Morgunblaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 25
Víðir Sigurðsson í Tirana vs@mbl.is „Við hugsum aldrei lengra en til næsta leiks og öll einbeiting okkar er á honum. Við vitum að Albanar eru særðir eftir tapið gegn Frökk- um og búumst við erfiðum leik, eins og alltaf þegar við mætum Albaníu. Þetta eru alltaf baráttu- leikir og mikið um návígi, leikir þar sem tvö jöfn lið mætast og oft- ast enda þeir með eins marks mun,“ sagði Aron Einar Gunn- arsson, landsliðsfyrirliði í knatt- spyrnu, á fréttamannafundi á leik- vanginum í Elbasan í gærkvöld, en þar æfði íslenska landsliðið fyrir leikinn gegn Albönum í undan- keppni EM sem þar fer fram í kvöld. „Við þurfum að vera einbeittir á því að hugsa bara um þennan leik til að fá eitthvað út úr honum. Við erum klárir í slaginn og ég er viss um að það eru albönsku leikmenn- irnir líka,“ sagði Aron. Stressaður fyrir sjö árum „Ef þetta hefði verið fyrir sjö ár- um, og ég tvítugur, þá hefði maður kannski verið dálítið stressaður. En maður er búinn að vera svo lengi í þessu landsliði að það þýðir að maður fer einbeittur í leikina en ekki áhyggjufullur. Hugarfarið í þessum hópi er þannig og karakt- erinn að þetta er samnefnari hóps- ins. Ég finn meira fyrir spennu og tilhlökkun fyrir erfiðum og jöfnum leik. Þetta er bara spennandi. Við erum algjörlega tilbúnir og ég finn á mér að allir eru það,“ sagði framherjinn Jón Daði Böðvarsson, en viðtal við hann í fullri lengd er að finna á mbl.is/sport. Hugsum aldrei lengra en til næsta leiks Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrirliði Aron Einar Gunnarsson á fleygiferð í leik gegn Moldóvu. Í TIRANA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Dagsskipunin hjá Erik Hamrén fyr- ir leikinn gegn Albönum í Elbasan í kvöld er ákaflega einföld. Sigur. Í þeim þriggja liða slag sem nú er kominn upp í H-riðli undankeppni EM í fótbolta, um tvö laus sæti í lokakeppninni á næsta ári, er ein- faldlega bannað að misstíga sig. Ísland, Tyrkland og Frakkland eru öll með 12 stig eftir fyrri um- ferðina. Þau unnu hvert annað og lögðu öll hina þrjá andstæðingana, Albaníu, Moldóvu og Andorra. Mótherji Íslands í Elbasan í kvöld er sá erfiðasti af þessum þremur síðasttöldu. Við sáum vel hversu sterkt albanska liðið er á Laugar- dalsvellinum í sumar þegar Ísland marði 1:0 sigur með glæsilegu ein- staklingsframtaki Jóhanns Bergs Guðmundssonar. Hann er því miður fjarri góðu gamni núna vegna meiðsla. Albanar fengu talsverða gagnrýni fyrir slaka frammistöðu þegar þeir töpuðu 4:1 í Frakklandi á laugar- dagskvöldið. Metnaður þeirra er ef- laust að rétta hlut sinn með sigri á Íslandi, auk þess sem hann myndi gefa þeim örlitla von um að komast í slaginn um annað sætið. Leikir Ís- lands og Albaníu eru alltaf jafnir og tvísýnir og engin ástæða til að ætla að annað verði uppi á teningunum í kvöld. Kolbeinn eflir vopnabúrið Vopnabúr Íslands er hins vegar orðið öflugra á ný með Kolbein Sig- þórsson í fremstu víglínu. Við sáum gegn Moldóvu á laugardaginn hve stór skref hann hefur stigið í sumar í átt að sínu gamla góða landsliðs- formi. Liðið er þrautreynt eftir vel- gengni undanfarinna ára og þarf að taka út úr reynslubankanum í kvöld til að ná í þau þrjú stig sem það þarf á að halda. Íslensku landsliðsmennirnir vita manna best hvað bíður þeirra. Þeir vita mætavel að ekki er hægt að reikna með hjálp frá Andorra og Moldóvu. Það yrði í hæsta máta óvænt ef Moldóva næði stigi af Tyrklandi, þó á heimavelli sé, hvað þá að litla Andorra geti gert frönsku heimsmeisturunum skráveifu í Frakklandi