Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.09.2019, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is N áin samvinna er lykillinn að árangri í útgerð og fiskvinnslu og þar eru út- gerðarstjórar í stóru hlutverki. Ingimundur Ingimundarson, útgerðarstjóri upp- sjávarskipa hjá Brimi hf., áður HB Granda, segir að skipstjórarnir viti að þeir séu hluti af keðjunni og til hvers sé ætlast af þeim varðandi veiðar og meðferð afla. Sömuleiðis hafi vinnslurnar góðan aðgang að upplýsingum og fylgist vel með gangi mála. Rífur kjaft ef því er að skipta „Í raun eru þetta ekki nein geimvís- indi og það reyna allir að spila vel úr sínu þannig að sem mest verði úr afl- anum; sjómenn, fólkið í vinnslunni og þeir sem starfa að markaðsmálum. Þar skipta upplýsingasöfnun og upp- lýsingagjöf til hægri og vinstri miklu máli. Útgerðarstjórinn er samt stundum stuðpúði fyrir skipstjórana og raunar margar deildir í fyrir- tækinu. Ef því er að skipta rífur hann kjaft við allt og alla innanhúss og ut- an og fær nöldrið úr öllum áttum,“ segir Ingimundur hlæjandi svo það brakar í símanum. Hann segir að makrílvertíð ársins hafi heilt yfir gengið vel, bæði veiðar og vinnsla, og hann heyri ekki annað en að markaðsaðstæður séu ágætar. Tímabundin taugaveiklun fylgi sér- hverri vertíð og það hafi valdið von- brigðum hvað vertíðin var endaslepp. Eftir fyrstu dagana í september hafi dregið mjög úr veiði og illa hafi geng- ið að finna makrílinn eftir nokkra bræludaga. Við slíku megi búast þeg- ar komið sé fram í september og allra veðra geti verið von í úthafinu, en þegar leið á vertíð fékkst makríllinn einkum í Síldarsmugunni á alþjóð- legu hafsvæði norður af Færeyjum, á milli Íslands og Noregs. Makríllinn fór allur í vinnslu á Vopnafirði, en þar rekur fyrirtækið fullkomið uppsjávarfrystihús. „Nú tekur norsk-íslenska síldin við hjá uppsjávarskipunum og byrjun þeirr- ar vertíðar lofar góðu. Þá er það kol- munninn, væntanlega í færeyskri lögsögu, en hann fer í bræðslu á Vopnafirði. Svo trúi ég því statt og stöðugt að við fáum loðnuvertíð eftir áramót,“ segir Ingimundur. Vel búin uppsjávarskip Uppsjávarskip Brims eru Venus NS og Víkingur AK, bæði skipin smíðuð í Tyrklandi og komu ný til landsins ár- ið 2015. Ingimundur segir að þau séu vel búin og hafi reynst vel. Sama megi reyndar segja um uppsjávar- flotann í heild sinni; öll fyrirtækin hafi endurnýjað skip sín. Þau séu öll búin öflugum búnaði til að kæla afla, sem komi sér vel þegar t.d. makríll og síld eru flutt um langan veg til manneldisvinnslu. Sá búnaður kemur sér einnig vel þegar kolmunni er jafnvel sóttur suð- ur fyrir Írland þegar lengst er farið. Á þeim veiðiskap geta stærstu skipin borið yfir þrjú þúsund tonn, en miðað er við þúsund tonn þegar frysta á aflann. Var lengi á Svaninum „Áður fyrr báru skipin mun minna og ekki var sama áhersla lögð á gæði og vinnslu til manneldis,“ segir Ingi- mundur. Þá hafi viðmiðið gjarnan verið að fiska sem mest á sem skemmstum tíma nema þegar verið var að frysta hrognafulla loðnu og loðnuhrogn. Hann rifjar upp að fyrri Svanur RE 45, sem var í eigu föður hans og fjölskyldu, hafi borið rúm- lega 300 tonn, en eftir stækkun 1979 hafi skipið borið um 700 tonn. Nýr Svanur RE kom til landsins 2002 og var burðargeta hans um 1.200 tonn. Eftir að Ingimundur eldri lét af skipstjórn tók Viðar Sæmundsson við og síðan Gunnar