Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 29
M B -.B an k- -2 0- 1- 1- L IS -2 -s ib ba - C M Y K MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Platinum Litur: Magma red, svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque. FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í belti í aftursæti VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 Ford F-350 Limited Litur: Perlurauður, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20” felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, fifth wheel stóll, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 12.690.000 m.vsk 2019 GMC Denali 3500 Litur: Onyx black, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, Vel útbúinn bíll t.d. Z71 offroad pakki, upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira. VERÐ 10.930.000 m.vsk Málþing í minningu Gunnars Bjarnasonar húsasmíðameistara (1949-2014) um forn vinnubrögð í tré og járn, handverkskunnáttu og hagleikssmíði, verður haldið í dag í Þjóðminjasafni Íslands og hefst kl. 13.15 með ávarpi Kristínar Huldar Sigurðardóttur, forstöðumanns Minjastofnunar. „Með málþinginu er ætlunin að draga fram hvernig sérfræðingar hafa unnið að við- haldi gamalla húsa og smíði tilgátu- húsa eftir heimildum og með því varpa ljósi á þýðingu þess að við- halda gömlu handverki og aðferð- um,“ segir í tilkynningu og að Gunnar hafi verið afskaplega vel lesinn og fær í sínu fagi. Við rann- sókn á vinnudagbókum Gunnars hafi komið í ljós að hann hafi komið að viðgerðum á yfir 120 gömlum húsum um allt land og að sum þeirra hafi tekið nokkur ár að klára. Gunnar varð einnig þekktur fyrir aðkomu sína að smíði tilgátuhúsa og mun hann hafa skrifað að smíði Þjóðveldisbæjarins árið 1974 hafi kveikt miðaldabakteríuna fyrir al- vöru hjá honum og hann farið að kynna sér bæði söguna og farið ut- an til að kynna sér frekar aðferðir við smíði slíkra húsa. Á málþinginu verður sjónum beint að verkum Gunnars og hag- leikssmíði og munu samstarfsmenn hans m.a. segja frá verkum sem þeir unnu að saman. Gestafyrirles- ari er Atle Ove Marinussen sagn- fræðingur og forstöðumaður Vest- norsk kulturakademi í Voss í Noregi og segja arkitektarnir Þor- steinn Gunnarsson og Stefán Örn Stefánsson frá samstarfi þeirra við Gunnar. Sýning í tengslum við mál- þingið hefur verið sett upp. Málþing haldið í minningu Gunnars Eldsmiður Gunnar Bjarnason stundaði líka eldsmíði og sést hér við þá iðju. Nýskipað mynd- listarráð hefur úthlutað 21,6 milljónum króna í styrki úr Mynd- listarsjóði í síðari úthlutun sjóðsins á árinu. 142 um- sóknir bárust og hlutu 45 verkefni styrki að heildar- upphæð 14,7 millj. kr. Fara þar af 28 styrkir til minni sýningarverk- efna og 17 til stærri. Stærsta styrk- inn í flokki sýninga, eina milljón króna, hlýtur myndlistarmaðurinn Erling T.V. Klingenberg vegna fyr- irhugaðrar sýningar hans í Kling & Bang og Nýlistasafninu. Kling & Bang hlýtur einnig styrk vegna sýningaraðar fjögurra einkasýn- inga ungra listamanna að upphæð 900 þúsund kr. sem og listahátíð- irnar Seqeunces IX og Ferskir vindar í Suðurnesjabæ sem hljóta hvor um sig 800 þúsund kr. að því er segir í tilkynningu. Frekari upp- lýsingar eru á myndlistarsjodur.is. 45 styrkir veittir úr Myndlistarsjóði Erling Klingenberg Hugleikur Dags- son, teiknari og grínisti, fór í ferðalag um Evr- ópu í vor með uppistand sitt Son of the Day og eftir að hafa komið fram í 18 borgum endaði hann í Helsinki. Uppistandið þar í borg var kvik- myndað af Árna Sveinssyni og í kvöld verður afraksturinn frum- sýndur í Bíó Paradís. Veislan hefst kl. 19 með léttum veitingum og sýn- ingin hefst kl. 20. Segir Hugleikur í tilkynningu að þetta sé fyrsta og eina íslenska „uppistands- specialið“ sem hafi verið myndað á erlendri grundu. Son of the Day mun koma út á hinum ýmsu streym- isveitum og á iTunes í næsta mán- uði. Son of the Day sýnd í Bíó Paradís Hugleikur Dagsson Gamanmynda- hátíðin Iceland Comedy Film Festival fór fram um nýliðna helgi á Flateyri og voru gestir um tífalt fleiri en á fyrstu hátíðinni sem var haldin fyrir fjórum ár- um. Leikkonan Edda Björgvins- dóttir var heiðruð fyrir framlag sitt til gamanmyndagerðar og Ballara- haf var kosin fyndnasta mynd 48 klst. gamanmyndakeppni. Fyndn- asta mynd hátíðarinnar þótti heim- ildarmyndin Kanarí eftir Magneu B. Valdimarsdóttur og Mörtu Sig- ríði Pétursdóttur og fyndnasta erlenda gamanmyndin þótti Sawah eftir leikstjórann Adolf El Assal en Elísabet Jóhannesdóttir leikur eitt aðalhlutverka hennar. Kanarí kætti gesti hátíðar á Flateyri Edda Björgvins Franska leik- konan Juliette Binoche verður