Fréttablaðið - 31.05.2012, Side 28
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORGEIR ÓLAFSSON
bifvélavirki,
Blásölum 17, Kópavogi,
sem lést sunnudaginn 27. maí, verður
jarðsunginn frá Grensáskirkju mánudaginn
4. júní kl. 15.00.
Hulda Haraldsdóttir
Karl Elí Þorgeirsson Helga Bára Bragadóttir
Ólafur Ágúst Þorgeirsson Jóhanna Þorgilsdóttir
Rut Þorgeirsdóttir Benedikt Benediktsson
Reynir Haraldur Þorgeirsson Kristín Ósk Freysdóttir
afabörn og langafabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐMUNDA ÓLAFSDÓTTIR
húsmóðir,
Víðivöllum 26, Selfossi,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
föstudaginn 25. maí. Útför hennar fer fram
frá Selfosskirkju föstudaginn 1. júní kl. 13.30.
Jón Viðar Guðjónsson Carola Ida Köhler
Steinþór Guðjónsson Sigríður Garðarsdóttir
Reynir Guðjónsson Soffía Stefánsdóttir
Guðbjörg Guðjónsdóttir Sigurður Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn,
ROBERT M. HAUSLER
f. 18. apríl 1951,
lést á Hospice líknarheimilinu í Pennsylvaníu
þriðjudaginn 15. maí sl. Útför fer fram frá
Akraneskirkju og verður auglýst síðar.
Sólveig Ásgeirsdóttir Hausler.
Stofnaður hefur verið styrktarreikningur, 0330-13-301248
kt. 280557-3159. Fjölskyldan.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN BRIEM
Klapparási 3, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann
24. maí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík, föstudaginn 1. júní kl. 15.00.
Þráinn Þórhallsson
Gunnlaugur Þráinsson Sigríður Einarsdóttir
Þórhallur Þráinsson Sif Ormarsdóttir
Magnús Þór Þráinsson
Þóra Þráinsdóttir Jón Einarsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
SKÚLI SKÚLASON
bifvélavirki,
Miðbraut 22, Seltjarnarnesi,
er lést þriðjudaginn 22. maí sl. verður
jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju 4. júní
nk. kl. 13.00.
Hansína Sigurjónsdóttir
Hafsteinn Skúlason Brynja Rannveig Guðmundsdóttir
Áslaug Ingibjörg Skúladóttir Gunnsteinn Guðmundsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÓLÖF KARVELSDÓTTIR
frá Hnífsdal,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn
27. maí. Útför hennar fer fram frá
Langholtskirkju þriðjudaginn 5. júní kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Guðlaugar B. Pálsdóttur reikningsnr. 0142-15-
730008, kt. 011244-4759.
Kristján Pálsson Sóley Halla Þórhallsdóttir
Ólafur Karvel Pálsson Svandís Bjarnadóttir
Guðrún Helga Pálsdóttir
Ólafía Guðfinna Pálsdóttir Arnar Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Flókagötu 4, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 24. maí síðastliðinn.
Útförin auglýst síðar.
Valborg Sigurðardóttir Svavar Sölvason
Gestur Þór Sigurðsson Vilborg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
PÁLMI ÓLASON
skólastjóri, Ytri-Brekkum, Þórshöfn,
andaðist á Landspítalanum 25. maí
sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 5. júní kl. 15.
Elsa Þórhildur Axelsdóttir
Helga Jóna Pálmadóttir Sveinn Aðalsteinsson
Axel Pálmason Tammy Jean Ganey
Gissur Pálmason
Davíð Pálmason Svava Guðjónsdóttir
Óli Pétur Möller Pálmason Jóna María Ásmundsdóttir
Þorbjörg Pálmadóttir Andrés Ívarsson
Pálína Pálmadóttir Ingólfur Pétursson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
HINRIKA ÁSGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Bolungarvík,
síðast til heimilis á Hrafnistu í Hafnarfirði,
og ástkær móðursystir okkar,
GUÐJÓNA HANSÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Bolungarvík,
síðast til heimilis á Grund í Reykjavík,
létust föstudaginn 25. maí sl. Útför þeirra fer fram frá Áskirkju í
Reykjavík föstudaginn 1. júní kl. 13.00.
Stefanía Arndís Guðmundsdóttir Pétur Valdimarsson
Gyða Kristjana Guðmundsdóttir Leó Svanur Ágústsson
Birna Edda Guðmundsdóttir
Guðný Erla Guðmundsdóttir Ríkharð Örn Jónsson
Guðrún Hansína Guðmundsdóttir Guðni Kjartan Þorkelsson
Kristján Ríkharð Guðmundsson Guðbjörg Bragadóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
LAURI OLAVI HENTTINEN
lést 25. maí.
Auður Gísladóttir Henttinen
Guðrún Hannele Henttinen Karl Alvarsson
Hans Vihtori Henttinen Ingunn Alda Sigurðardóttir
Ívar Esa Henttinen
Egill Kalevi Karlsson Irma Gná Henttinen
Gréta Liisa Karlsdóttir Auður Ilona Henttinen
Elín Eva Karlsdóttir Styrmir Eero Henttinen
Íris Saara Henttinen Karlsdóttir Hekla Toini Henttinen
Viktor Hugi Henttinen og barnabarnabörn
Verkin tala er heiti fyrirlestra raðar
sem stendur yfir þessa dagana í
Háskólanum í Reykjavík (HR). Í henni
er boðið upp á hádegisfyrirlestra þar
sem kynntar eru rannsóknir fræði-
manna í Tækni- og verkfræðideild
skólans. Á föstudag verða svo opnar
meistaravarnir nemenda í deildinni
frá níu til fimm. „Þessir fyrirlestrar
sýna vel þá áherslu sem er í deildinni á
hagnýt verkefni sem tengjast atvinnu-
lífinu og stuðla að nýsköpun,“ segir
Guðrún Sævarsdóttir deildarforseti
tækni- og verkfræðideildar háskólans.
„Við leggjum þá áherslu í grunnnám-
inu hjá okkur að setja það í samhengi
við raunveruleg verkefni en byggjum
vitaskuld á traustri fræðilegri undir-
stöðu.“
Tækni- og verkfræðideild HR er
stærsta deild skólans í nemendum
talið. „Það má kannski segja að það sé
best geymda leyndarmál menntakerf-
isins hversu stór deildin er og að hún
útskrifar tvo þriðju hluta tæknimennt-
aðra á háskólastigi, það er að segja þá
sem læra verkfræði, tölvunarfræði og
tæknifræði,“ segir Guðrún.
Fyrirlestraröðinni Verkin tala
lýkur á mánudag, 4. júní. Efniviður
fyrirlestranna sem fram undan eru
er fjölbreyttur. Á morgun flytur Ólaf-
ur Wallevik erindið Er íslenskt best í
heimi? Umhverfisvæn steinsteypa. Á
föstudag fjalla Einar Jón Erlingsson
og Hlynur Stefánsson um hermi líkan
af íslenska hagkerfinu og á mánu-
dag segir Jónas Þór Snæbjörnsson
frá greiningu á hegðun mannvirkja
við vindálag. Fyrirlestrarnir hefjast
klukkan 12.15 og standa í hálftíma.
Þeir eru í stofu V1.02 Betelgás og eru
öllum opnir. Á föstudag eru svo sem
fyrr segir opnar meistaravarnir nem-
enda skólans. Nánari upplýsingar er
að finna á heimasíðu HR, www.ru.is.
sigridur@frettabladid.is
VERKIN TALA Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK: RANNSÓKNIR KYNNTAR ALMENNINGI
Best geymda leyndarmálið
í íslensku háskólasamfélagi
GUÐRÚN SÆVARSDÓTTIR Tók við stöðu deildarforseta Tækni- og verkfræðideildar HR síðustu
áramót en deildin útskrifar meirihluta tæknimenntaðra á landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mikki mús mælti sín fyrstu orð í kvik-
myndinni Karnivalbarnið eða The Karnival
Kid sem frumsýnd var þennan dag árið
1929. Myndin, sem leikstýrt var af Walt
Disney og Ub Iwerks, var svarthvít og
framleidd af Walt Disney-stúdíóinu. Karni-
valbarnið var níunda myndin um Mikka
mús en í hinum fyrri hafði heyrst í honum
blístra, hlæja og gráta. Nú var komið að
því að hann tjáði sig og voru fyrstu orðin
hans „pylsur, pylsur,“ eða „Hot dogs,
hot dogs“. Það var Disney sjálfur sem
talaði fyrir Mikka. Auk Mikka komu fram
í myndinni þrjár aðrar söguhetjur, þar á
meðal Mína mús. Þess má geta að talið er
að mögulega hafi þessi fyrstu orð Mikka
verið innblástur pylsulagsins í Músahúsi
Mikka að því er fram kemur á Wikipedia.
ÞETTA GERÐIST: 31. MAÍ 1929
Mikki mús talar í fyrsta sinn
WALT WHITMAN bandarískt skáld
(1819-1892) fæddist þennan dag.
„Vertu forvitinn, ekki dómharður.“