Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 18

Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is S míði við Pál Jónsson GK, nýtt línuskip Vísis hf. í Grindavík, lýkur í næsta mánuði í skipasmíðastöð- inni Alkor í Gdansk í Pól- landi. Þá er eftir að koma beiting- arvélum og vinnslulínu um borð í skipið sem er væntanlegt til Íslands fyrir áramót svo það verði tilbúið á vetrarvertíðina á næsta ári. Hér heima hafa starfsmenn frá Atlas hf. í Hafnarfirði verið í lykilhlutverki við smíðina, en fyrirtækið hefur umboð á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum fyrir skipasmíðastöðina ytra. Á undanförnum árum hafa raunar allmörg íslensk skip farið í end- ursmíði hjá Alkor og reynslan er góð, segir Grímur Gíslason, fram- kvæmdastjóri Atlas, í samtali við Morgunblaðið. Leitaðir uppi Samstarf Alkor og Atlas hófst árið 2004. „Við vorum leitaðir uppi. Alkor- menn höfðu áhuga á að stofna til við- skipa við Íslendinga og fengu okkur til samstarfs sem hefur verið sér- staklega ánægjulegt,“ segir Grímur. Fyrsta íslenskra skipið sem fór ut- an í krafti þessa samstarfs var Ljós- fell SU frá Fáskrúðsfirði, sem tekið var í rækilega klössun. Síðan hafa farið togararnir Helga María AK, Málmey SK, loðnuskipið Huginn VE, varðskipið Þór og svo mætti áfram telja fjölda íslenskra skipa. Páll Jóns- son GK er hins vegar fyrsta nýsmíðin sem Alkor hefur með höndum ef frá er talinn annar Vísisbátur úr Grinda- vík, Sighvatur GK. Á árunum 2017- 2018 var hann endursmíðaður frá strípuðum skrokki, sem raunar var lengdur nokkuð. Útkoman varð stórt og gott sjóskip sem hefur verið í út- gerð síðasta árið og fiskað frábær- lega vel. Stanslaus verkefni Síðustu þrjú til fjögur árin hafa í Al- kor verið stanslaus verkefni í gegn- um okkur, án þess að komið hafi nein hlé að ráði. Núna er þar í viðgerð Norma Mary, sem er í eigu DFFU dótturfyrirtækis Samherja. Þetta er gamli Baldvin Þorsteinsson EA, sem skemmdist fyrr á þessu ári í eldsvoða en væntanlega verður skipið klárt aftur nú í nóvember. „Við erum ekki með nein verkefni í hendi nú þegar viðgerðinni á Norma Mary lýkur. Hinu verður þó að halda haga að yfirleitt koma verkefnin inn fyrirvaralítið og hlutina þarf að gera strax í gær,“ segir Grímur og hlær. „Þegar útgerðarmenn eru með hugmyndir að verkefnum koma Pól- verjarnir yfir hingað til lands og þá er farið yfir málin,“ segir Grímur. „Oft eru til skissur á blaði sem eru útfærðar nánar. Allt svona byggist á samvinnu og því að menn tali saman. Í starfsemi skipasmíðastöðvarinnar pólsku finnst mér líka mikill plús að yfirbyggingin er sáralítil, verkkaupi hittir sömu menn við undirritun kaupsamninga, á gólfinu þegar fram- kvæmdir standa yfir og við loka- uppgjör. “ Áætlaður kostnaður við smíði hins nýja Páls Jónssonar er um 7 milljónir evra, eða um 960 milljónir íslenskra króna. Á allan mælikvarða telst það hagstætt verð og langt undir því sem til dæmis nýsmíði á Íslandi hefði kostað. Því verður þó að halda til haga að búnaður í skipið nýja er að stærstum hluta keyptur í gegnum ís- lensk umboðsfyrirtæki, svo sem ýmis rafbúnaður, siglingatæki, krapavél, björgunarbúnaður og svo mætti áfram telja. Einnig eru allar teikningar og tæknivinna við skipið unnar af verk- fræðistofunni Navis hf. í Reykjavík. Verkefni þetta skilar því, eins og Grímur bendir á, talsverðum virð- isauka inn í íslenska hagkerfið þegar öllu er á botninn hvolft. Eftirlitsmaður í Gdansk „Mitt hlutverk í svona verkefnum er að vera stuðpúði milli skipa- smíðastöðvarinnar og verkkaupa. Stundum koma upp ágreiningsmál sem þarf að leysa, svo sem vegna aukaverkefna eða þegar víkja þarf út frá fyrirliggjandi teikningum. Yf- irleitt eru þetta samt mál sem er auð- velt að leysa. Núna í smíðinni fyrir Vísi er Willum Andersen, vélstjóri úr Eyjum, eftirlitsmaður Vísis með smíðinni. Sjálfur er ég í sambandi við hann oft á dag og fer utan til skrafs og ráðagerða nokkuð reglulega,“ segir Grímur. Atlas sinnir marg- víslegri þjónustu við sjávarútveginn og fleiri; selur vélar, dælur og fleira slíkt Frá 2003 hefur Grímur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins en var áður til sjós í áraraðir, meðal annars vélstjóri á Herjólfi. Einnig um nokkurra ára skeið kennari, blaðamaður og fréttaritari Morg- unblaðsins í heimabæ sínum; Vest- mannaeyjum. Mörg skip í klössun og nú fyrsta nýsmíðin Farsælt samstarf Atlas í Hafnarfirði og Alkor í Gdansk í Póllandi. Skipasmíðastöð í fremstu röð. Gott samstarf og vandamálin eru leyst. Margvísleg þjónusta og búnaður er keyptur frá Íslandi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framför Sighvatur GK var endursmíðaður nánast frá kili ytra. Vel hefur fiskast á bátinn að undanförnu. Ljósmyndir/Aðsendar Reisn Sauðárkrókstogarinn Málmey GK er eitt margra skipa frá Íslandi sem hafa farið í klössun í Gdansk. Ljósmynd/Aðsend Vökulir Grímur Gíslason og Willum Andersen vaskir á vaktinni í Póllandi. Ljósmynd/Aðsend Fjárfest Nýr Vísbátur, Páll Jónsson, í smíðum í Alkor. Skipið er væntanlegt til landsins á haustdögum. Sími 567 4467 - www.gummisteypa.isAllAr gerðir reimA og færibAndA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.