heiðruð fyrir framlag sitt til kvikmyndalistar- innar á Evrópsku kvikmyndaverð- laununum sem veitt verða í Berlín 7. desem- ber. Binoche hefur hlotið mikinn fjölda verðlauna á löngum ferli sín- um og hóf ferilinn barn að aldri í leikhúsi í heimaborg sinni París. Af þekktustu kvikmyndunum sem hún hefur leikið í og hlotið lof fyrir má nefna Óbærilegan léttleika tilverunnar eftir leikstjórann Philip Kaufman, Þrír litir: Blár eftir Krzysztof Kieslowski og Enska sjúklinginn, eftir leikstjórann Ant- hony Minghella. Binoche heiðruð á EFA í Berlín Juliette Binoche Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Héraðsskólunum gömlu og and- anum sem margir upplifðu við skóla- gönguna þar, eru gerð góð skil í Nikka kúr, nýjustu skáldsögu Guð- mundar Óla Sigurgeirssonar sem starfaði áður sem kennari. Nikki kúr fjallar um sveitadreng á sjöunda áratug síðustu aldar sem fer í hér- aðsskóla, hvar bíða hans ævintýri og erfiðleikar. Rokkið og stelpurnar raska hugarró saklausrar sálar, eins og segir aftan á kápu bókarinnar. Má segja að Guðmundur haldi að einhverju leyti í þemað sem hann byrjaði með 2016 þegar hann gaf út fyrstu bókina, Við ána sem ekki var, sem hafði að geyma æskuminningar frá sjötta áratug 20. aldar af bökkum Þverár á Rangárvöllum. Héraðsskólarnir nauðsynlegir „Ég upplifði þessa tíma sjálfur, en þetta er klárlega skáldsaga samt. Það sem vakti fyrir mér var að kannski myndi þetta höfða til alls þess fólks sem í gegnum tíðina stundaði nám við þessa héraðsskóla. Það er að segja fólk, af fátæku fólki komið, hverra eini möguleiki á að fara í frekara nám en barnaskóla var að sækja héraðsskóla,“ segir Guð- mundur Óli um nýju bókina, sem segir sögu hans, það er aðalpersón- unnar sem er einungis einkennd með persónufornafninu hann, og spannar árin sem hann gengur í hér- aðsskólann. „Sem slíkir voru héraðsskólarnir nauðsynlegir. Og hann kemur fram fyrst í sögunni, þessi draumur hans um að komast úr sveitinni og fá að læra, en síðan kemur í ljós að sá veg- ur var þyrnum stráður á köflum. Það verður enginn óbarinn biskup. Það er kannski meginþemað í bókinni.“ Engin rannsóknarvinna Eins og gefur að skilja þurfti Guð- mundur ekki að leggjast í miklar rannsóknir til að sækja innblástur fyrir söguna, kominn hátt á sjötugs- aldurinn og man vel eftir tímanum sem um ræðir. „Ég stundaði enga rannsóknarvinnu. Ég er sjálfur nemandi úr héraðsskóla. Þeir sem leggja saman tvo og tvo geta ímynd- að sér í hvaða héraðsskóla ég var,“ segir hann hlæjandi og bætir við að hann telji og voni að þeir sem gengu í sama skóla og hann átti sig strax þegar þeir lesa Nikka kúr. Spurður um vinnslu bókarinnar segir Guðmundur: „Ég vil gjarnan þakka það einum manni að bókin varð til. Það er góðvinur minn og kennari Finnur Torfi Hjörleifsson. Hann hefur alla tíð hvatt mig mjög til að skrifa. Hann kenndi mér nú þegar ég var í mínum héraðsskóla.“ Segir hann aðspurður að hann hafi skrifað bókina hratt, enda kom- inn á eftirlaun og „gat því hagað tím- anum eins og mér sýnist“. „Hún var auðvitað búin að vera að gerjast í kollinum á mér. Ég hugsa að hún hafi komist á harðan kubb á tveimur mánuðum. Eitthvað svoleiðis. En svo hendir maður svona hlutum í salt og lætur þá gerjast svolítið. Tekur svo til, bætir í og sker niður. Eins og gengur. Meðgangan hefur því verið, frá því að ég byrjaði að skrifa, svona í kringum ár.“ „Erfitt fyrir ungan dreng“ Hugmyndir Guðmundar um gagn- fræðaskólaárin sækja þó innblástur í fleira en hans eigin skólagöngu enda var hann sjálfur kennari alla sína starfsævi. „Ég hef oft hugsað um það hvað er í forgangi hjá nemendum. Er það námið, er það félagsskapurinn, eða er það eitthvað allt annað?“ Eins og áður segir var skólaganga sögupersónunnar, hans, ekki átaka- laus og segir Guðmundur: „Eitt sem hann upplifði, og ég líka, var að fá ekki að fara heim. Fyrsta skólaárið fékk hann að fara þrisvar sinnum heim. Þetta var erfitt fyrir ungan dreng.“ Spurður hvort hann ætli að halda áfram með þemað, skrifa aðra bók og taka jafnvel áttunda áratuginn fyrir í henni, segist Guðmundur ekki vita hvort bækurnar verði nokkuð fleiri. „Ég er nú að verða sjötugur á næstu dögum. Það færi þá bara að verða eitthvert öldungarugl,“ segir hann léttur í lundu. Endurvekur anda héraðsskólanna - Guðmundur Óli Sigurgeirsson sendir frá sér skáldsöguna Nikki kúr - Ævintýri og erfiðleikar bíða ungs manns sem sækir héraðsskóla - „Héraðsskólarnir nauðsynlegir,“ segir Guðmundur Reynslusaga „Ég stundaði enga rannsóknarvinnu. Ég er sjálfur nemandi úr héraðsskóla,“ segir Guðmundur Óli Sigurgeirsson rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.