Morgunblaðið - 10.09.2019, Side 18

Morgunblaðið - 10.09.2019, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 ✝ Hulda Alex-andersdóttir fæddist í Hafnar- firði 6. ágúst 1937. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 2. september 2019. Foreldrar henn- ar voru Alexander Guðjónsson og Sig- rún Júlía Sigur- jónsdóttir. Systkini Huldu eru Guðjón, f. 21.5. 1931, d. 23.5. 1931, Aðalheiður, f. 23.2. 1933, og Svanhildur, f. 23.9. 1942. Hinn 4. febrúar 1956 giftist Hulda Magnúsi Nikulássyni, f. m.h. Hildur og eiga þau þrjú börn, Lára Huld m.h. Sverrir Ósmann, eiga þau eina dóttur, Kassöndru Líf, m.h. Gunnar Geir og eiga þau þrjár dætur, Rebekka Rós og á hún tvo syni, unnusti hennar er Þorgeir, Mó- nika Sól, Agatha, Verónika Sif, Birta Ösp, unnusti hennar er Jóhann, Tinna, Tanja, Hulda, Ólöf Amelía og María Ynja. Hulda gekk í Lækjarskóla og eftir gagnfræðipróf vann hún ýmis störf, lengst af við að- hlynningu á Sólvangi. Magnús og Hulda hófu bú- skap í Dvergasteini í Hafnar- firði, þau byggðu sér svo fram- tíðarheimili að Mávahrauni 27 og bjuggu þar í yfir 40 ár. Síð- ustu árin bjó Hulda á Sólvangs- vegi 3. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 10. september 2019, klukk- an 13. 30.1. 1934, d 15.8. 2017, syni hjón- anna Nikulásar Magnússonar og Elísabetar Egg- ertsdóttur. Hulda og Magn- ús eignuðust fjögur börn: 1) Hörður, f. 23.11. 1959, m.h. Margrét Auður Þórólfsdóttir. 2) Sigrún Júlía, f. 19.9. 1963, m.h. Ólafur Haukur Magnússon. 3) Elísabet, f. 12.9. 1970, m.h. Einar Pétur Heið- arsson. 4) Alexander, f. 15.5. 1972, m.h. Melkorka Otradóttir. Barnabörn Huldu eru Heiðar, Elsku mamma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Hjartans þakkir fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Með kveðju og þakklæti, þinn sonur Hörður Magnússon. Það er kominn sá tími að við þurfum að kveðja elsku ömmu okkar. Það er eins og það vanti smá part í hjartað okkar vitandi að þú sért farin frá okkur. Þú varst ein af bestu konum sem við þekkt- um, það var alltaf hægt að koma til þín og fá aðstoð við hvað sem var, sama hvert vandamálið var. En einnig komum við til þín bara til að spjalla, það sem var að hægt að spjalla við þig um allt og ekkert. Það var alltaf jafn gaman á hverjum fimmtudegi þegar afi kom að sækja okkur frænkur upp í skóla og ferðinni var alltaf heitið á Mávahraunið þar sem gleðin var aldrei langt undan. Efst í okkar huga núna eru allar góðu minning- arnar sem við áttum með þér bæði á Mávarhrauninu og Sólvangsveg- inum. Það sem stendur helst upp úr er sunnudagskaffið sem var í hverri viku og það var alltaf jafn gaman að koma. Takk fyrir allt, elsku amma okkar. Þín barnabörn Agatha og Hulda. Elsku amma, hvernig er þetta hægt? Þetta er svo óraunverulegt, þú fórst frá því að vera besta amma í heimi í það að vera bara allt í einu ekki lengur til á nokkr- um dögum. Þú varst alltaf svo hress, jákvæð, skemmtileg og með á nótunum þegar við vorum eitt- hvað að grínast, sem er ekki sjálf- gefið þegar aldursmunurinn er svona mikill. Við höfum misst svo mikið en við eigum allar þessar yndislegu minningar. Það er svo langt frá því að það sé sjálfgefið að einhver nenni að vera með hrúgu af barnabörnum í næturgistingu, við vorum svo margar stundum að við sváfum þversum í rúminu í gestaherberginu svo við kæm- umst allar fyrir. Þegar við vorum yngri þá komum við á Mávahraun- ið nánast á hverjum degi og oft tvisvar á dag. Oft sótti afi okkur í skólann og síðan komum við á Mávahraunið þar sem þú beiðst eftir okkur