Morgunblaðið - 10.09.2019, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2019
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
Kæli- & frystiklefar
í öllum stærðum
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Við fögnum 20 ára afmæli Pappelinu
með 20% afslætti af öllum mottum*
*gildir til 30. september 2019
»Blúshátíðin Milli fjalls og fjöru fór fram um ný-
liðna helgi á Patreksfirði og var mikið fjör.
Fram komu CCR Band; Bee Bee and the Bluebirds
sem er hljómsveit Brynhildar Oddsdóttur, gítar-
leikara og söngvara, og blússveit Kristjönu
Stefánsdóttur söngkonu.
Blúsað milli fjalls og fjöru á Patreksfirði
Ljósmyndir/Guðlaugur Albertsson
Fingrafim Brynhildur Oddsdóttir leiðir Bee Bee and the Bluebirds.
Kraftmikil Kristjana söng blús með
sinni kraftmiklu og fögru rödd.
Í algleymi Ómar Guðjónsson gítar-
leikari var í blússveit Kristjönu.
Bandaríska kvikmyndin Joker, eftir
leikstjórann Todd Phillips, hlaut
Gullna ljónið, aðalverðlaun kvik-
myndahátíðarinnar í Feneyjum, sem
lauk um helgina. Segir hún af Jók-
ernum sem þekktur er úr sögunum
um Leðurblökumanninn. Jókerinn
er vitskertur glæpamaður en í kvik-
mynd Phillips er forsaga hans rakin
og leið hans til glötunar. Joaquin
Phoenix leikur Jókerinn og hefur
hlotið lof fyrir.
Aðalverðlaun dómnefndar hlaut
nýjasta kvikmynd leikstjórans Rom-
ans Polanskis, An Officer and a Spy,
en ekki voru allir sáttir við að hon-
um væri boðið á hátíðina þar sem
hann nauðgaði 13 ára stúlku árið
1977 og er eftirlýstur í Bandaríkj-
unum fyrir þær sakir. Kvikmynd
hans er byggð á skáldsögu Roberts
Harris þar sem í forgrunni er Drey-
fus-málið svonefnda í Frakklandi ár-
ið 1895. Aðalpersóna bókarinnar er
liðsforinginn Georges Picquart sem
fylgist með því þegar Alfred Drey-
fus, sem sakfelldur hefur verið fyrir
njósnir og dæmdur í lífstíðarfang-
elsi, er sviptur tign og fluttur í
skelfilegt fangelsi á Djöflaeyju.
Jókerinn og Pol-
anski sigursælir
Pot Joaquin Phoenix og Todd Phillips
brugðu á leik með gulljónið góða.
Kvikmyndin Hér-
aðið eftir leik-
stjórann Grím
Hákonarson var
frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í
Toronto fyrir
helgi og hefur
hún hlotið já-
kvæða gagnrýni
á vefjum kvik-
myndaritanna
Variety og Screen Daily. Gagnrýn-
andi Screen Daily lofar leikstjórn
Gríms og frammistöðu aðalleikkon-
unnar Arndísar Hrannar Egils-
dóttur. Kvikmyndin verður sýnd á
fleiri hátíðum og almennar sýningar
á henni hefjast í næstu viku í Frakk-
landi og Belgíu.
Grímur
Hákonarson
Héraðinu vel tekið
af gagnrýnendum
Verkin sýna
merkin, einka-
sýning Guð-
laugar Míu Ey-
þórsdóttur, var
opnuð í gallerí-
inu Harbingber
um helgina og
stendur yfir til
28. september.
Guðlaug „býður
áhorfendum í
fagurfræðilegan leiðangur um
kunnuleg stef úr hversdeginum,
skoðar skúlptúríska þætti í mann-
gerðu umhverfi okkar, formrænu
stigaganga, gluggasylla, anddyra,
fatahengja“, eins og segir í tilkynn-
ingu. Harbinger er að Freyjugötu 1
í Reykjavík.
Guðlaug Mía
Eyþórsdóttir
Verkin sýna merk-
in í Harbinger
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Gamalt handbragð og nýr tilgangur eru viðfangsefni
Eiríks Arnars Magnússonar myndlistarmanns á útisýn-
ingunni Turnar sem sjá má á Listasafninu á Akureyri.
