Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ó
hætt er að segja að rekst-
ur verslunarinnar Dynj-
anda sé rótgróinn. Frá
árinu 1954 hefur fyrir-
tækið sérhæft sig í vönd-
uðum og þægilegum vinnufatnaði og
öryggisbúnaði, bæði fyrir sjávar-
útveginn og aðrar greinar, en síðar
bættust við tæki á borð við raf-
stöðvar og háþrýstidælur fyrir
frystihús og skip.
Dynjandi lætur sig ekki vanta á
Sjávarútvegssýninguna 2019 og seg-
ir Þorsteinn Austri Björnsson sölu-
stjóri að nýjum og fullkomnum dæl-
um af ýmsum toga verði gert hátt
undir höfði á sýningarbásnum. Bæði
í landi og á sjó eru alls kyns dælur
ómissandi og vitaskuld þarf há-
þrýstidælur til að þrífa vélar og rými
hátt og lágt. „Undanfarið höfum við
aukið verulega sölu á háþrýstidæl-
um frá ítalska framleiðandanum An-
novi Reverberi og senda þeir okkur
sérfræðing til að hafa sem liðsauka á
sýningunni,“ segir hann.
Ending, skilvirkni og ráðgjöf
Háþrýstidælurnar um borð í skipum
eru af allt öðrum toga en þær sem
almenningur kaupir til að spúla hjá
sér stéttina. Þarf oftast að koma fyr-
ir dælukerfum sem ná um alla króka
og kima, og verður að vera hægt að
bregðast við stjórum sem smáum
bilunum enda ekki hægt að gefa
neina afslætti af þrifum við fram-
leiðslu matvæla. „Viðskiptavinir
okkar leggja mikið upp úr því að
dælubúnaðurinn sé bæði ending-
argóður og skilvirkur, og hægt að
aðlaga búnaðinn ólíkum verkefnum:
á sumum stöðum þarf mikinn þrýst-
ing og mikið vatnsflæði á meðan á
öðrum stöðum hentar betur að stilla
þrýstingnum í hóf og betra að nota
minna af vatni,“ útskýrir Austri en
sérfræðingar Dynjanda veita kaup-
endum vandaða ráðgjöf og aðstoða
við hönnun og uppsetningu.
Klæðilegri vinnufatnaður
Vitaskuld verður líka hægt að skoða
nýjustu þróunina í vinnufatnaði á
sýningarbás Dynjanda en í þeirri
deild hafa orðið töluverðar breyt-
ingar á undanförnum árum. „Bæði
gerum við meira af því að taka inn
kvensnið, en svo á það bæði við um
konur og karla að þau vilja klæði-
legri vinnufatnað svo að hann á helst
að líta út eins og fallegur hversdags-
fatnaður,“ segir Austri. „Vinnufötin
þurfa líka að vera þægileg og sjáum
við framleiðendur nota léttari og
teygjanlegri efni en áður svo að flík-
urnar toga hvergi í eða þrengja að
þó fólk verði að beygja sig og bukta
við vinnu sína.“
Er hægara sagt en gert að fram-
leiða vinnufatnað með þessa eig-
inleika, enda hefur það lengst af ver-
ið þannig að með léttum og
teygjanlegum efnum hefur þurft að
fórna styrkleika eða vatnsheldni.
„Stundum er farin sú leið að setja
sterkari efni á álagsfleti en svo hefur
þróunin í þessum efnum einfaldlega
verið sú að þau eru orðin miklu
mýkri og þjálli en áður og t.d. hægt
að vera vandlega varinn gegn
bleytu, veðri og vindum uppi á dekki
án þess að líða eins og maður sé
klæddur járnbrynju.“
Þægilegur fatnaður
sem hæfir aðstæðum
Svo getur starfsfólk í sjávarútvegi
líka valið fatnað með ólíka eiginleika.
„Það þarf ekki alltaf sjófatnað sem
er 100% vatnsheldur og gæti verið
þægilegra að vera í léttari flík sem
er vatnsfælin ef verið er að sinna
verkum þar sem ekki þarf að gösla í
sjó og fiski.“
Framfarirnar ná líka til skóbún-
aðarins og segir Austri að í dag megi
velja um úrval af skófatnaði til nota
við krefjandi skilyrði, allt frá vold-
ugum og vatnsheldum stígvélum yfir
í léttari mokkasíur og kuldaþolna
Vilja góð snið og þægileg efni
Þróunin hjá framleið-
endum er að gera vinnu-
fatnað sem er klæðileg-
ur án þess að notagildi
sé fórnað. Nýjungar í
dælum verða kynntar á
bás Dynjanda á Sjávar-
útvegssýningunni.
Morgunblaðið/Eggert
Úrval „Það þarf ekki alltaf sjófatnað sem er 100% vatnsheldur og gæti verið þægilegra að vera í léttari flík,“ segir Austri.
G
U
N
N
A
R
JÚ
L
A
R
T