Morgunblaðið - 25.09.2019, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
F
yrr í þessum mánuði var
kældur fiskur í fyrsta sinn
sendur úr landi í
endurvinnanlegum pappa-
kassa frá Kassagerðinni.
Kristján Geir Gunnarsson, forstjóri
Kassagerðar Reykjavíkur, segir að
unnið hafi verið að því um nokkurt
skeið að þróa endurvinnanlegar
umbúðir til útflutnings á fiski. „Við
erum komin í samstarf við mjög öfl-
ugan aðila sem hefur lagt mikla
peninga í vöruna og við höfum lagt
töluvert í þetta líka,“ segir hann.
Ferskfiskkassinn, Eco Fish Box,
er þróaður af Stora Enso í Svíþjóð í
samstarfi við söluaðila á ýmsum
mörkuðum, þar á meðal Kassagerð
Reykjavíkur hér á Íslandi. Kassinn
er umhverfisvænn og kemur í stað
frauðplastkassa. Kassinn er vatns-
heldur og er hönnun hans þannig
að burðargeta hans er margföld á
við hefðbundna pappakassa, að
sögn Kristjáns Geirs. Hann segir
kassann hafa verið í notkun í nokk-
ur ár í Finnlandi með góðum ár-
angri.
Frauðplast á undir högg að sækja
Fyrsti notandi kassanna er Premi-
um of Iceland ehf. og er það í fyrsta
sinn á Íslandi sem frauðkassa úr
plasti er skipt út fyrir umhverfis-
væna lausn úr pappa. „Þetta skref
sem verið er að taka núna er
gríðarlega stórt fyrir framtíðina og
tilviljun að fyrsta framleiðsla af
fiski sé að fara til kaupenda erlend-
is á meðan átakið Plastlaus sept-
ember fer fram á Íslandi,“ segir
Kristján Geir.
„Það er komið vel á annað ár sem
við höfum verið að þróa kassann
með þeim, með því að senda prufur
og tala við viðskiptavini hér á Ís-
landi. Nú erum við komin á þann
stað að við erum byrjuð að selja
kassann. Við höfum hlustað á
markaðinn og aðlagað vöruna
þannig að hún uppfyllir ýtrustu
kröfur,“ fullyrðir forstjórinn.
Spurður hvort fyrirtækið hafi
fundið fyrir eftirspurn eftir umbúð-
um úr endurvinnanlegu efni segir
hann svo vera. „Já, þetta er þekkt í
þessum pappakassabransa að
frauðplastið á alltaf meira og meira
undir högg að sækja. Frauðplastið
hefur þessa gríðarlega góðu eigin-
leika og uppfyllir miklar kröfur.
Umbúðin viðheldur hitastigi, hún
er sterk – það er hægt að stafla og
þolir að vera í miklum hita í ákveð-
in tíma. Þetta eru algjörar öfga-
umbúðir, en á sama tíma er þetta
algjör umhverfisvá.“
Kristján Geir segir hafa verið
mjög erfitt að finna pappakassa
sem ber með sér sömu öflugu eig-
inleika og frauðplastið. „Þessi sam-
starfsaðili okkar er ekki eini að-
ilinn sem er að gera þetta – við
vorum að reyna að gera þetta. En
smátt og smátt verður krafan frá
viðskiptavinum okkar við-
skiptavina í þá átt að eitthvað komi
í staðinn fyrir frauðplastið. Þá slá
menn oft aðeins af kröfunum til
kassans og kannski má segja að
frauðplastkassinn sé of góður. Þú
þarft ekki svona mikla vörn, því að
gámaflutningar og flutningskeðjan
sjálf er orðin það kæld að þú þarft
ekki frauðplastið. En vegna þess að
þetta er orðin svona keðja sem hef-
ur þróast og þroskast í gegnum tíð-
ina er erfitt að stoppa hana.“
Plastinu settar takmarkanir
Sífellt eru ríki að vinna í átt að
regluverki sem dregur úr plast-
notkun, að sögn Kristjáns Geirs.
