Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 10

Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is N ýtt fiskiðjuver Samherja á Dalvík verður væntanlega tekið í notkun í febrúar á næsta ári. Ný landvinnsla á Dalvík verður meðal full- komnustu fyrirtækja í þessari grein. Fram kom, er samningar voru und- irritaðir um lóðina á hafnarsvæðinu á Dalvík fyrir röskum tveimur árum, að áætluð fjárfesting í húsnæði og búnaði næmi um 3,5 milljörðum. Fyrirtækið Munck er aðalverktaki við byggingu hússins, en búnaður kemur frá ýmsum hátæknifyrir- tækjum. Flest þeirra eru íslensk, með- al annars Valka og Kælismiðjan Frost svo einhver fyrirtæki séu nefnd. Ýms- ar hugmyndir hafa komið fram um hvaða starfsemi geti verið í gamla frystihúsinu, en hætt verður að vinna fisk þar þegar ný vinnsla verður tekin í notkun. Kristján Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri útgerðarsviðs Sam- herja, segir að fyrirtækið hyggist vinna bolfisk jöfnum höndum í ÚA á Akureyri og á Dalvík, en í húsinu á Akureyri var farið í miklar fjárfest- ingar 2015 og 2018. Hann segir að mikið af hráefninu sé unnið í bita og fari ferskt á markað í Frakklandi og víðar. Gömul aflaskip fara í brotajárn Hjalteyrin EA 306 kom með fullfermi úr síðustu veiðiferð sinni í byrjun sept- ember og fiskaði alls 6.500 tonn á síð- asta fiskveiðiári. Skipið er þekktast undir nafninu Björgúlfur EA 312 og bar það nafn fram á síðasta ár, þegar nýr Björgúlfur bættist í flotann. Skipið var smíðað á Akureyri 1977 og er því orðið 42 ára. Skipinu verður nú siglt til Belgíu, þar sem það fer í brotajárn. Skipið hefur ávallt verið gert stíft út og fiskað vel og til gamans má geta þess að aðalvél skipsins hefur verið í gangi í samtals 30 ár. Snæfell EA 310, sem lagt var á síð- asta ári, mun sigla ásamt Hjalteyrinni til Belgíu og fara þar í brotajárn. Snæ- fellið var smíðað árið 1968 í Noregi sem Stella Kristina, var keypt frá Færeyjum til Akureyrar árið 1973 og bar lengst af nafnið Sléttbakur. Það var sem sagt gert út í rúmlega hálfa öld, 51 ár, og er óhætt að segja að skip- ið hafi enst afskaplega vel og lengi. Harðbakur, Kaldbakur og Vilhelm Nýtt skip bætist hins vegar í flotann á næstunni; nýr Harðbakur EA 3 kem- ur til landsins frá Vard Aukra- skipasmíðastöðinni í Noregi. Skipið er 28,95 metra langt, 12 metrar á breidd og er eitt sjö systurskipa sem fjögur útgerðarfélög létu smíða í Noregi. Þau koma hvert af öðru til landsins þessar vikurnar og er nýr Vörður ÞH, skip Gjögurs, væntanlegur til Grindavíkur síðdegis í dag. Eftir þriggja mánaða hlé er Kald- bakur EA 1 nýlega farinn á veiðar, en nýr búnaður fyrir aðgerð og kælingu var settur í skipið í sumar. Slippurinn á Akureyri sá um verkefnið en bún- aður kom frá ýmsum fyrirtækjum. Þegar skipið kom nýtt til landsins frá Tyrklandi 2017 var búnaður úr gamla Kaldbak settur í skipið, en nú hefur hann allur vikið fyrir nýjum og full- komnum búnaði. Samherji er með fleiri járn í eldin- um því í Karstensen-skipasmíða- stöðinni í Skagen í Danmörku er verið að byggja nýtt uppsjávarskip fyrir fyrirtækið. Það verður vel búið í alla staði, bæði hvað varðar veiðar og með- ferð á afla, vinnuaðstöðu og aðbúnað áhafnar. Burðargeta skipsins verður um 3.000 tonn af kældum afurðum og á nýsmíðin að leysa af hólmi Vilhelm Þorsteinsson EA 11, sem var seldur til Rússlands í ársbyrjun. Nýr Vilhelm er væntanlegur um mitt næsta ár. Í Danmörku er einnig verið að smíða nýjan Börk fyrir Síldarvinnsl- una í Neskaupstað. Hann verður syst- urskip Vilhelms og er væntanlegur undir lok næsta árs. Nýtt fiskiðjuver næsta vetur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skoðunarferð Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi SFS, voru á ferð á Dalvík á dögunum og notuðu tækifærið til að skoða nýja fiskiðjuverið með Kristjáni Vilhelmssyni, (t.v) framkvæmdastjóra hjá Samherja, og Atla Dagssyni (t.h.), tæknistjóra Samherja á Dalvík. Aflaskip Hjalteyrin, áður Björgúlfur, kom með yfir sex þús- und tonn að landi á síðasta fiskveiðiári. Skipið fer í brotajárn. Kaldbakur Nýr búnaður hefur verið settur um borð og er skipið nýlega farið aftur á veiðar eftir þriggja mánaða hlé. Mörg járn eru í eld- inum hjá Samherja og framkvæmdir við full- komna landvinnslu á Dalvík langt komnar. Ný skip bætast senn við flotann en þau eldri fara í brotajárn. L jósafell SU 70 frá Fáskrúðs- firði var nýverið í slipp í sex vikur í Reykjavík og var ýmislegt gert til að viðhalda góðu ástandi þessa 46 ára gamla fleys. Skipið hélt á ný til veiða 12. september, að því er fram kemur á heimasíðu Loðnuvinnslunnar. Aðalvélin var m.a. tekin upp frá grunni, skipt um slífar og legur, gír- inn tekinn upp og yfirfarinn sem og rafallinn og vatnstankarnir voru tekn- ir í gegn. Skipt var um skjái í brúnni, öryggismyndavélar settar upp á nokkrum stöðum eins og við spilin og tvær myndavélar voru settar í véla- rúmið þannig að hægt er að fylgjast með stöðunni þar. Þá var skipið málað hátt og lágt og segja má að Ljósafellið hafi verið í sparifötunum þegar það kom heim til Fáskrúðsfjarðar. Ljósafellið hefur frá upphafi borið fisk að landi í Fáskrúðsfirði en einnig í fjölda ára tekið þátt í togararalli Hafrannsóknastofnunar. Skipið er eitt af Japanstogurunum tíu sem komu til landsins 1973. Nú eru tveir þeirra eftir í rekstri; auk Ljósafells er það Múlaberg SI (áður Ólafur Bekkur ÓF), sem Rammi í Fjallabyggð gerir út. Hinir átta voru Arnar SU, Bjartur NK, Brettingur NS, Drangey SK, Hoffell SU, Páll Pálsson ÍS, Rauði- núpur ÞH og Vestmannaey VE. Eldgos í Eyjum Vestmannaey kom fyrst þessara skipa og sigldi inn í Hafnarfjarðar- höfn 19. febrúar 1973 eftir 49 sólar- hringa siglingu frá Japan. Sólarhring síðar kom Páll Pálsson inn til Ísa- fjarðar og tíu dögum síðar lagði Bjartur NK að bryggju í Neskaup- stað. Næstu vikur og mánuði sigldu sjö aðrir Japanstogarar í kjölfarið. Vitaskuld var gert ráð fyrir að Vestmannaey kæmi til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Á siglingunni heim fengu skipverjar óljósar fréttir af því að eldgos væri hafið í Heimaey, en það hófst 23. janúar 1973. Málin skýrðust er leið á og skipverjum létti er þeir heyrðu að allir væru heilir á húfi. Í Morgunblaðinu daginn eftir heim- komu skipsins mátti lesa eftirfarandi: „Vestmannaey var stödd á Kyrrahaf- inu, þegar fyrstu fréttir af gosinu í Vestmannaeyjum bárust áhöfninni til eyrna. Þeir félagar á Vestmannaey sögðu að fyrstu fréttir, sem þeir heyrðu í enskumælandi útvarps- stöðvum hefðu verið þannig að Heimaey væri að sökkva og þegar hefðu 5 manns farizt í hamförunum. Og þannig voru allar fréttir, sem áhöfninni bárust, en þeir félagar ró- uðust þó, þegar viðtali við Eið Guðna- son og Gunnar Schram var útvarpað hjá CBS-útvarpsstöðinni, þá fyrst fengu þeir réttar fregnir. En áður en þeir heyrðu þetta viðtal liðu 3 dagar og á meðan beið áhöfnin í algjörri óvissu um heimahöfn skipsins, Vest- mannaeyjar.“ aij@mbl.is Ljósafell SU í sparifötunum Ljósmynd/Friðrik Mar Guðmundsson Ljósafell SU Öldungurinn ber sig vel á siglingu inn spegilsléttan Fáskrúðsfjörð á þessari mynd sem tekin var á dögunum. Þegar skip eru komin hátt á fimmtudags- aldurinn skiptir við- hald þeirra miklu máli. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.