Morgunblaðið - 10.09.2019, Side 25
Víðir Sigurðsson í Tirana
vs@mbl.is
„Við hugsum aldrei lengra en til
næsta leiks og öll einbeiting okkar
er á honum. Við vitum að Albanar
eru særðir eftir tapið gegn Frökk-
um og búumst við erfiðum leik,
eins og alltaf þegar við mætum
Albaníu. Þetta eru alltaf baráttu-
leikir og mikið um návígi, leikir
þar sem tvö jöfn lið mætast og oft-
ast enda þeir með eins marks
mun,“ sagði Aron Einar Gunn-
arsson, landsliðsfyrirliði í knatt-
spyrnu, á fréttamannafundi á leik-
vanginum í Elbasan í gærkvöld, en
þar æfði íslenska landsliðið fyrir
leikinn gegn Albönum í undan-
keppni EM sem þar fer fram í
kvöld.
„Við þurfum að vera einbeittir á
því að hugsa bara um þennan leik
til að fá eitthvað út úr honum. Við
erum klárir í slaginn og ég er viss
um að það eru albönsku leikmenn-
irnir líka,“ sagði Aron.
Stressaður fyrir sjö árum
„Ef þetta hefði verið fyrir sjö ár-
um, og ég tvítugur, þá hefði maður
kannski verið dálítið stressaður.
En maður er búinn að vera svo
lengi í þessu landsliði að það þýðir
að maður fer einbeittur í leikina
en ekki áhyggjufullur. Hugarfarið
í þessum hópi er þannig og karakt-
erinn að þetta er samnefnari hóps-
ins. Ég finn meira fyrir spennu og
tilhlökkun fyrir erfiðum og jöfnum
leik. Þetta er bara spennandi. Við
erum algjörlega tilbúnir og ég finn
á mér að allir eru það,“ sagði
framherjinn Jón Daði Böðvarsson,
en viðtal við hann í fullri lengd er
að finna á mbl.is/sport.
Hugsum aldrei lengra
en til næsta leiks
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fyrirliði Aron Einar Gunnarsson á
fleygiferð í leik gegn Moldóvu.
Í TIRANA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Dagsskipunin hjá Erik Hamrén fyr-
ir leikinn gegn Albönum í Elbasan í
kvöld er ákaflega einföld. Sigur.
Í þeim þriggja liða slag sem nú er
kominn upp í H-riðli undankeppni
EM í fótbolta, um tvö laus sæti í
lokakeppninni á næsta ári, er ein-
faldlega bannað að misstíga sig.
Ísland, Tyrkland og Frakkland
eru öll með 12 stig eftir fyrri um-
ferðina. Þau unnu hvert annað og
lögðu öll hina þrjá andstæðingana,
Albaníu, Moldóvu og Andorra.
Mótherji Íslands í Elbasan í kvöld
er sá erfiðasti af þessum þremur
síðasttöldu. Við sáum vel hversu
sterkt albanska liðið er á Laugar-
dalsvellinum í sumar þegar Ísland
marði 1:0 sigur með glæsilegu ein-
staklingsframtaki Jóhanns Bergs
Guðmundssonar. Hann er því miður
fjarri góðu gamni núna vegna
meiðsla.
Albanar fengu talsverða gagnrýni
fyrir slaka frammistöðu þegar þeir
töpuðu 4:1 í Frakklandi á laugar-
dagskvöldið. Metnaður þeirra er ef-
laust að rétta hlut sinn með sigri á
Íslandi, auk þess sem hann myndi
gefa þeim örlitla von um að komast í
slaginn um annað sætið. Leikir Ís-
lands og Albaníu eru alltaf jafnir og
tvísýnir og engin ástæða til að ætla
að annað verði uppi á teningunum í
kvöld.
Kolbeinn eflir vopnabúrið
Vopnabúr Íslands er hins vegar
orðið öflugra á ný með Kolbein Sig-
þórsson í fremstu víglínu. Við sáum
gegn Moldóvu á laugardaginn hve
stór skref hann hefur stigið í sumar í
átt að sínu gamla góða landsliðs-
formi. Liðið er þrautreynt eftir vel-
gengni undanfarinna ára og þarf að
taka út úr reynslubankanum í kvöld
til að ná í þau þrjú stig sem það þarf
á að halda.
Íslensku landsliðsmennirnir vita
manna best hvað bíður þeirra. Þeir
vita mætavel að ekki er hægt að
reikna með hjálp frá Andorra og
Moldóvu. Það yrði í hæsta máta
óvænt ef Moldóva næði stigi af
Tyrklandi, þó á heimavelli sé, hvað
þá að litla Andorra geti gert frönsku
heimsmeisturunum skráveifu í
Frakklandi en þessir leikir í sjöttu
umferðinni fara fram á sama tíma í
kvöld. Ef allt fer eftir bókinni verða
Tyrkland og Frakkland bæði með 15
stig í leikslok í kvöld og kappsmálið
er því að halda jöfnu við þau áfram
og komast líka í 15 stigin með sigri í
Elbasan.
