Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019
Alfons Finnsson ljósmyndari Morgunblaðsins í Ólafsvík
fylgist vel með lífinu þar vestra, bæði til sjós og lands. Í
byggðunum undir Snæfellsjökli er ein stærsta verstöð
landsins og á góðum dögum er þar landburður af fiski.
Smærri og meðalstórir bátar eru uppistaðan í flotanum,
sem gerður er út frá Ólafsvík, Arnarstapa og Rifi. Þaðan
er örstutt á fengsæla fiskislóð og bátarnir því fljótir í
land.
Talsvert af aflanum er unnið í fiskvinnsluhúsum á
svæðinu en mikið er líka flutt til kaupenda annars staðar
á landinu. Gjarnan er fiskurinn líka svo fluttur fullunninn
beint að vestan suður á Keflavíkurflugvöll og er þá kom-
inn til kaupenda í útlöndum strax næsta dag.
Hröð þróun
Sjávarútvegurinn er atvinnugrein í hraðri þróun. Há-
tækni er ráðandi og leiðarljósið að nýta hráefnið sem
allra best svo hæst verð fáist fyrir afurðirnar. Starfs-
hættir í fiskvinnslunni breytast hratt og söm er raunin í
starfi sjómanna. Að sýna þrautseigju, vera óhræddur og
tilbúinn að taka langan vinnudag er þó jafnan það sem
gildir. Þegar aflabrögð eru góð og staðan á mörkuðum
hagstæð getur afkoman líka verið góð. Slíkt léttir líka
lundina og víst eru þeir kampakátir, sumir garpanna sem
sjást á þessum myndum Alfons í Ólafsvík. sbs@mbl.is
Afköst Magnús Emanúelsson og Halldór Brynjarsson landa úr Rán SH, ánægðir með aflabrögðin. Saga Strandveiðibáturinn Villi-Björn á miðunum, gerður út á handfæri. Áður hvalaskoðunarbátur
Sjómennirnir
í linsu Alfons
Ljósmyndarinn á vaktinni. Alfons
Finnsson í Ólafsvík fylgist vel með
stöðu mála í verstöðinni vestra. Þegar
vel veiðist er ástæða til að brosa.
Kátir Arnar Laxdal og Sigurður Viktor Hall-
grímsson sjómenn á Særifi SH brostu framan í
heiminn og myndavélina þegar þeir komu að
landi eftir góðan dag þegar vel veiddist.
Fengur Langa í
lengra lagi. Örvar
Marteinsson á Sverri
SH með stórfisk
sem kom á línuna.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Uppskera Gaman þegar vel veiðist. Börkur Árnason á
Bárði SH með tvö golþorska á bryggjunni í Ólafsvík.