Verkin eru sköpuð úr veðruðu timbri og gömlum bókum
en þær hafa verið helsti efniviður Ei-
ríks Arnars um hríð. Þannig upphefur
hann gamalt handbragð og gefur því
nýjan tilgang í formi skúlptúrbók-
verka.
„Ég smíðaði lítil hús úr gömlu
timbri utan um verkin sem ég kýs að
kalla bókaturna. Ég lærði bókband
þegar ég var við nám í Listaháskól-
anum og heillaðist þar með af hand-
verkinu. Það sem hverfist á bak við
kjölinn er aðalatriðið. Mér fannst það
fallegt,“ segir Eiríkur Arnar.
Að hans sögn er titill sýningarinnar, Turnar, tvíþætt-
ur: „Þar vísa ég bæði í turninn sem er utan um verkið og
svo bókaturninn sjálfan innan í.“
Stjórnar ekki áhrifunum
Eiríkur Arnar vinnur aðallega út frá þeirri tilfinningu
sem hann hefur fyrir viðfangsefninu og efniviðnum
hverju sinni. „Þegar ég leiði hugann að nýju verki þróast
vinnan út frá þeirri tilfinningu sem skapast og ég reyni í
framhaldinu að útfæra sem einhverja hugmynd að nýju
verki,“ segir hann.
Eiríkur Arnar lítur helst á sín verk út frá fagurfræði.
„Í mínum huga eru þessi verk fyrst og fremst fagur-
fræðilegur hlutur. Ég legg áherslu á að stjórna ekki
áhrifunum sem áhorfandinn finnur fyrir þegar hann
virðir verkin fyrir sér. Fólk kemur og myndar sér skoð-
un á því hvort verkin séu falleg eða ekki. Gengur í kring-
um turnana og spyr sig jafnvel hvort þetta sé list. Það
hafa allir sína skoðun,“ segir Eiríkur Arnar.
Eins og áður segir notar Eiríkur Arnar aðallega gaml-
ar bækur sem efnivið en innihald bókanna hefur ekki
verið hluti af verkum hans hingað til. „Ég vil frekar nota
hluti sem eru hlutlausir og óræðir.“
Bók á skurðarborði fær tilgang
Ekki stendur á svörum þegar Eiríkur Arnar er spurð-
ur hvað sé svo heillandi við þennan tiltekna efnivið. „Mér
finnst gamlir hlutir með sögu heillandi og fallegir. Þegar
ég handleik gamla bók sé ég fyrir mér gamlan bókbind-
ara sem er líklega vegna þess að ég lærði sjálfur bók-
band hjá gömlum manni. Þessi bók er jafnvel margra
áratuga gömul og hefur gengið manna á milli. Eða átti
hún kannski aðeins einn eiganda áður en hún komst í
mínar hendur? Það er eitthvað heillandi við hvernig bók-
in hefur breyst í tímans rás – elst ef svo má að orði kom-
ast – og hvernig hún lítur út eftir öll þessi ár. Kannski er
hún illa farin og hefur misst hlutverk sitt. Enginn vill
eiga þessa bók lengur og hún er komin í hillu í Rauða
krossinum. Þar finn ég hana og hún endar á skurðar-
borðinu hjá mér og verður að lokum að ákveðnu verki
með nýjum tilgangi.“
Pappír bókanna er Eiríki Arnari hugleikinn. „Áferðin
á gömlum pappír vekur hjá mér ákveðnar tilfinningar.
Pappírinn er orðinn gulur, skítugur og rifinn. Þetta á
líka við um annan efnivið ef hann er orðinn gamall og lú-
inn. Það er einhver nostalgíutilfinning sem ég finn fyrir
og veitir mér innblástur,“ segir hann.
Úti Turnar Eiríks eru byggðir utan um hið eiginlega
bókverk. Hér má sjá tvo útiskúlptúra á sýningunni.
Það sem hverfist
á bak við kjölinn
Eiríkur Arnar sýnir skúlptúra í Listasafninu á Akureyri
Eiríkur Arnar
Magnússon