Hér í Albaníu er heitt, hitinn í gær
var nálægt 30 gráðum og spáð er 34
stiga hita í Elbasan dag. Sem betur
fer verður klukkan orðin 20.45 að
staðartíma þegar flautað verður til
leiks og þá ættu aðstæður að vera
orðnar þægilegar með um 20 gráðu
hita. Allt aðrar og betri en þegar Ís-
land vann hér afar mikilvægan sigur
í haugarigningu fyrir sjö árum og
Gylfi Þór Sigurðsson smellti bolt-
anum í stöngina og inn úr auka-
spyrnu tíu mínútum fyrir leikslok.
Allir með á æfingunni
Íslenska liðið hóf æfingu í Elbas-
an klukkan 18 í gærkvöld að staðar-
tíma og þar voru allir með og allir
virðast heilir og klárir í slaginn.
Hamrén sagði á fréttamannafundi
fyrir æfinguna að engin vandamál
virtust í hópnum þó að alltaf væru
einhverjir með hnjask hér og þar.
Ólíklegt er að Hamrén breyti
miklu varðandi byrjunarliðið, en þó
er viðbúið að hann spili 4-5-1 í stað-
inn fyrir 4-4-2 gegn Moldóvu. Þá
gæti Emil Hallfreðsson komið inn á
miðjuna, Gylfi farið framar, og þá
gæti það orðið hlutskipti Jóns Daða
Böðvarssonar að hefja leik á bekkn-
um þrátt fyrir flottan leik, mark og
stoðsendingu, á laugardaginn. Alb-
anar hafa spilað með fimm manna
vörn í tveimur síðustu leikjum, gegn
Moldóvu og Frakklandi, og kannski
þarf landsliðsþjálfari Íslands að
bregðast sérstaklega við því.
Einfalt markmið í Elbasan
Ísland þarf sigur í kvöld til að halda í við Frakka og Tyrki í slagnum um tvö
sæti í lokakeppni EM Síðasti möguleiki Albana til að blanda sér í baráttuna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gleði Ari Freyr Skúlason, Kolbeinn Sigþórsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson fagna í Laugardal.
Árið 1991 kom ég til Albaníu,
sem þá hafði í áratugi verið lokað-
asta land Evrópu og var nýkomið á
braut til frelsis. Verkefnið, auk þess
að skrifa um landsleik í fótbolta,
var að fjalla um ástandið í landinu
og af þeim sökum dvaldi ég í viku í
Tirana.
Á þeim tíma var Tirana eins og
stórt sveitaþorp með gamlar bygg-
ingar, hestakerrur og uxakerrur á
götum og þjóðvegum í kring. Ný-
tískuleg skrautbygging tileinkuð
gamla einræðisherranum Enver
Hoxha skar sig úr.
Fólkið í Tirana var vingjarnlegt
og forvitið, tók sjaldséðum útlend-
ingi afar vel, nánast bar hann á
höndum sér og aðstoðaði þannig
að úr varð sennilega eftirminnileg-
asta vinnuferð mín.
Þegar ég gekk um götur Tirana í
gær sá ég fátt sem minnti á árið
1991. Einstaka byggingu sem ég
kannaðist aftur við en fann Hoxha-
safnið. Það er í niðurníðslu og á
það krotuð skammaryrði. Gamla og
notalega hótelið sem ég dvaldi á er
horfið og verið að byggja á lóðinni.
Tirana er orðin heimsborg með
glæsihótelum, bönkum, versl-
unarmiðstöðvum og flestu öðru
sem sést í öðrum borgum í suður-
hluta Evrópu. Ég mætti túrista-
hópum og hefði getað verið í nán-
ast hvaða landi sem er.
En eitt hefur lítið breyst. Lands-
lið Albaníu og Íslands eru mjög
svipuð að getu í fótbolta. Leikurinn
sem ég sá í Tirana fyrir 28 árum
var það eina leiðinlega í þeirri ferð.
Ísland lék langt undir getu og Alb-
anía vann 1:0 sigur.
Þar sem þessi heimsókn mín til
„Lands arnarins“ snýst bara um
fótboltann ætla ég rétt að vona að
hún skilji eftir jafngóðar minningar
og sú fyrri. Þrjú stig verði með í far-
angrinum þegar við fljúgum til
baka til Íslands í nótt.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Tilvalinn með
á völlinn