með grillaða samloku, ís eða það sem okkur datt í hug. Hjá okkur var þetta eitthvað svo sjálfsögð rútína en með tímanum höfum við komist að því að þetta er ekkert sjálfsagt og við erum svo ótrúlega heppnar að hafa átt þig og afa að. Við vorum líka heppnar að eiga ömmu og afa sem keyptu stærsta og besta trampólín sem til var á landinu til að hafa í garð- inum löngu áður en tampólín var eitthvað sem var í öllum görðum. Við erum svo ótrúlega þakklátar fyrir þig og allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Við eigum eftir að sakna þín svo ótrúleg mikið og mjög erfitt að hugsa til þess að við getum ekki komið í heimsókn til þín. Takk fyrir allt, elsku amma, við elskum þig og þú munt alltaf eiga þinn stað í hjarta okkar. Alltaf þínar, Mónika Sól og Verónika Sif. Elsku amma, takk fyrir allt, allar minningarnar, takk fyrir að vera fyrirmyndin okkar og takk fyrir að kenna okkur að fjölskyld- an er númer eitt. Hvern einasta sunnudag á Mávahrauninu í ömmukaffi. Það er eitthvað sem við munum tileinka okkur þegar við verðum ömmur. Maður var alltaf velkomin til þín, alveg sama hvenær. Ég veit að afi tekur vel á móti þér og heldur utan um þig. Við elskum þig meira en orð fá lýst. Góða nótt elsku amma. Rebekka R. Rósinberg Harðardóttir og Birta Ösp R. Harðardóttir. Elsku amma, við munum aldrei gleyma þeim góðu stundum sem við áttum hjá ykkur afa á Máva- hrauni. Við erum svo þakklátar fyrir hvert einasta sunnudags- kaffi og allar heimsóknirnar eftir fimleikaæfingar. Það var alltaf svo gaman að hittast, allar frænk- urnar á Mávahrauni, fara út á trampólínið á meðan þú græjaðir samloku handa öllum hópnum. Takk fyrir allt, elsku amma, þú varst alltaf svo stolt af okkur og alltaf jafn ánægð að fá okkur í heimsókn. Við söknum þín svo sárt en við erum svo þakklátar fyrir það tækifæri að fá að kveðja þig. Þínar Lára Huld, Tinna og Tanja. Það er erfið stund að setjast niður og skrifa eitthvað um hana ömmu. Maður átti ekki von á því að þurfa að kveðja þig svona snemma, vonaðist til að börnin mín myndu fá að alast upp með þér lengur. Krakkarnir tala um hversu æðislegt það hafi alltaf verið að koma til þín, alltaf knús- að hæ og kvatt með knúsi og kossi. Við munum öll sakna þess að koma í heimsókn og alltaf var slegið upp þvílíku bakkelsi með engri fyrirhöfn. Hjá þér fengu krakkarnir undanþágu með gos- drykkju og endalausa ísa. Hauk- ur Máni talar um að þú gerðir heimsins besta bananabrauð, falski hérinn var mitt uppáhald. Húmor þinn gladdi mann alla tíð og átti maður auðvelt með að segja grófa brandara í kringum þig því þú bara tengdir og hlóst með. Ég naut góðs af því að vera fyrsta barnabarnið og var það lengi vel. Fékk að fara með þér og afa tvisvar sinnum til Beni- dorm. Svo fæddist Lára systir og í kjölfarið kom hrúga af stelpum í nokkur ár. Næsti strákur í fjöl- skyldu okkar var Haukur Máni, sonur minn, það varð því 27 ára bið eftir næsta strák. Ég var svo mikið með ykkur meðan ég var að alast upp, man hvað það var mikið áfall þegar við fluttum til Danmerkur. Að hitta ykkur ekki daglega, venjast því að senda ykkur fax og bíða eftir svari til baka. Mikið var það gott að við fjöl- skyldan náðum öll að kveðja þig vel, þú brostir til okkar og krakk- ana og það gefur þeim hlýju í hjartað á þessum erfiðu stund- um. Nú ertu komin á góðan stað og vonandi búin að hitta afa. Þér finnst ekki leiðinlegt að sjá um hann. Við munum sakna þín og elskum þig heitt. Takk fyrir allt, Heiðar, Hildur, Haukur Máni, Helma og Hilmir Magnús. Elsku, elsku amma, ég trúi