Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi
Góð
heyrn
glæðir samskipti
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða,
tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með
takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ólafur Loftsson, fyrrverandi for-
maður Félags grunnskólakennara,
hefur verið á ferð og flugi á framandi
slóðum síðustu mánuði. Í gær var
hann í Aserbaídsjan og í síðustu viku
í Karíbahafi. Verkefni hans hafa
snúið að starfi alþjóðlegra björg-
unarsveita.
Eftir kennaranám og kennslu,
m.a. í Foldaskóla, varð Ólafur for-
maður Félags grunnskólakennara
2004 og gegndi því starfi til 2018.
Samhliða starfaði hann lengi með
björgunarsveitum, meðal annars al-
þjóðasveit Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, og er nú í viðbragðs-
teymi á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Þannig kynntist hann þessu alþjóða-
starfi og frá því á síðasta ári hefur
hann tekið að sér fleiri og fleiri verk-
efni á þessu sviði.
Aðstoðar ríkisstjórnir
Ólafur hefur komið að ýmsum
verkefnum á vegum Sameinuðu
þjóðanna og þá einkum fyrir UN-
DAC, sem er alþjóðleg viðbragðs-
sveit á vegum SÞ. Sveitin aðstoðar
eftir atvikum ríkisstjórnir við skipu-
lag, björgun eða mat á aðstæðum. Í
Aserbaídsjan er verið að undirbúa
æfingu vegna hugsanlegs jarð-
skjálfta. Æfingin verður í nóvember
og er Ólafur í þriggja manna und-
irbúningsteymi.
Í Karíbahafi fyrr í þessum mánuði
var Ólafur í 15 manna æfingastjórn á
vegum Evrópusambandsins. Verk-
efnið fólst í að æfa viðbrögð við felli-
byljum og því sem fylgt getur í kjöl-
farið, sams konar atburðum og urðu
á Bahamaeyjum nýlega. Á æfing-
unni kom Ólafur einnig að þjálfun
rústabjörgunarsveita.
Hann segir að það sé alltaf á for-
ræði ríkisstjórnar hvers lands að
ákveða verksvið og umboð erlendra
hjálparsveita. Undirbúningsstarf
felist m.a. í að skilgreina hvað hver
björgunarsveit eigi og megi gera og
hvernig eigi að taka á móti alþjóð-
legu hjálparstarfi. Samskipti við her,
lögreglu, almannavarnir og björg-
unarsveitir þurfi að liggja fyrir og
eins hvernig þessir aðilar starfi
saman. Með þessum undirbúningi
verði fólk betur búið undir að geta
þegið aðstoð komi til voveiflegra at-
burða.
Spurður hvort verkefnum hans á
þessum vettvangi hafi fjölgað síð-
ustu mánuði segir Ólafur að verk-
efnin virðist koma í bylgjum. „Eftir
að ég hætti hjá Félagi grunnskóla-
kennara hef ég verið í lausamennsku
og með aukinni reynslu hefur verk-
efnum fjölgað. Þeir eru fjölmargir
og fjölbreyttir staðirnir sem ég hef
heimsótt. Ég hefði tæpast nokkurn
tímann komið til Curacao, Bonaire,
Sint Maarten og Sint Eustatius í
Karíbahafinu hefðu þessi verkefni
ekki komið til.
Svona má áfram telja, ég hef feng-
ið að fara til Ástralíu, Haítí, Ba-
hamaeyja, Kostaríku og Filippseyja
og er núna í Aserbaídsjan. Þó svo að
undirtónninn sé mikil alvara er þetta
um leið líka ævintýri og spennandi
að kynnast öllum þessum stöðum og
öllu þessu fólki sem maður hittir úti
um allt,“ segir Ólafur að lokum.
Á ferð og flugi á framandi slóðum
Úr forystusveit kennara í aukið starf með alþjóðlegum björgunarsveitum Í gær var Ólafur
Loftsson í Aserbaídsjan og í síðustu viku í Karíbahafi Ævintýri með alvarlegum undirtón
Á Curacao Ólafur Loftsson var meðal annars umsjónarmaður austurrísku
björgunarsveitarinnar SARUV á æfingu í Karíbahafi fyrr í mánuðinum og
er með stjórnanda og lækni sveitarinnar á myndinni.
Í Karíbahafi Ólafur segir að hann hefði tæpast fengið tækifæri til að ferðast
til Curacao, Bonaire, Sint Maarten og Sint Eustatius hefðu verkefni tengd
alþjóðlegu hjálpar- og björgunarstarfi ekki komið til.