Gunnarsson. Ingimundur yngri var í um 20 ár há- seti, stýrimaður og afleysingaskip- stjóri á Svaninum en kom alfarið í land 2004. Í ársbyrjun 2005 varð út- gerð Svansins hluti af HB Granda og nokkru síðar var skipið selt til Skot- lands og þaðan fór Svanurinn til Rússlands. Náin samvinna er lykillinn að árangri Vonbrigði hvað makríl- vertíðin var enda- slepp, segir Ingimund- ur útgerðarstjóri uppsjávarskipa hjá Brimi hf. Góð upplýs- ingagjöf er mikilvæg. Morgunblaðið/Eggert Brim Upplýsingasöfnun og upplýsingagjöf til hægri og vinstri skipta miklu máli, segir Ingimundur Ingimundarson, útgerðarstjóri uppsjávarskipa. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is E ftir loðnubrest í vetur sem leið segir Bendikt Jóhannsson, yfirmaður land- vinnslu hjá Eskju á Eskifirði, að það hafi verið dýrmætt að fá góða makríl- vertíð og úrvals hráefni hafi borist jafnt og þétt á land. Flest hafi gengið upp í sumar, bæði í veiðum og vinnslu, og ástæðu- laust sé að kvarta yfir mörkuðum þó svo að verð mætti alltaf vera hærra. Vonbrigði hafi þó verið hversu lítið hafi veiðst af makríl í þessum mánuði. Nú er síldarvertíð komin á fullt, vel hefur veiðst og aflinn fengist nær landi en síð- ustu ár. Keyptu dvalarheimilið fyrir starfsfólk Eskju Um 65 manns starfa í uppsjávarfrystihúsi Eskju og er unnið á tólf tíma vöktum þegar mest er að gera. „Um þriðjungur er fastráðið lykilfólk, sem starfar hjá okkur allt árið. Aðrir starfsmenn koma víða að, Íslendingar jafnt sem útlendingar, og margir hafa komið árlega á vertíðar frá því að nýja fiskiðjuverið var tek- ið í notkun 2016. Okkur hefur gengið vel að ráða starfsfólk og upp til hópa er þetta hörku- fólk,“ segir Benedikt. Margt af aðkomufólkinu býr í Hulduhlíð, sem áður var dvalarheimili aldraðra á Eskifirði, en Eskja keypti húsið fyrr á þessu ári. Þegar rætt var við Benedikt á dögunum var þó ekki vinnsla í húsinu. Mikil törn með helg- arvinnu var að baki, tvö skipanna á útleið og það þriðja á leið með um 750 tonn af makríl úr Síldarsmugunni. Þá var lokahnykkurinn eftir á makrílvertíðinni og um fjögur þúsund tonn óveidd. Veiði hafði þá tregast og erfitt haust- veður á miðunum. Eskja hefur endurnýjað skipakost sinn á síðustu árum þó svo að nöfnin séu kunnugleg fyrir Eskfirðinga; Aðalsteinn Jónsson, Guðrún Þorkelsdóttir og Jón Kjartansson. Afkasta- geta frystihússins er um 800 tonn af hráefni á sólarhring á makrílnum og er aflinn frystur jafnóðum og hann kemur úr tönkum skipanna, sem eru við löndunartækin á meðan. Elsta skipið, Jón Kjartansson II, hefur nýst vel á kolmunnaveiðum. Loðnubresturinn í vetur var mikið áfall Loðnu verður leitað í september og október og vonast menn eftir jákvæðum fréttum þó svo að fyrstu vísbendingar um veiðiárganginn í vetur hafi ekki lofað miklu. „Loðnubresturinn í vetur var mikið áfall fyr- ir greinina og verði niðurstöður loðnuleitar neikvæðar trúi ég samt ekki öðru en stjórn- málamenn leyfi veiðar á 100-150 þúsund tonn- um af loðnu. Það hefði verulega neikvæð áhrif fyrir þennan markað ef menn ákveða núll-veiði tvö ár í röð. Með lágmarkskvóta geta menn sinnt hrognamarkaðnum og aðrir heilfrysti- markaðanum eftir atvikum. Annars verður hætta á að enginn markaður verði fyrir loðnu- afurðir,“ segir Benedikt. Eftirlitsmaður hjá Sölumiðstöðinni Benedikt flutti frá Keflavík til Eskifjarðar að loknu námi í Fiskvinnsluskólanum