því ekki að þú sért virkilega farin frá okkur. Það sem þú varst fullkom- in amma. Þú varst bara svo mikið ekta, áttir alltaf nægan tíma og allt sem þú gerðir var einhvern veginn best. Grilluðu samlokurn- ar þínar, rækjusalatið, brauðrétt- irnir, heita kakóið, meira að segja YumYum-núðlurnar voru betri hjá þér. Ég man svo vel þegar ég fékk að gista hjá þér og afa á Máva- hrauninu og þegar ég bað um að fá að hafa það kósý þá var mér pakkað inn í þykka fjólubláa og bleika teppið í sófanum á meðan þú útbjóst besta heita kakó í heimi. Ég mun aldrei gleyma þessari tilfinningu, allri ástinni og umhyggjunni sem þú og afi höfðuð að gefa, mér fannst ég aldrei jafn mikilvæg eins og þeg- ar ég var hjá ykkur. Ég ólst upp við það að mæta í kaffi hjá þér á sunnudögum ásamt stórfjölskyldunni og það að fylgjast með þér galdra fram hvern réttinn á fætur öðrum á hverjum einasta sunnudegi sýndi mér hversu mikið þér þótti vænt um fólkið þitt. Við áttum líka svo ótal margar stundir bara tvær saman þar sem við gátum talað um allt eða bara ekki neitt og stundum sofnuðum við báðar í sófanum. Það er svo ótrúlega sárt að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur, en ég er svo ótrúlega þakklát fyrir allar minningarnar sem ég á um þig og líka allt sem þú gerðir fyrir mig og stelpurnar mínar. Takk fyrir allt, elsku amma, elska þig alltaf. Kassandra Líf. Elsku móðursystir mín, hún Hulda er látin. Margs er að minn- ast, enda var samgangur á milli systranna þriggja mikill á upp- vaxtarárum mínum. Oftar en ekki stungum við mamma upp á því að fá okkur bíltúr í Fjörðinn þegar ég kom heim úr skólanum. Þetta voru góðir tímar. Ekkert var verið að hringja á undan sér heldur haldið af stað frá höfuð- staðnum í fallega Hafnarfjörð þar sem móðurfjölskyldan mín öll bjó. Það þurfti ekkert að hringja á undan sér, því það var alltaf einhver heima. Hulda átti fjögur börn og er ég á aldri við þau tvö yngri. Það var alltaf gaman og notalegt að koma í heimsókn á Mávahraunið og hitta frænd- systkinin og setjast í eldhúskrók- inn hjá henni Huldu. Þar kom maður ekki að tómum kofanum og minnist ég oft hangikjöts- salatsins hennar. Á mínum fullorðinsárum hélt ég áfram að fara í heimsóknir í Fjörðinn. Þegar sonur minn var tveggja ára vorum við mamma í heimsókn hjá Huldu, ég með frumburð minn og miklar kræs- ingar á borðum eins og venju- lega. Ég skrapp frá á salernið og drengurinn var í umsjón systr- anna í nokkrar mínútur. Dreng- urinn bað um að fá að smakka þennan svarta drykk sem var á borðum og auðvitað mátti barnið smakka smá kóksopa! Við hlæj- um ennþá að þessum atburði í fjölskyldu minni því drengurinn átti ekki von á gosi sem í kókinu var og kom það allt út til baka, en í gegnum nefið. Þó hann sé orð- inn 20 ára í dag þá drekkur hann ekki ennþá gos eftir þessa reynslu sína af kóksopanum. Djúpavatn er okkur systkina- börnunum kært, þaðan eigum við margar og góðar minningar. Þó veiðikofinn sé ekki stór þá kom- um við okkur öll fyrir. Við systk- inabörnin röðuðum okkur á gólfið í borðkróknum og oftar en ekki var einhver sem lá undir eldhús- borðinu. En allir voru sáttir og glaðir og þó svo að plássið væri ekki mikið og veiðin lítil, þá var það samveran sem stóð upp úr og gerði Djúpavatnsferðirnar að svo góðum minningum. Hulda var flink í höndunum og passaði hún upp á að hvert barn sem fæddist innan fjölskyldunn- ar eignaðist húfu, en þær voru listaverk hjá henni, bæði klæði- legar og fallegar. Bæði mín börn fengu húfu sem við munum varð- veita. Kannski eiga mín barna- börn