Bendir hann til þess að fyrir liggur
tillaga í Frakklandi um að banna
ákveðnar plastvörur árið 2020 og
2021. „Ef maður horfir á pólitíska
umhverfið þá eru reglur að breyt-
ast, til dæmis hafa Frakkar verið
mjög framalega í að banna plast-
poka og plastumbúðir. Við vitum að
innan ekkert allt of margra ára
verður frauðplastkassinn bann-
aður. Þá verðum við að finna leið
fyrir viðskiptavini okkar. Við finn-
um það sterkt, sérstaklega á þessu
ári, að þeir eru orðnir mjög opnir
fyrir því að prófa nýjungar,“ segir
hann og bætir við að markmið
fyrirtækisins sé að vera á undan
þeirri þróun. „Við viljum vera for-
virkir en ekki bara bregðast við.“
Pappakassinn sem um ræðir er
flatur áður en hann er notaður til
pökkunar og ber hann því með sér
talsverða umhverfisvæna kosti auk
þess sem hann tekur minna pláss
við innflutning og við útflutning á
fiski, staðhæfir forstjórinn. „Einn
gámur af frauðplastkössum tekur
álíka mikið pláss og sjö eða átta
gámar af þessum kössum. Bara
plássið í geymslu, flutningum og
öðru slíku er rosalega misjafnt
milli þessara umbúða. Kolefn-
issporið hlýtur að vega þungt í
þessu líka.“
Til gámaflutninga
Spurður hvernig kassinn sé nýttur
til útflutnings á ferskum fiski segir
Kristján Geir kassann ekki hugs-
aðan fyrir útflutning á ferskum
fiski með flugi. „Langstærsti hluti
af kældum ferskum fiski fer í gám-
um og það er sú flutningsleið sem
við einbeitum okkur að núna og við
ætlum að horfa á flugið í næstu
skrefum. Við erum meira að segja
komin langt á leið í þróun á kassa
sem þolir flug. En hvað varðar
flutningsleiðina í gámi til við-
skiptavina höfum við verið að
senda til Frakklands og Ítalíu pruf-
ur með hitarita í fisknum og fylgj-
umst með. Niðurstöðurnar hafa
sýnt að hitastigið breytist ekki.“
Hann segir vandamálið með
frauðplastkassa vera fyrst og
fremst að sá sem taki við honum
hafi ekki annarra kosta völ en að
urða hann, þar sem frauðplastið er
óendurvinnanlegt. „Sá sem er
endaviðskiptavinurinn situr uppi
með frauðplastkassann, söluaðilinn
á Íslandi sendir bara kassann og
fær hann ekki til baka. Við finnum
það – þar sem við höfum verið að
gera prufur – að það er ekkert mál
að koma pappakassanum í endur-
vinnslu. Viðskiptavinurinn hefur
verið að kalla eftir þessari breyt-
ingu.“
Fiskur í fyrsta sinn fluttur út í pappa
Lengi hefur verið leitað að
kassa úr endurvinnanlegu
efni undir ferskan fisk. Nú
er slíkur pappakassi kom-
inn í sölu og spurning
hvort hann muni leysa
frauðplastið af hólmi.
Morgunblaðið/RAX
Umbúðir Kristján Geir, forstjóri Kassagerðar Reykjavíkur, segir lengi hafa verið leitað að endurvinnanlegum umbúðum til þess flytja út ferskan kældan fisk.
Morgunblaðið/RAX
Endurvinnanlegt Gylfi Þór Markússon, framkvæmdastjóri Premium of Iceland í Sandgerði, var fyrstur til að nýta kassann.
Kassagerð Reykjavíkur var stofnuð 1932 og framleiddi í fyrstu trékassa en
seinna færðist framleiðslan yfir í pappakassa, svokallaða bylgjukassa. Fyrir-
tækið var sameinað Umbúðamiðstöðinni 2001 undir merkjum Kassagerð-
arinnar. Árið 2006 keypti Prentsmiðjan Oddi félagið og breikkaði þar með
vöruval sitt. Oddi keypti síðar Plastprent, árið 2012, og gat í framhaldinu boð-
ið viðskiptavinum upp á fjölbreyttara vöruval í pakkningalausnum. Félagið var
á þessum tíma framleiðslufélag.
Í byrjun árs 2016 var ákveðið að Oddi myndi hætta framleiðslu á bylgju-
kössum og plasti og í stað þess hafinn innflutningur á umbúðum að utan.
Framleiðsla prentsmiðju Odda hélt þó áfram. Þá var ákveðið að kljúfa upp
rekstur Odda í byrjun þessa árs á þann veg að Kassagerð Reykjavíkur heldur
utan um umbúðasölu en Prentsmiðjan Oddi helgar sig prentverki.
87 ára reynsla af kassagerð
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum