Fréttablaðið - 31.05.2012, Page 58
31. maí 2012 FIMMTUDAGUR46
popp@frettabladid.is
82
Angelina Jolie vakti gríðar-
lega mikið umtal er hún mætti í
svörtum kjól frá Versace tísku-
húsinu á Óskarsverðlaunahá-
tíðina í ár. Athygli fréttamiðla
beindist helst að berum fótlegg
leikkonunnar er gægðist undan
síðkjólnum. Síðan þá hafa fleiri
leikkonur og fyrirsætur fetað í
fótspor Jolie.
Fótleggur Angelinu Jolie varð umfjöllunarefni
flestra slúðurmiðla daginn eftir Óskarsverðlauna-
hátíðina í febrúar. Á rauða dreglinum klæddist Jolie
síðkjól frá Versace með hárri klauf á hliðinni og hefur
fjöldi kvenna leikið þetta eftir síðan þá.
FÓTLEGGURINN UMTALAÐI Angelina
Jolie skildi aldrei hið mikla umtal sem
fótleggurinn hlaut, skiljanlega.
NORDICPHOTOS/GETTY
HVÍTKLÆDD Pólska fyrirsætan Anja Rubik klædd-
ist þessum hvíta kjól á The Met Ball þann 7. maí.
Hún vakti álíka mikla athygli og Jolie nokkrum
mánuðum fyrr.
FÖLBLEIKT Leikkonan Charlize Theron klæddist
þessum kjól við Golden Globes verðlaunahátíðina.
ÓHRÆDD Rihanna
hefur ávallt verið
óhrædd þegar
kemur að tísku. Hér
er hún við frum-
sýningu Battleship.
VINSÆLL TÍSKUSTRAUMUR Leikkonan Freida Pinto
fetaði í fótspor Jolie við frumsýningu De Rouille
et D‘os á Cannes.
Í CANNES Ofurfyrirsætan Natasha Poly
var ófeimin á sýningu Madagascar 3 í
Cannes.
Í FÓTSPOR
JOLIE
Eva Longoria segir að Teri
Hatcher, mótleikkona hennar í
sjónvarpsþáttunum Desperate
Housewives, sé einfari.
Áttunda og síðasta þáttaröðin
lauk nýlega göngu sinni í Banda-
ríkjunum og Longoria tjáði sig
um samskiptin við mótleikkonur
sínar í viðtali við tímaritið OK!
Aðspurð hvort hún hafi átt í
deilum við Hatcher segir Lon-
goria að hún hafi verið einfari
og haldið sig út af fyrir sig. „Ég,
Marcia [Cross] og Felicity [Huff-
man] vorum miklu nánari vegna
þess að við erum stelpulegar og
höfðum gaman af því að vera
saman. Hún vildi ekki vera með
okkur. Það voru engin leiðindi.
Ég held bara að hún sé bara þann-
ig persónuleiki.“
Longoria hyggst nú snúa sér að
kvikmyndum. Hún leikur meðal
annars í væntanlegu myndunum
The Truth og Long Time Gone.
Teri Hatcher var einfari
AÐÞRENGDAR EIGINKONUR Eva Longoria segir að Teri Hatcher sé algjör einfari.
Jessica Biel og Justin Timber-
lake fögnuðu trúlofun sinni ásamt
100 vinum og vandamönnum um
helgina. Það var
stílisti Biel sem
skipulagði veisl-
una en meðal
gesta voru
meðal annars
Ellen DeGene-
res, leikkonan
Amy Adams
og foreldrar
verðandi brúð-
hjónanna.
Timberlake
bað Biel er þau
voru í skíðafríi í kringum jólin í
fyrra. Samkvæmt gestum litu þau
út fyrir að vera mjög hamingju-
söm í veislunni og dönsuðu allt
kvöldið. Parið hefur ekki staðfest
dagsetningu brúðkaupsins en fjöl-
miðlar vestanhafs eru vissir um
að það fari fram í sumar.
Fögnuðu
trúlofuninni
HAMINGJA Biel og
Timberlake brosa
breitt.
ÁR fyllir leikarinn góðkunni Clint Eastwood í dag. Hann fagnar þeim tíma-
mótum eflaust með eiginkonu sinni Dinu Ruiz og börnunum sínum sjö.
„Íslenskar trjáplöntur
eru aðlagaðar okkar veðráttu.“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
Í áratugi hafa íslenskir garðplöntuframleiðendur unnið að því að
byggja upp og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu.
Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðplöntuframleiðenda.
VELDU ÍSLENSKAR TRJÁPLÖNTUR, SÉRMERKTAR ÞÉR.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/S
G
B
5
98
91
0
5/
12
námskeið
Skráning í síma
581 1281
"Crash course"
í júní
Einkatímar
2x í viku í 4 vikur
Skráning er hafin
www.gitarskoli.is