en þessir leikir í sjöttu umferðinni fara fram á sama tíma í kvöld. Ef allt fer eftir bókinni verða Tyrkland og Frakkland bæði með 15 stig í leikslok í kvöld og kappsmálið er því að halda jöfnu við þau áfram og komast líka í 15 stigin með sigri í Elbasan. Hér í Albaníu er heitt, hitinn í gær var nálægt 30 gráðum og spáð er 34 stiga hita í Elbasan dag. Sem betur fer verður klukkan orðin 20.45 að staðartíma þegar flautað verður til leiks og þá ættu aðstæður að vera orðnar þægilegar með um 20 gráðu hita. Allt aðrar og betri en þegar Ís- land vann hér afar mikilvægan sigur í haugarigningu fyrir sjö árum og Gylfi Þór Sigurðsson smellti bolt- anum í stöngina og inn úr auka- spyrnu tíu mínútum fyrir leikslok. Allir með á æfingunni Íslenska liðið hóf æfingu í Elbas- an klukkan 18 í gærkvöld að staðar- tíma og þar voru allir með og allir virðast heilir og klárir í slaginn. Hamrén sagði á fréttamannafundi fyrir æfinguna að engin vandamál virtust í hópnum þó að alltaf væru einhverjir með hnjask hér og þar. Ólíklegt er að Hamrén breyti miklu varðandi byrjunarliðið, en þó er viðbúið að hann spili 4-5-1 í stað- inn fyrir 4-4-2 gegn Moldóvu. Þá gæti Emil Hallfreðsson komið inn á miðjuna, Gylfi farið framar, og þá gæti það orðið hlutskipti Jóns Daða Böðvarssonar að hefja leik á bekkn- um þrátt fyrir flottan leik, mark og stoðsendingu, á laugardaginn. Alb- anar hafa spilað með fimm manna vörn í tveimur síðustu leikjum, gegn Moldóvu og Frakklandi, og kannski þarf landsliðsþjálfari Íslands að bregðast sérstaklega við því. Einfalt markmið í Elbasan  Ísland þarf sigur í kvöld til að halda í við Frakka og Tyrki í slagnum um tvö sæti í lokakeppni EM  Síðasti möguleiki Albana til að blanda sér í baráttuna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Ari Freyr Skúlason, Kolbeinn Sigþórsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson fagna í Laugardal. Árið 1991 kom ég til Albaníu, sem þá hafði í áratugi verið lokað- asta land Evrópu og var nýkomið á braut til frelsis. Verkefnið, auk þess að skrifa um landsleik í fótbolta, var að fjalla um ástandið í landinu og af þeim sökum dvaldi ég í viku í Tirana. Á þeim tíma var Tirana eins og stórt sveitaþorp með gamlar bygg- ingar, hestakerrur og uxakerrur á götum og þjóðvegum í kring. Ný- tískuleg skrautbygging tileinkuð gamla einræðisherranum Enver Hoxha skar sig úr. Fólkið í Tirana var vingjarnlegt og forvitið, tók sjaldséðum útlend- ingi afar vel, nánast bar hann á höndum sér og aðstoðaði þannig að úr varð sennilega eftirminnileg- asta vinnuferð mín. Þegar ég gekk um götur Tirana í gær sá ég fátt sem minnti á árið 1991. Einstaka byggingu sem ég kannaðist aftur við en fann Hoxha- safnið. Það er í niðurníðslu og á það krotuð skammaryrði. Gamla og notalega hótelið sem ég dvaldi á er horfið og verið að byggja á lóðinni. Tirana er orðin heimsborg með glæsihótelum, bönkum, versl- unarmiðstöðvum og flestu öðru sem sést í öðrum borgum í suður- hluta Evrópu. Ég mætti túrista- hópum og hefði getað verið í nán- ast hvaða landi sem er. En eitt hefur lítið breyst. Lands- lið Albaníu og Íslands eru mjög svipuð að getu í fótbolta. Leikurinn sem ég sá í Tirana fyrir 28 árum var það eina leiðinlega í þeirri ferð. Ísland lék langt undir getu og Alb- anía vann 1:0 sigur. Þar sem þessi heimsókn mín til „Lands arnarins“ snýst bara um fótboltann ætla ég rétt að vona að hún skilji eftir jafngóðar minningar og sú fyrri. Þrjú stig verði með í far- angrinum þegar við fljúgum til baka til Íslands í nótt. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.