Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
Umsóknir um vernd hér á landi,
hælisumsóknir, í september voru
orðnar um 90 talsins sl. föstudag.
Umsóknir um vernd í ár voru orðnar
nálægt 610 talsins og september er
stærsti mánuður þessa árs hvað
varðar fjölda umsókna um vernd.
Samkvæmt yfirliti sem Útlend-
ingastofnun birti 15. september bár-
ust 77 umsóknir í mars og 78 um-
sóknir í ágúst sl. Fjöldi umsókna var
alls 522 fyrstu átta mánuði ársins.
Írakar voru fjölmennastir ein-
stakra þjóðerna sem sóttu hér um
vernd og fyrstu átta mánuði ársins
bárust 87 umsóknir. Írakar hafa
undanfarin ár verið stærsti hópur
umsækjenda sem ekki koma frá
öruggum upprunaríkjum. Hröð for-
gangsmeðferð hefur verið viðhöfð
vegna umsókna frá öruggum ríkjum
og hefur þeim fækkað.
Þórhildur Hagalín, upplýsinga-
fulltrúi Útlendingastofnunar, sagði
að fyrstu þrjá mánuði ársins hefðu
yfir 70 umsóknir um vernd borist í
hverjum mánuði. Heldur dró úr um-
sóknafjöldanum í apríl til júní en eft-
ir það fóru umsóknir aftur yfir 70 á
mánuði allt upp í um eða yfir 90. Oft
hafa borist margar umsóknir um
vernd frá október til desember.
Fyrstu átta mánuði ársins barst
61 umsókn um vernd frá Venesúela-
mönnum, þar af samtals 30 í júlí og
ágúst. Þeim var öllum veitt vernd
eða viðbótarvernd. Þórhildur sagði
að umsóknirnar mætti rekja til
ástandsins í Venesúela. Fjölgun um-
sókna þaðan væri ekki bundin við
Ísland því nágrannalönd okkar
hefðu einnig fundið fyrir fjölgun um-
sókna um vernd frá Venesúela-
mönnum.
Athygli vekur að það sem af er
þessu ári hafa borist umsóknir frá
Ástralíumanni, Breta og Banda-
ríkjamanni, einum af hverju þjóð-
erni. Mál þessara þriggja umsækj-
enda falla undir „önnur lok“ í
tölfræði Útlendingastofnunar. Þór-
hildur sagði að í flestum málum sem
falla í þann flokk hafi umsækjendur
dregið umsóknir til baka.
Einnig endi þar mál þeirra sem
hverfa frá umsókn án þess að draga
hana til baka. Algengast er að um-
sækjendur frá upprunaríkjum sem
skilgreind eru sem örugg dragi um-
sóknir sínar til baka. gudni@mbl.is
Venesúelamenn leita hælis
September sló metfjölda umsókna um vernd á þessu ári
Nálægt 610 umsóknir um hæli það sem af er þessu ári
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsmannafélag Garðaskóla vekur
athygli á slæmum aðbúnaði í eld-
húsi starfsmanna og skorar á
bæjarstjóra Garðabæjar og bæjar-
ráð að grípa án tafar til nauðsyn-
legra aðgerða til úrbóta. Erindið
var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í
gærmorgun og var vísað til bæj-
arstjóra og til nánari skoðunar við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir
næsta ár.
Meindýr sést í eldhúsi
65 starfsmenn eru við Garðaskóla
og er sérstakt eldhús og borðsalur
fyrir þá. Starfsmannafélagið telur
að ekki verði lengur unað við nú-
verandi stöðu. Vakin er athygli á
slæmri aðstöðu matráðs til elda-
mennsku og annarra starfa, tækja-
kosti, loftræstingu og hreinlætis-
aðstöðu. Fram kemur að ítrekað
hafi orðið vart við meindýr, svo sem
mýs og silfurskottur. Vegna at-
hugasemda Heilsbrigðiseftirlits nú í
september hafi eldhúsi starfsmanna
verið lokað um ótiltekinn tíma.
Þá kvarta starfsmenn yfir
þröngri aðstöðu við að matast,
salernisaðstöðu og fatahengi.
Framkvæmt fyrir 250 milljónir
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, segir að lagt hafi verið
í verulegar framkvæmdir við
Garðaskóla, framkvæmt hafi verið
fyrir 250 milljónir á síðustu fjórum
árum. Allar hafi framkvæmdirnar
verið unnar í góðu samstarfi við
stjórnendur skólans. Einnig verði
unnið úr ábendingum starfsmanna í
góðu samstarfi
við stjórnendur
skólans og
starfsfólk.