og hóf störf sem eftirlitsmaður í frystihúsum innan vé- banda Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna vor- ið 1978. Haustið 1979 hóf hann störf sem að- stoðarverkstjóri í frystihúsi Hraðfrystihúss Eskifjarðar og 1. október næstkomandi fagnar hann því 40 ára starfsafmæli á Eskifirði. Þá gerði fyrirtækið m.a. út tvo togara, Hólmanes og Hólmatind, og rak öflugt frysti- hús og óhætt er að segja að á fjórum áratugum hafi margt breyst hjá Eskju. Benedikt hefur starfað sem verkstjóri og framleiðslustjóri og um tíma var hann jafnframt yfirmaður rækju- verksmiðjunnar á Eskifirði. Hann var útgerð- arstjóri í um 10 ár frá 2008 til 2017 og síðustu tvö ár hefur hann verið yfirmaður landvinnslu Eskju. Dýrmætt að fá góða makrílvertíð í sumar Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel í sumar, en botninn datt úr veiðunum fyrr en síðustu ár. Benedikt Jóhannsson hjá Eskju trúir ekki öðru en einhver loðnukvóti verði gefinn út í vetur. Á Eskifirði Benedikt Jóhannsson fagnar 40 ára starfsafmæli hjá Eskju í byrjun október. Benedikt er löngu orðinn Eskfirðingur, en hann og kona hans, María Hákonardóttir frá Eskifirði, eiga fjögur börn, Jóhann Ragnar, Kristínu Mjöll, Þórdísi Mjöll og Konný Bjargeyju, auk ellefu barnabarna. Þrjú barnanna eru búsett á Eskifirði. Benedikt hafði æft fótbolta með ÍBK áður en hann hélt austur 1978 og tókst að vekja athygli sem efnilegur markmaður, enda Keflvíkingar frægir fyrir það á þessum árum að framleiða afburða markmenn. Hann hóf fljótlega að leika með Austra í næstefstu deild og næstu 18 árin spilaði hann með Austra og KVA, sameinuðu liði Vals á Reyðarfirði og Austra. Síðasti leikurinn var sigurleikur gegn Sindra frá Höfn haustið 1996 þar sem tekist var á um sigur í 4. deild. Þá var kallað á Benedikt til að leysa af hólmi Gunnleif Gunnleifsson, síðar landsliðs- markvörð í knattspyrnu, sem þá var kominn suður til að æfa handbolta. Með KVA þetta ár lék Jó- hann Ragnar, sonur Benedikts. Hann var þá einn yngsti leikmaður liðsins, en nú í sumar var Jóhann aldursforseti í liði Fjarðabyggðar. Löngu orðinn Eskfirðingur Ingimundur og kona hans, Sigríð- ur Ásta Sigurðardóttir, eiga þrjú börn, Ingimund, Þórunni Sif og Þorvald Inga. Ingimundur var lengi í fremstu röð ís- lenskra hand- knattleiks- manna og stóð meðal annars í vörn íslenska landsliðsins er liðið vann til silfurverðlauna á Ólympíu- leikunum í Peking árið 2008. Ingimundarnafnið hefur gengið mann fram af manni í ættinni og finna má Ingimund Ingimundar- son, með mismunandi millinöfn, í fjóra ættliði. Frá Ingimundi Þórði Ingimundarsyni, sem fæddist 1894 á Snæfjallaströnd, til Ingi- mundar handboltakappa. Ingimundur útgerðarstjóri stefndi lengi vel á eitthvað annað en störf tengd útgerð og fisk- vinnslu, en hann lauk síðan prófi frá Stýrimannaskólanum 26 ára gamall árið 1987. Spurður hvort hann sjái að börnin muni starfa við sjávarútveg telur Ingimundur það ekki líklegt. „Annars skyldi maður aldrei segja aldrei. Þorvaldur Ingi, yngsti sonurinn, kom mér mjög á óvart er hann fór einn túr á togara í vor. Hann hringdi í mig að morgni og spurði hvað hann þyrfti að hafa með sér á sjóinn, hann væri að fara út sem háseti á Engey þremur tímum seinna. Hann langaði að prófa þetta og ég held að honum hafi líkað það ágætlega.“ Ingimundur í fjóra ættliði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.