eftir að fá að nota þær húfur frá henni Huldu sem munu þá veita þeim yl og hlýju. Mikill kærleikur er á milli systranna og það er mikill missir að henni Huldu okkar og tómlegt verður á systraborðinu á jólaboð- inu í ár. Systurnar hafi lagt mikið upp úr samveru okkar systkina- barnanna og er hefð fyrir góðu jólaballi sem halda þarf í sal þar sem fjölskyldan hefur stækkað mikið. Nú er hún Hulda okkar farin og komin í faðm hans Magga síns en þau kynntust ung og áttu gott líf saman. Ég veit að samfundur þeirra hefur verið þeim kær. Elsku Hörður, Sigrún, Elísa- bet og Alexander og fjölskyldur, missir ykkar er mikill og votta ég ykkur innilegar samúðarkveðjur. Megi góður Guð leiða ykkur og styrkja í sorginni. Rut G. Magnúsdóttir. Hulda Alexandersdóttir Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Ástkær faðir okkar og bróðir, ÓMAR ÁRMANNSSON sérkennari, áður til heimilis að Hólalandi 12, Stöðvarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 5. september. Útförin fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju laugardaginn 28. september klukkan 14. Freyja Yeatman Ómarsdóttir Sunnefa Yeatman Ómarsdóttir og systkini hins látna Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR KARLSSON byggingameistari, Brúnavegi 13, Hrafnistu, varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn 6. september. Útför fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 13. september kl. 11. Sérstakar þakkir til Dýrfinnu Hansdóttur sjúkraliða á Hrafnistu í Reykjavík ásamt starfsfólki fyrir góða umönnun. Edith Randý Ásgeirsdóttir Jón Sigurðsson Guðbrandur Ívar Ásgeirsson Rut Bech Ásgeirsdóttir Arnar Geirdal Guðmundsson Hjördís Bech Ásgeirsdóttir Guðni Birgir Sigurðsson Þórdís Ásgeirsdóttir Steinar Helgason Karl Þórhalli Ásgeirsson Sigríður Bech Ásgeirsdóttir Jóhanna Bech Ásgeirsdóttir Ásgeir Magnús Ásgeirsson Jóhanna Harðardóttir afa- og langafabörn Ástkær eiginmaður minn , faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MARTEINN ELÍASSON, Borgarflöt 1, Stykkishólmi, lést á Landspítalanum sunnudaginn 8. september. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 13. september klukkan 14. Helga Soffía Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Marteinsson Suras Marteinsson Valur Marteinsson Laufey Karlsdóttir Helga Marteinsdóttir Davíð Hafsteinsson Grétar Marteinsson Jóhanna Valdimarsdóttir barnabörn og langafabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR EYLERT GÍSLASON bóndi að Syðra-Skörðugili, lést í faðmi fjölskyldunnar á hjartadeild Landspítalans fimmtudaginn 5. september. Útförin fer fram frá Glaumbæjarkirkju föstudaginn 13. september klukkan 14. Ásdís Sigrún Sigurjónsdóttir Eygló Breiðfjörð Einarsdóttir Borgar J. Jónsson Einar Eðvald Einarsson Sólborg Una Pálsdóttir Elvar Eylert Einarsson Sigríður Fjóla Viktorsdóttir Eyþór Einarsson Þórdís Sigurðardóttir Sigurjón Pálmi Einarsson Linnéa Einarsson og barnabörn Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN MAGNÚS MAGNÚSSON, fv. verkstjóri íþróttavalla Reykjavíkurborgar, lést á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn 20. ágúst í faðmi fjölskyldunnar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til Fjölnis Elvarssonar læknis og hjúkrunarfólks á skilunardeild Landspítalans. Kristrún Bjarney Hálfdanardóttir Þórdís Jónsdóttir Ólafur Helgi Kjartansson Jón Magnús Jónsson Gyða Viðarsdóttir Sigríður Jóna Jónsdóttir Magnús Ásgeirsson Tómas Huldar Jónsson Guðlaug B. Kristmannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.