Morgunblaðið - 25.09.2019, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 29
skó sem halda tánum hlýjum þó að
standa þurfi í köldum ís allan vinnu-
daginn. „Lykilatriði með skó, rétt
eins og allan vinnufatnað, er að
starfsfólkinu líði vel við vinnu sína.
Oft velja stjórnendurnir tilteknar
línur af fatnaði en leyfa svo hverjum
og einum að velja flíkur, skó og ör-
yggisbúnað innan hverrar línu. Þá
má laga sumt enn frekar að hverjum
notanda og t.d. er í boði hjá okkur
úrval innleggja fyrir skó, og eitthvað
sem ég finn sjálfur fyrir eftir því
sem árunum fjölgar; að það getur
skipt verulegu máli að fá réttan
stuðning við ilina – hvað þá ef vinnan
kallar á það að standa í fæturna all-
an daginn.“
Ljósmynd / Aðsend
Stíll Starfsfólk í sjávarútvegi, og öðrum greinum, vill líða vel við vinnu sína, vera þurrt og hlýtt en líta líka vel út.
Morgunblaðið/Frikki
Hreinlæti Mynd úr safni sýnir sjómann spúla dekk og búnað. Dælur af ýmsum
toga þjóna mikilvægu hlutverki bæði um borð í skipum og hjá fiskvinnslum.
Skýr samskipti skipta miklu fyrir
bæði öryggi og afköst um borð í
skipum og í fiskvinnslum. Sjómenn
og fiskvinnslufólk þurfa að hafa
góðan fjarskiptabúnað og hefur
þróunin í tækninni undanfarin ár
einkennst af því að snúrurnar eru
óðara að víkja fyrir þráðlausum
búnaði. Þorsteinn segir gott að
losna við snúrurnar enda geti þær
flækst fyrir fólki við störf sín, og þá
sé óhjákvæmilegt að þar sem snúr-
um er stungið í samband við heyrn-
artól eða talstöð skapist hætta á
að væta eða óhreinindi berist í við-
kvæman búnaðinn. „Þetta er bún-
aður sem eykur öryggið en getur
líka veitt starfsfólki afþreyingu að
geta t.d. hlustað á tónlistarsafnið í
snjallsímanum sínum, eða streymt
útvarpssendingu yfir netið á meðan
unnið er.“
Stilla má fjarskiptabúnaðinn á
ýmsa vegu og margir möguleikar í
boði við val á kerfum, talstöðvum
og heyrnartólum. „Á sýningunni í ár
kynnum við nýjustu heyrnartólin frá
Peltor en þau má tengja við snjall-
símaforrit þar sem hægt er að
stýra eiginleikum heyrnartólanna
og t.d. breyta hljómnum eftir
smekk hvers og eins,“ segir Austri.
Eykur öryggi
og styttir stundir