Fréttablaðið - 31.05.2012, Síða 35
HEIMASÍÐUGERÐ
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 Kynningarblað Vefumsjónarkerfi, leitarvélar, internetráðgjöf o.fl.
Þegar við byrjuðum í þessum geira sáum við að það kost-aði annan handlegginn að
koma sér upp og viðhalda heima-
síðu. Við teljum okkur hafa breytt
því og nú er á allra færi að opna
heimasíðu eða netverslun,“ segir
Sæþór Orri Guðjónsson, eigandi
Smartmedia.
„Við höfum til dæmis boðið
upp á staðlaðar vefsíður, netversl-
anir og bókunarsíður án stofn-
gjalds. Viðskiptavinurinn getur
þannig komið sér upp heimasíðu
með 0 króna útborgun gegn 18
mánaða bindisamningi við okkur.
Enn fremur getur viðskiptavin-
urinn valið um fjölda útlita sem
öll eru hönnuð af starfsmönnum
Smartmedia,“ segir Sæþór.
Allar staðlaðar vefsíður fyr-
irtækisins fara einnig í gegn-
um hönnunarferli og eru mót-
aðar í takt við hugmyndir hvers
viðskiptavinar. Sæþór segir net-
verslanir vinsælastar af stöðluð-
um síðum Smartmedia.
„Við sérhönnum einnig vef-
síður fyrir okkar viðskiptavini
og höfum jafnframt verið mikið
í því að setja upp útlit sem hafa
komið frá grafískum hönnuðum
og auglýsinga- og markaðsstof-
um. Fólk er í dag almennt mót-
tækilegra fyrir því að panta vörur
á netinu og fá þær sendar heim. Í
stöðluðu netverslununum okkar
erum við til dæmis með kúnna
sem eru með um 10-15 þús-
und vörur í 200-300 vöruflokk-
um. Það eru engar takmarkan-
ir á fjölda vara svo lengi sem það
er innan þess gagnamagns sem
fylgir með. Okkar þjónusta hefur
gert hverjum sem er kleift að hefja
eigin rekstur, til dæmis með því
að opna netverslun eða kynning-
arsíðu um þá þjónustu sem hann
býður upp á. Við bjóðum lausnir
fyrir einstaklinga og minni fyrir-
tæki sem vilja koma sér á fram-
færi á netinu en einnig fyrir stór
og kröfuhörð fyrirtæki sem reka
verslanir á Íslandi,“ segir Sæþór.
Allar vefsíður Smartmedia
keyra á eigin vefumsjónarkerfi
sem hannað er frá grunni af
starfsmönnum Smartmedia með
skilvirkni og einfaldleika í huga.
Kerfið er á íslensku og viðskipta-
vinir hafa fulla stjórn á öllu efnis-
innihaldi á vefsíðunni sinni. Þeir
geta sjálfir skrifað fréttir, sett inn
myndir og stofnað undirsíður þar
sem kerfið er mjög einfalt í notk-
un.
„Meðal viðskiptavina okkar eru
bæði stór og millistór fyrirtæki
sem vilja nýta sér sérþekkingu
og þjónustu okkar sér til hags-
bóta. Við fáum oft að heyra að
okkur hafi tekist að lækka rekstr-
arkostnað fyrirtækja og aukið
afköst, hvort sem það er í formi
virkni síðunnar eða aukinnar sölu
á vefsíðunni,“ segir Sæþór.
Meðal lausna sem Smart-
media býður upp á eru venjuleg-
ar heimasíður, öflugt netverslun-
arkerfi, bókunarkerfi fyrir gisti-
heimili og ferðaþjónustuaðila,
tímabókunarkerfi og eitt öflug-
asta bílabókunarkerfi landsins.
Þá má einnig nefna tengingu við
reiknings- og bókhaldskerfi eins
og DK, sem gerir rekstur netversl-
unar nánast sjálfbæra.
„Mottóið okkar er að það er allt
hægt, enda þykir okkur gaman að
þróa og hanna eitthvað nýtt með
viðskiptavinum okkar. Fyrir þá
sem vilja kíkja á okkur og spjalla
er alltaf heitt á könnunni í Síðu-
múla 25.“
Gaman að þróa nýjar lausnir
Smartmedia er framsækið margmiðlunarfyrirtæki sem einbeitir sér að vefsíðugerð og sérlausnum fyrir
einstaklinga og fyrirtæki. Smartmedia er einnig áttundi stærsti hýsingaraðilinn á .is lénum á Íslandi.
Starfsmenn Smartmedia hafa yfir að búa áralangri reynslu í vefsíðugerð og margmiðlun ásamt sölu- og markaðssetningu. MYND/GVA