Bæjarstjórinn
getur þess að
framkvæmd
mötuneytismála
sé með ýmsum
hætti í Garðabæ.
Nemendur og
starfsmenn Sjá-
landsskóla hafi til dæmis fengið
mat frá Skólamat um árabil og af
því sé góð reynsla. Nemendur
Garðaskóla fái mat úr nýuppgerðu
eldhúsi í skólanum. Starfsmenn fái
mat þaðan á meðan eldhús þeirra
sé lokað. Gunnar veltir því hins
vegar fyrir sér hvort rétt sé að hafa
tvö fullbúin eldhús í sama skóla
enda geti nýja eldhúsið annað nem-
endum og starfsfólki.
Réttur samskiptamáti?
„Við erum stolt af innra starfi
skólanna og viljum skapa þeim
góða umgjörð,“ segir Gunnar. Hann
veltir því fyrir sér hvort sam-
skiptamátinn sé réttur. Í eldgamla
daga hafi verið bréfaskriftir á milli
stofnana og yfirstjórnar en það hafi
færist yfir í það að menn hafi rætt
saman um viðfangsefnin enda vinni
allir hjá sama fyrirtækinu.
„Það er eðlilegt að fram fari við-
ræður við gerð fjárhagsáætlunar og
þá sé framkvæmdum forgangs-
raðað. Það kom mér á óvart að fá
bréf frá starfsmönnum þar sem við
höfum í gegn um tíðina verið í góðu
sambandi við skólastjórnendur um
það sem þarf að laga,“ segir Gunn-
ar Einarsson.
Starfsfólkið
krefst úrbóta
Léleg aðstaða í eldhúsi Garðaskóla
Ljósmynd/Garðaskóli
Garðaskóli Lagfæringar á mötuneyti starfsfólks hafa ekki verið í forgangi
í þeim miklu lagfæringum sem gerðar hafa verið á húsnæði skólans.
Gunnar
Einarsson
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Um þrjátíu manna hópur frá öðrum
flota bandaríska sjóhersins er nú
með tímabundna aðstöðu á örygg-
issvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Er hópurinn þar að æfa uppsetn-
ingu og rekstur hreyfanlegrar
stjórnstöðvar.
Hópurinn kom til landsins í byrj-
un september og fer frá Íslandi í
októbermánuði, að því er fram kem-
ur í upplýsingum frá utanríkisráðu-
neytinu.
„Stjórnstöðin hefur átt í sam-
skiptum við skip bandaríska sjó-
hersins sem eru á Norður-Atlants-
hafi við venjubundin störf. Allur
kostnaður af dvöl bandaríska sjó-
hersins er greiddur af bandaríska
ríkinu.“
Kjörið tækifæri fyrir flotann
„Ísland er mikilvægt bandaríki og
staðsetning landsins í Norður-Atl-
antshafi er þýðingarmikil. Hún veit-
ir okkur kjörið tækifæri til að prófa
samskiptastöð okkar í fyrsta sinn,“
er haft eftir aðmírálnum Andrew
Lewis, yfirmanni flotans, á vef Sjó-
hers Bandaríkjanna.
Í frétt á vef Arctic Today segir að
með þessu sé bandaríski herinn að
styrkja stöðu sína á norðurslóðum.
Þar kemur einnig fram að hér séu
stödd fjögur skip á vegum flotans,
þar á meðal beitiskipið USS Norm-
andy og tundurspillirinn USS
Farragut.
„Þessi heræfing gæti verið enn
frekar til marks um að Bandaríkin
ætli sér að spila virkara hlutverk á
norðurslóðum,“ segir í fréttinni.
Flotinn á sér ekkert varanlegt að-
setur í Evrópu.
Floti sjóhersins með
aðsetur hérlendis
Þrjátíu manna hópur tímabundið á Keflavíkurflugvelli
AFP
Skip Hér sést USS Farragut sem er tundurspillir. Skipið er statt hérlendis.
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Þungir þankar virðast sækja á þessa borgfirsku á sem
ef til vill veltir fyrir sér stopulli tilveru sinni.
Hún hefur notið sumarsins og safnað bæði ull og
holdi en nú er veturinn og hans fylgifiskar á næsta leiti.
Á beit í Borgarfirði
Morgunblaðið/Eggert
Tilveruþankar leita á digra á