- atoes.com. Gagnrýnendur segja myndina fallega skotna og vel leikna og sumir ganga svo langt að segja þetta bestu kvikmynd Andersons til þessa. Meistaraverk frá Anderson FLOTTIR LEIKARAR Bruce Willis fer með hlutverk lögreglustjórans Captain Sharp í Moonrise Kingdom. Frances McDormand leikur móður ungrar stúlku sem strýkur að heiman með ástinni sinni. HELDUR SIG VIÐ ÞAÐ SEM HANN ÞEKKIR > LEIKUR ÁSTKONU TIMBERLAKE Breska leikkonan Gemma Arterton hefur tekið að sér hlutverk í mynd- inni Runner Runner sem skart- ar þeim Justin Timberlake og Ben Affleck í aðalhlutverkum. Tökur á myndinni hefjast í júní en leikstjóri er Brad Furman. Arterton á að leika ástkonu Timberlake, sem bregður sér í hlutverk spilafíkils í Runner Runner sem er frumsýnd á næsta ári. Wes Anderson vinnur gjarnan með sama fólkinu aftur og aftur og á meðal annars gott samstarf við leikarana Owen Wilson, Jason Schwartzman, Anjelicu Houston og Bill Murray. ● Anderson skrifaði handritið að kvikmyndinni Bottle Rocket ásamt Owen Wilson árið 1996 og að myndinni Rushmore, sem kom út árið 1998. ● Anderson og Wilson skrifuðu einnig handritið að The Royal Tenenbaums sem kom út árið 2001. Owen fer að auki með hlutverk í myndinni ásamt Gene Hackman, Anjelicu Houston, Gwyneth Paltrow, Ben Stiller, Bill Murray og Luke Wilson, yngri bróður Owens Wilson. ● Bill Murray fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni The Life Aquatic with Steve Zissou sem frumsýnd var árið 2004. Owen Wilson, Cate Blanchett og Anjelica Houston fara einnig með hlutverk í myndinni. ● The Darjeeling Limited skrifaði Anderson ásamt Jason Schwartzman og Roman Coppola. Myndin var sýnd árið 2007 og aftur voru það Owen Wilson, Jason Schwartzman og Anjelica Houston sem fóru með aðalhlutverkin. ● Brúðu- og teiknimyndin Fantastic Mr. Fox var skrifuð í samstarfi við handritshöfundinn Noah Baumbach, sem Anderson hefur gjarnan unnið með, og ljáðu George Clooney og Meryl Streep refunum raddir sínar. Það ríkir mikil eftirvænting eftir stórmyndinni Prometheus, nýjustu kvikmynd leikstjórans Ridleys Scott. Myndin verður frumsýnd í Bretlandi um helgina og kveðst Scott ánægður með afraksturinn. Prometheus skartar Noomi Rapace, Michael Fassbender, Guy Pearce, Idris Elba, Logan Mars- hall-Green og Charlize Theron í aðalhlutverkum og líkt og kunn- ugt er orðið var myndin tekin upp að hluta til hér á landi. Tökur hóf- ust í mars í fyrra og er áætlaður kostnaður við gerð myndarinnar um 15 milljarðar króna. „Þegar maður gerir mynd þá er betra að hlusta á sem fæsta. Ég átti þó í góðu sambandi við fram- leiðslufyrirtækið því maður hlust- ar á hvern þann sem gefur manni svo mikinn pening til að búa til kvikmynd,“ sagði Scott í viðtali við Empireonline.com. Prometheus er sjálfstæð forsaga kvikmyndar- innar Alien, en geimveran ógur- lega mun þó ekki reka upp kollinn í hinni nýju mynd. Scott fullvissar aðdáendur um að þrátt fyrir það verði myndin spennandi. „Hún verður óþægileg til að byrja með, svo kemur áfallið. En það hefur ekkert með geimveru að gera. Myndin mun afhjúpa nokkuð mun stærra en fólk getur ímyndað sér.“ Óþolandi spenna SPENNA Í LOFTINU Ridley Scott segir Prometheus vera meira spennandi en menn geti órað fyrir. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrsta stiklan úr söngvamyndinni Les Misérables var sett á netið á þriðjudag og þykir lofa góðu um framhaldið. Áætlað er að myndin verði frumsýnd í byrjun næsta árs. Söngleikurinn er byggður á skáldsögu franska rithöfundarins Victors Hugo og gerist í Frakk- landi á tímum byltingarinnar. Undir stiklunni hljómar lagið I Dreamed A Dream og má sjá leikarana Hugh Jackman, Anne Hathaway, Russell Crowe, Amöndu Seyfried og Eddie Redmayne í hlutverkum sínum. Leikstjóri myndarinnar er Tom Hooper, hinn sami og leikstýrði hinni vinsælu kvikmynd The King’s Speech. Lofar góðu LOFAR GÓÐU Fyrsta stiklan úr söngva- myndinni Les Misérables lofar góðu um framhaldið að mati gagnrýnenda. Robert Pattinson segist vera búinn að fá nóg af því að leika í unglinga- myndum og vill fara að einbeita sér að nýjum áhorfendahóp. Leikarinn 26 ára gamli skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki sínu sem ástsjúka vampíran Edward Cullen í hinum feykivinsælu Twi- light-myndum. Hann var 15 ára þegar leikaraferillinn byrjaði og átti hann nokkrar myndir á feril- skránni áður en Twilight-ævintýr- ið hófst árið 2008. Í viðtali við tímaritið Shortlist segist hann vera búinn að glata metnaðinum fyrir hlutverki sínu sem vampíran Edward og kveðji því hlutverkið með gleði. Hann er þakklátur fyrir allt sem hlutverkið hafi gefið honum en hann sé nú til- búinn að róa á önnur mið. Upptök- um á fimmtu og síðustu myndinni, Breaking Dawn - Part 2, er lokið en myndin er þó ekki væntanleg í kvik- myndahús fyrr en 16. nóvember. Kveður Edward NÝ MIÐ Robert Pattinson er tilbúinn að kveðja unglingaaðdáendurna og einbeita sér að nýjum áhorfendahóp. - KORT - FERÐABÆKUR - HOPPUKASTALI - GRILLAÐAR PYLSUR - ÓVÆNTIR GESTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.