Morgunblaðið - 25.09.2019, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 35
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Þetta sparar bæði sápu og vinn-
andi hendur,“ segir Baldur Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri Vatns-
lausna ehf., um sápuþokukerfi
Caligo frá Sani-Mist BV. Hann seg-
ir tækið geta dregið úr sápunotkun
um allt að 60 til 70% og stytt vinnu
við hreinsunarstörf í vinnslusal allt
að 20%. „Þetta dreifir sápunni bara
sjálfvirkt. Það tekur einungis tíu
mínútur að dreifa sápunni og hún
látin vinna í tíu mínútur eða tutt-
ugu,“ segir hann.
Jákvæðar gerlatölur
Baldur segir vel þekkt að nota sam-
bærileg tæki hér á landi við sótt-
hreinsun, enda hafi slíkt verið gert
árum saman. Hins vegar hafi ekki
áður verið boðið upp á að nota sápu
með þokunni. „Það hefur enginn
gert þetta áður með sápu, en við
höfum gert tilraun með þessa tækni
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa.“
Hann segir þær tilraunir hafa geng-
ið vonum framar. „Í viku var bara
sápað með þessari aðferð og sýndu
gerlatölurnar að ástandið var betra
en þegar þetta var gert með hand-
virkri aðferð.“
Kröfur um hreinlæti eru miklar
þegar um matvælaframleiðslu er að
ræða, að sögn Baldurs. „Það er
hægt að sjá á heimasíðu Mat-
vælastofnunar hvað var inkallað af
vörum á síðasta ári, fyrirtækjum
lokað og þeim bannað að framleiða
þar til búið væri að þrífa betur og
koma hreinlætismálum í betra horf.
Það eru mörg dæmi um það.“
Spurður hvernig þrifin séu fram-
kvæmd með umræddu tæki svarar
Baldur að eftir að lausir afgangar
hafi verið fjarlægðir sé rýminu lok-
að og slökkt á loftræstingu. Þá sé
kveikt á tækinu, sem dreifir þoku
og sápu sem ferðast um allt rýmið,
úr stútum sem hefur verið komið
fyrir í loftinu. „Svo eru bara fram-
kvæmd hefðbundin þrif. Þegar því
er lokið er kveikt á sótthreins-
unarferli tækisins og starfsfólkinu
óhætt að fara heim.“
Þokuhreinsunartæki sem einnig
dreifir sápu sagt fækka gerlum
Þokuhreinsun hefur ver-
ið notuð í matvælaiðnaði
á Íslandi um árabil. Hins
vegar hefur sápu ekki
verið dreift með þokunni
til þessa. Niðurstöður í
tilraunum hjá ÚA eru
sagðar sýna árangur.
Möguleikar Nýta má þokuhreinsunartæki til þess að dreifa sápu um vinnslusal.
„Það eru rúmlega 120 sýnendur og
við búmst við vel yfir 15.000 gestum
og að þeim fjölgi milli sýninga því
fyritækin fá ótakmarkaðan fjölda
boðsmiða og eftirspurnin er mun
meiri en þegar seinasta sýning var
haldin,“ segir Ólafur M. Jóhannes-
son, framkvæmdastjóri sjáv-
arútvegssýningarinnar 2019.
Framkvæmdastjórinn segir jafn-
framt að sýningin hafi vaxið mikið
og að það komi á „óvart hversu fjöl-
þætt hún sé, sú þjónusta er íslensk-
ur sjávarútvegur býr við“.
Hann segir gesti mega búast við
afar fjölbreyttri flóru tækja og nýj-
unga í sjávarútvegi, „en þar stönd-
um við Íslendingar í allra fremstu
röð í heiminum. Hér verða nýjungar
fyrir skipastólinn, vinnslurnar og
alls kyns hugbúnaðarnýjungar svo
eitthvað sé talið“.
Ólafur kveðst finna fyrir miklum
áhuga á sýningunni utan úr heimi og
hefur fjöldi erlendra gesta boðað
komu sína á sýninguna „enda telja
þeir að hér sé helsti vaxtarsprotinn
varðandi tækninýjungar“.
„Tilgangur sýningarinnar er að
finna flöt fyrir bæði fagaðila og
áhugafólk til að kynnast þróun og
nýjungum í sjávarútvegi,“ útskýrir
hann og segist sannfærður um að
„þessi jákvæða þróun mun skipta
miklu fyrir velferð íslensks sam-
félags“. gso@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Tækni Ýmis tæki og hugbúnaður hafa ávallt vakið lukku á sjávarútvegssýningunni.
Gera ráð fyrir yfir
15 þúsund gestum